Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.08.2016, Side 6

Víkurfréttir - 25.08.2016, Side 6
6 fimmtudagur 25. ágúst 2016VÍKURFRÉTTIR Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent- aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Blaðamenn Víkurfrétta fóru í ferðalag um Reykjanesið í síðustu viku. Aldrei þessu vant var ákveðið að yfirgefa skrifborðið og heimsækja ferðamannastaði á svæðinu sem ekki heita Bláa Lónið. Garðskaginn var fyrsti viðkomustaður. Hann er vinsæll bæði meðal heimamanna og ferðalanga. Þar er að eiga sér stað nokkur uppbygging, kaffihús í gamla vita, stórt og mikið hótel er að rísa, tjaldsvæði er á svæðinu ásamt byggðasafni og væntanlegum veitingastað. Það sem er þó jafnvel mikilvægast, það er salerni á Garðskaga. Eftir stopp í Garðinum lá leiðin í gegnum Sandgerði. Þegar komið er út á Hvalsnes, áfram framhjá Höfnum og út á Reykjanes, er hvergi salernisaðstöðu að sjá. Við brúna á milli heimsálfa var fjöldi fólks og stanslaust rennerí af bílum. Undirritaður var þá kominn í nettan pissuspreng en datt ekki til hugar að láta vaða við bílaplanið við brúna. Það var ekki ætlunin að fara í slíkt ferðalag í spreng, en gerir þessa grein og upplifunina óneitanlega meira spennandi. Ýmislegt lagt á sig í rannsóknarskyni. Leiðin lá næst að Gunnuhver. Þar var á annan tug bíla og full rúta af ferðamönnum renndi í hlað þegar blaðamenn bar að garði. Hvergi var kamar að sjá og blaðran farin að þenjast. Ferðamenn voru yfir sig hrifnir af hvernum og hafði einn sem var duglegur að mynda hverinn með dróna, á orði að Reykjanes væri fallegasta svæðið á landinu. Við Reykjanesvita var einnig talsverður fjöldi af fólki sem gekk fram á óvarðar háar klettabrúnir þar sem aldan blasir við fyrir neðan. Það er frekar sérstakt að aldrei hafi verið hreyft við jörðu þarna við Valahnjúk. Fólk hefur keyrt hraunið niður í áratugi og lagt bílum sínum á víð og dreif. Þarna þyrfti að setja plan sem stjórnar umferðinni um svæðið. Það er víst allt á teikniborð- inu. Enn var ekkert salerni að sjá og því um að gera að haska sér aftur til byggða ef ekki ætti illa að fara. Þegar við vorum svo komnir aftur að Höfnum þá sagði blaðran stopp. Brugðið var á það ráð að pissa á bryggjunni í Höfnum í felum fyrir skipsverjum sem stóðu skammt undan. Hafnabúar eru víst vanir svona viðbjóði þar sem ferðafólk hefur gert þarfir sínar í kirkjugarðinum. Ég biðst hér með forláts á þessari hegðun en með auknum vexti í blöðrunni varð eitthvað undan að láta. Eyþór Sæmundsson Blaðamaður Víkurfrétta REYKJANESHRINGUR Í EINUM SPRENG RITSTJÓRNARPISTILL Eyþór Sæmundsson „Það þarf fólk eins og þig“ söng Rúnar Júlíusson í vinsælu lagi og segja má að þessi lína gæti hæglega verið einkennis- lína Ljósanætur. Ljósanótt er ein af stærri bæjarhátíðum landsins og fer nú fram í 17. sinn dagana 1.-5. september nk. Í sumar var sent út bréf til fjölda fyrirtækja á svæðinu og leitað eftir fjárhagslegum stuðningi við framkvæmd hátíðarinnar og hefur nú bæjarstjórinn Kjartan Már Kjartansson skrifað undir samninga við fjóra stærstu styrktaraðilana. Þeir eru Landsbankinn sem er helsti styrktaraðili Ljósanætur, Nettó sem styrkir dagskrá föstu- dagskvöldsins og barnadagskrána, Skólamatur sem gefur kjötsúpuna á föstudagskvöldinu og HS Orka sem lýsir upp Ljósanótt með því að fjármagna flugeldasýninguna. Bæjarstjóri þakkaði fulltrúum þessara fyrirtækja sitt fram- lag og jafnframt hvatti hann þau fyrirtæki sem enn hafa ekki svarað bréfinu, að senda nú inn sem fyrst jákvæð svör og taka þannig þátt í að halda Ljósanótt sem einni bestu menningar- og fjölskylduhátíð landsins. Undirbúningur hátíðarinnar er nú í fullum gangi og eru það starfsmenn Reykjanesbæjar sem stýra framkvæmd hennar. Við hlið þeirra starfar fjöldi öflugra samstarfsaðila og voru nokkrir þeirra mættir við þetta tilefni