Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.04.2016, Síða 22

Víkurfréttir - 07.04.2016, Síða 22
22 fimmtudagur 7. apríl 2016VÍKURFRÉTTIR Ingunn Embla Kristínardóttir skaust fram á sjónarsviðið aðeins 17 ára gömul með Keflvíkingum í Domino’s deildinni í körfubolta. Hún varð ófrísk sama ár. Hún viðurkennir að það hafi verið dálítið sjokk en alls staðar mætti hún jákvæðum straumum og hjálp- semi á meðgöngu. Hún var ekkert á því að slá slöku við og æfði körfu- bolta allt fram að fæðingu. „Ég var á æfingu bara tveimur dögum áður en ég átti. Ég var svo mætt á völlinn aftur tveimur vikum eftir að ég átti,“ segir þessi öflugi leikmaður. Ingunn sem er nú tvítug, leikur nú með Grindavík, segir að það hafi tekið dágóðan tíma að ná upp fyrri getu þar sem meiðsli hafi sett strik í reikninginn fljótlega eftir fæðingu, þar sem hún þurfti í aðgerð á hné. „Ég get ekki sagt að ég sé í mínu besta formi og á helling inni.“ Fyrr á árinu var Ingunn valin í A-landsliðið en hún er hæstánægð með að hafa fengið það tækifæri. „Það er allt upp á við núna þannig að ég er bara mjög bjartsýn á framhaldið.“ Erum drullugóðar Þessa dagana etja Grindvíkingar kappi við Hauka í undanúrslitum Domino’s deildarinnar. Ingunn er hreinskilin með það að hún bjóst ekki við því að vera yfir í stöðunni 2-1 á þessum tímapunkti. „Við ætluðum auðvitað að koma brjálaðar inn í serínua þar sem enginn hafði trú á okkur.“ Grindvíkingar náðu á síðustu stundu að tryggja sér sæti í undanúrslitum eftir sætan sigur gegn Keflvíkingum. „Við erum búnar að vera upp og niður lið í allan vetur. Þegar við erum að fara inn í úrslitakeppnina þá erum við í raun í fyrsta sinn að tefla fram full- skipuðu liði. Þegar við erum með full- skipað lið erum við bara drullugóðar,“ segir leikstjórnandinn. Daníel er okkar sjötti maður Þjálfarinn Daníel Guðni er á sínu fyrsta ári í meistaraflokki. Ingunn segir að margt jákvætt felist í því. „Hann þorir jafnvel meiru en aðrir sem eru reynslumeiri. Hann er eins og sjötti maðurinn hjá okkur. Það er smitandi hvað hann lifir sig mikið inn í þetta. Ég hef aldrei fundið neina nei- kvæða strauma frá honum, hann nær að snúa öllu á jákvæðar nótur.“ Ingunn segist hafa viljað reyna eitt- hvað nýtt í körfunni og því ákvað hún að ganga til liðs við Grindavík frá uppeldisfélaginu Keflavík. „Það voru mjög miklar breytingar í Kefla- vík og ég stökk því á gott tækifæri í Grindavík.“ Þar líður henni mjög vel og segir bæjarbúa hafa tekið sér opnum örmum. ÍÞRÓTTIR Eyþór Sæmundsson // eythor@vf.is „Ég á helling inni“ ●● Ingunn●Embla●og●Grindvíkingar●nálgast●lokaúrslitin ●● Grindvíkingar●geta●klárað●Hauka●á●heimavelli Skráðu þig í afsláttarklúbb Hunda- hornsins og fáðu afslátt strax í dag! Það er frítt – Engin skuldbinding – Pottþéttur sparnaður Allt um málið á Facebook síðunni okkar og í Fitjum, Njarðvík. Hundahornið Verkið felst í endurgerð neðri hluta götunnar frá gatnamótum Stapavegar, lagningu nýrrar vatnslagnar og yrborðsfrágangs ásamt yrborðsfrágangi efri hluta götunnar að gatnamótum Vogabrautar. Um er að ræða uppgröft ónothæfs efnis, afréttingu götuyrborðs ásamt styrkingu burðarlags, jöfnunarlag, malbikun, lagningu nýrrar vatnslagnar, endurnýjun fráveitu- og vatnslagna, niðurfalla og brunna eftir þörfum skv. nánara mati verkkaupa við framkvæmd verksins. Efri hluta götunnar skal vinna í rétta hæð og ganga frá yrborði með uppfræstu malbiki sem verkkaupi útvegar. Helstu magntölur eru u.