Víkurfréttir - 25.08.2016, Page 2
2 fimmtudagur 25. ágúst 2016VÍKURFRÉTTIR
Fasteignamarkaðurinn á Suður-
nesjum hefur verið með líflegasta móti
undanfarin misseri. Í júlí síðastliðnum
var 78 kaupsamningum þinglýst, sam-
kvæmt frétt á vef Þjóðskrár. Þar af
voru 35 kaupsamningar um eignir
í fjölbýli, 37 samningar um eignir í
sérbýli og 6 samningar um annars
konar eignir. Heildarveltan var 2.288
milljónir króna og var meðalupphæð
á samning 29,3 milljónir króna.
Af þessum 78 samningum voru 52
um eignir í Reykjanesbæ. Þar af var
31 samningur um eignir í fjölbýli, 15
samningar um eignir í sérbýli og 6
samningar um annars konar eignir.
Heildarveltan var 1.648 milljónir
króna og meðalupphæð á samning
31,7 milljónir króna.
Á Norðurlandi var 100 kaupsamn-
ingum þinglýst í júlí, á Suðurlandi 98,
á Vesturlandi 52, á Austurlandi 38 og á
Vestfjörðum voru kaupsamningarnir
10.
Loka þurfti Dósaseli í Reykjanesbæ
klukkan 16:00 á þriðjudag í síðustu
viku vegna kakkalakka sem voru í
plastpoka með dósum. Að sögn Ingu
Jónu Björgvinsdóttur forstöðumanns
Dósasels, var mikil mildi að starfs-
fólk Dósasels kom strax auga á kakka-
lakkana þegar viðskiptavinur tæmdi
plastpoka fullan af dósum og um tíu
kakkalökkum. „Við vorum heppin að
það uppgötvaðist strax að þarna væru
kakkalakkar á ferðinni. Við týndum
alla kakkalakkana upp, tæmdum allt
hjá okkur, tókum allar dósir og flöskur
og annað lauslegt og því hefur verið
fargað. Svo spúluðum við með sterkri
sápu og meindýraeyðir hefur staðfest
að hér eru ekki neinir kakkalakkar
lengur,“ segir hún. Dósasel var svo
opnað aftur næsta dag.
Síðast komu kakkalakkar með dósum
í Dósasel fyrir átta árum en þá upp-
götvuðust meindýrin ekki eins fljótt
og nú og eitraði meindýraeyðir þá
húsnæðið.
Að sögn Ragnars Guðleifssonar, mein-
dýraeyðis, hefur það aukist töluvert á
Suðurnesjum og víðar um landið að
óskað sé eftir að eitrað sé fyrir kakka-
lökkum. Margar tegundir af kakka-
lökkum eru til en það er sá evrópski
sem hefur látið á sér kræla hér á landi.
Dósaseli lokað um
stund vegna kakkalakka
Tæplega 80 kaupsamningum
þinglýst á Suðurnesjum í júlí
Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá LÍN geta sótt um styrk til
jöfnunar á námskostnaði. Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem stunda nám
fjarri heimili sínu.
Dvalarstyrkur
(fyrir þá sem að dvelja fjarri lögheimili og fjölskyldu
sinni vegna náms).
Styrkur vegna skólaaksturs
(fyrir þá sem sækja nám frá lögheimili og
fjarri skóla).
Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér reglur um styrkinn á vef
LÍN (www.lin.is).
Lánasjóður íslenskra námsmanna
Námsstyrkjanefnd
Jöfnunarstyrkur til náms
Umsóknarfrestur á haustönn 2016 er til 15. október nk.
Sofnaði undir
stýri og velti
bílnum
■ Ökumaður velti um helgina bif-
reið sinni þegar hann sofnaði undir
stýri, að eigin sögn. Óhappið varð á
Reykjanesbraut vestan við Grinda-
víkurveg. Ökumaðurinn var einn
í bifreiðinni og var hann fluttur
með sjúkrabifreið á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja. Hann reynd-
ist ómeiddur en talsvert lerkaður
eftir veltuna. Bifreiðin var mikið
skemmd og þurfti dráttarbifreið til
að fjarlægja hana af vettvangi.
Tekinn á 146
km hraða á
Reykjanes-
braut
■ Ökumaður mældist á 146 kíló-
metra hraða á Reykjanesbraut um
síðustu helgi. Ökumaðurinn var
erlendur ferðamaður og greiddi
hann sektina á staðnum. Fjórir
til viðbótar voru sektaðir fyrir of
hraðan akstur á Reykjanesbraut.
Þá voru fjórir ökumenn færðir
á lögreglustöð vegna gruns um
akstur undir áhrifum fíkniefna, þar
af einn sem hafði áður verið sviptur
ökuréttindum. Sýnatökur stað-
festu neyslu þeirra á fíkniefnum.