m.a. full- trúar eftirfarandi hópa; Með blik í auga, Menningarfélag Keflavíkur, Menningarfélagið í Höfnum, KarfaN, Björg- unarsveitin Suðurnes, Slysavarnardeildin Dagbjörg, Lög- reglan og Brunavarnir Suðurnesja. Setning Ljósanætur 2016 fer fram á fimmtudag í næstu viku. Þá verða risablöðrur notaðar á setningarhátíðinni. Hver skóli fær risablöðru í lit skólans í samræmi við þær blöðrusleppingar sem hafa verið undanfarin ár. Nemendur munu slá blöðrunum á milli sín við setningarathöfnina en á sama tíma verður risastórum Ljósanæturfána flaggað á þjóðhátíðarfánastönginni í skrúðgarðinum í Keflavík. Risablöðrur á setningu Ljósanætur Pílukast verður á meðal valáfanga sem börnum í efri bekkjum grunnskólans í Grindavík stendur til boða á haustönn sem hefst í vikunni. Það er Pétur Rúð- rik Guðmundsson sem skipuleggur valáfangann í samstarfi við ÍPS (Ís- lenska pílukastsambandið) og mun hann kenna börnum allt sem skiptir máli í pílukasti. Hver kennslustund í pílukasti er 40 mínútur. Pétur segir frábært að skólinn í Grindavík skuli bjóða upp á þennan möguleika í námi. Börn hafi ekki að- eins gaman af pílukasti heldur gagnist það þeim afskaplega vel bæði í námi og hverju öðru sem þau taka sér fyrir hendur. „Í pílukasti þurfa börnin að læra að leggja saman og draga frá í huganum,“ segir hann og bætir við að auk kennslu í pílukasti munu börnin læra hugarþjálfun en það gerir þeim kleift að einbeita sér undir álagi. Pétur segir þá þjálfun koma sér vel á lífs- leiðinni, ekki síst þegar börnin þreyta próf í skólum. ÍPS stóð fyrir flottri kynningu á pílu- kasti á Unglingalandsmóti UMFÍ í Borgarnesi um verslunarmannahelg- ina og vakti það mikla lukku móts- gesta á öllum aldri, ekki síst barna. Börnin leika sér og læra að reikna Pétur, sem er búsettur í Grindavík, hefur lengi spilað pílukast sér til gamans en fá misseri eru síðan hann tók greinina alvarlega. Hann þakkar það áhuga 12 ára sonar síns á pílu- kasti. „Hann kom til mín einn daginn og bað mig um að setja upp píluspjald og þá kom í ljós að hann hafði verið að kasta pílu með afa sínum. Í framhaldi af því fórum við að æfa okkur saman. Þar sem ekki eru mót í dag fyrir ungl- inga, hefur hann verið að mæta í mót með mér. Nú gefur hann okkur eldri ekkert eftir og er orðinn mjög góður í hugarreikningi,“ segir Pétur. Mikið hefur verið að gera hjá Íslenska pílukastsambandinu upp á síðkastið. Pétur var nú í ágúst ráðinn landsliðs- þjálfari U-18 liðsins í pílukasti næstu tvö árin. Sem þjálfari mun hann í samstarfi við ÍPS skipuleggja keppnir og halda æfingar í pílukasti á Akur- eyri, Reykjavík, Grindavík og í Reykjanesbæ þar sem pílu- k a s t á s é r sterkar rætur. H a n n m u n jafnframt standa fyrir æfingum ann- ars staðar á landinu ef áhugi er fyrir hendi. Um Pílukastssambandið Íslenska Pílukastsambandið var stofnað árið 1985 og er það aðildar- félagi að heimssambandinu í pílu- kasti (World Darts Federation). Það er landssamband pílukastara á Íslandi og standa að því fimm aðildarfélög. Félagsmenn eru um 180 og fjölgar þeim ört. ÍPS velur og sendir landslið á Norðurlandamót, Evrópumót og heims- meistaramót. Á næsta ári stefnir ÍPS að senda landslið U-18 á Evrópumót ungmenna í Svíþjóð. ÍPS heldur opið alþjóðlegt mót einu sinni á ári. Ís- landsmót hafa verið fimm á hverju ári og með tilkomu U-18 verða þau sex. Íslandsmót U-18 verður 17. desember næstkomandi í Reykjanesbæ. Pílukast hluti af námi skólabarna í Grindavík SJÓNVARP V ÍKURFRÉTTA NÝR ÞÁTTUR Í HVERRI VIKU INNÁ WWW.VF.IS/VEFTV SJÁÐ’ANN Í HÁSKERPU Í TÖLVUNNI, SPJALDTÖLVUNNI EÐA SÍMANUM ÞÍNUM! Frá undirritun samstarfssamninga vegna Ljósanætur í Reykjanesbæ 2016. VF-myndir: Hilmar Bragi Kjartan Már bæjarstjóri leikur sér með eina af blöðrunum sem notaðar verða á setningarhátíðinni nk. Fimmtudag.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.