þ.b: Uppgröftur 1500 m³ Fyllingar 2200 m³ Malbik 2200 m² Fráveitulagnir 295 m Vatnslagnir 360 m Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 30. september 2016. Þeir sem hyggjast bjóða í verkið skulu óska eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á netfangið byggingafulltrui@vogar.is eða hringja í síma 440 6200 og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá þá útboðsgögnin send í tölvupósti. Útboðsgögn verða afhent frá og með föstudeginum 8. apríl 2016. Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eigi síðar en miðvikudaginn 20. apríl 2016, kl. 11:00 og verð þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Sveitarfélagið Vogar ÚTBOÐ SVEITARFÉLAGIÐ VOGAR ÓSKAR EFTIR TILBOÐUM Í VERKIÐ „IÐNDALUR – ENDURGERÐ GÖTU - LAGNIR - YFIRBORÐSFRÁGANGUR“ Aðalfundur Krabbameinsfélags Suðurnesja Fimmtudaginn 14. apríl 2016 kl. 19:00 á Park Inn hóteli Hafnargötu 57 í Reykjanesbæ Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár. 2. Endurskoðaðir reikningar fyrir síðastliðið reikningsár lagðir fram til samþykktar. 3. Kosningar (stjórn og skoðunarmenn reikninga) 4. Kosnir fulltrúar á aðalfund Krabbameinsfélags íslands 5. Önnur mál. 6. Ragnheiður Davíðsdóttir framkvæmdarstjóri Krafts stuðningsfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein heldur erindi. Félagar og velunnarar Krabbameinsfélags Suðurnesja eru hvattir til að mæta. Stjórnin AÐALFUNDUR Keflvíkingar lána Alexander til Þróttara ■ Markahæsti leikmaður í sögu félagsins kominn heim Keflvíkingar hafa lánað Alexander Magnússon til granna sinna í Vogunum. Alexander hefur verið að glíma við þrálát meiðsli síðustu ár og lék t.d. aðeins fimm leiki með Keflvík- ingum í Pepsi-deildinni í fótbolta í fyrra. Áður lék hann um árabil með Grindavík eftir að hann yfirgaf uppeldisfélagið Njarðvík. Alexander mun koma til með að styrkja Þróttara gríðarlega í 3. deild, enda reynslumikill og fjölhæfur leik- maður. Þróttarar hafa styrkt sig enn frekar en Reynir Þór Valsson, markahæsti leikmaður í sögu félagsins er kominn aftur í appelsínugula búninginn. Stóru-Vogaskóli í fyrsta sinn í úrslit Skólahreysti ■ Keppnislið Stóru-Vogaskóla í Skólahreysti er í fyrsta sinn komið í úrslit keppninnar vinsælu þar sem grunn- skólar landsins etja kappi í hinum ýmsu íþróttagreinum. Liðið var stigahæst liða sem höfnuðu í öðru sæti í sínum riðli, með 43,5 stig og hefur því öðlast keppnisrétt í úr- slitum. Holtaskóli bar sigur úr bítum í riðli Reykjaness og Hafnarfjarðar og hefur því þegar tryggt sér keppnis- rétt í úrslitum. Tólf skólar munu mætast í úrslitum sem fram fara þann 20. apríl. Marín Laufey glímu- drottning í fjórða sinn ■ Körfuboltakonan Marín Laufey Davíðsdóttir leik- maður Keflavíkur, var um helgina krýnd glímudrottning Íslands í fjórða skipti á ferlinum. Marín gekk til liðs við Keflavík árið 2014 en hún er aðeins 20 ára gömul. Hún á að baki leiki í yngri landsliðum í körfuboltanum, en hún hefur einnig tekið þátt í landsliðsverkefnum í glímunni. Marín er öflugur frákastari og sterkur varnar- maður í körfuboltanum en hún er greinilega ekkert lamb að leika sér við í glím- unni heldur. Rimman byrjar rosalega Í kvöld taka Njarðvíkingar á móti KR í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Domino’s deildar karla. Fyrsti leikur liðanna, sem endaði með sigri KR, hverfur þeim sem á hann horfðu líklega seint úr minni. Eftir eðlilegan fyrri hálfleik var eins og bæði lið vildu hreinlega ekki skora í upphafi seinni hálfleiks. Hræðileg hittni og tapaðir boltar á báða bóga. Þrátt fyrir það var leikurinn æsispennandi og þurfti tvívegis að framlengja áður en KR hafði tveggja stiga sigur. Rimma liðanna í fyrra var körfuboltakonfekt og það sama virðist ætla að verða á boðstólnum í ár.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.