Réttindalausir
ökumenn í um-
ferðinni
■ Lögreglan á Suðurnesjum hafði
um helgina afskipti af nokkrum
ökumönnum sem óku án ökurétt-
inda í umdæminu. Einn þeirra
ók á ljósastaur og viðurkenndi
brot sín. Annar, sem hafði verið
sviptur réttindum ævilangt,
ók aftan á bifreið sem var fyrir
framan hann. Sá þriðji, sem einn-
ig ók sviptur, reyndist vera undir
áhrifum áfengis við aksturinn.
Fjórði réttindalausi ökumaðurinn
ók inn á Reykjanesbrautina án
þess að virða stöðvunarskyldu.
Þá var réttindalaus ökumaður
tekinn fyrir of hraðan akstur.
Hann reyndist vera undir áhrifum
fíkniefna við aksturinn. Tveir til
viðbótar voru handteknir vegna
fíkniefnaaksturs um helgina og var
annar þeirra með útrunnin öku-
réttindi.
Búist er við einni milljón gesta í Bláa
Lónið í ár. Í fyrra heimsóttu 918
þúsund manns þennan frægasta og
fjölsóttasta ferðamannastað lands-
ins. Fyrirtækið sem er einn af stærri
vinnustöðum á svæðinu hefur 550
starfsmenn á sínum snærum. Upplif-
unarsvæði Bláa Lónsins var stækkað
umtalsvert í upphafi árs, eða úr rúm-
lega 5000 fm í 8700 fm. Tilgangur
breytinganna var fyrst og fremst að
bæta upplifun gesta. Skápum í klefum
var ekki fjölgað og því hafa gestir enn meira rými en áður.
Sumarið hefur gengið afar vel hjá Bláa Lóninu að sögn
Magneu Guðmundsdóttur, upplýsingafulltrúa fyrirtækis-
ins. Vefbókunarkerfi sem tekið var
í notkun árið 2013 hefur gefið góða
raun og nú hafa nánast allir gestir
bókað heimasókn sína með góðum
fyrirvara. Hún segir að aukning hafi
orðið á því að gestir Bláa Lónsins velji
heimsókn sem felur í sér fjölbreytt
úrval þjónustu og hafa valmögu-
leikar sem fela í sér drykk og maska
í lóninu fallið í góðan jarðveg meðal
viðskiptavina. „Þá hefur mikil að-
sókn verið að Lava, veitingastað Bláa
Lónsins, í sumar. Fiskur dagsins er vinsælasti rétturinn, en
við fáum ferskan fisk á degi hverjum frá Stakkavík í Grinda-
vík,“ segir Magnea.
Milljón ferðamenn heimsækja Bláa Lónið
●● Flestir●bóka●heimsóknina●fyrirfram
Ferðamenn gefa skít í fyrsta og síðasta
stopp á leið sinni um Ísland og það í
orðsins fyllstu merkingu. Aðeins um
kílómetra frá Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar er staldur með bílastæðum fyrir
bíla og rútur. Þar er hlaðinn skjól-
garður, bekkir og borð. Þá er fallegur
trjágróður á staðnum og ruslatunnur.
Fjölmargir ferðamenn stoppa á þessu
fyrsta staldri þegar komið er frá flug-
stöðinni eða nota sem síðasta stopp
fyrir flug. Þarna sefur fólk í bílum
sínum yfir nótt en á staðnum er engin
hreinlætisaðstaða. Þrátt fyrir að hægt
sé að komast á salerni í flugstöðinni
sem er í aðeins um kílómetra fjarlægð
þá kjósa margir að ganga örna sinna
á bakvið hlaðna steinveggi eða innan
um trjágróður á staðnum.
Rútubílstjóri stoppaði með hóp ferða-
manna þarna í gærmorgun, enda
veðurblíðan mikil og áhugi hjá ferða-
fólkinu að anda að sér fersku loftinu
og njóta umhverfisins. Bílstjórinn
hafði samband við Víkurfréttir og
hafði ekki góða sögu að segja af svæð-
inu. Fólkinu mætti ekki ferskur and-
vari heldur megn skítalykt. Bílstjórinn
fékk strax spurningu frá ferðamanni
hvaða lykt þetta væri og við nánari
skoðun kom í ljós að mannaskítur var
víða á svæðinu og sjá mátti klósett-
pappír og þurrkur við steinhleðslu á
svæðinu og við trjágróðurinn á svæð-
inu. Bílstjórinn sagði aðstæður mjög
óaðlaðandi og var fljótur í burtu með
sinn hóp.
Umhirða á svæðinu er á ábyrgð Sand-
gerðisbæjar.
Ferðamenn gera þarfir
sínar við flugstöðina