Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.08.2016, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 25.08.2016, Blaðsíða 14
14 fimmtudagur 25. ágúst 2016VÍKURFRÉTTIR Fjórir hlauparar hlupu f yr i r Kr is t ínars jó ð í Reykjavíkurmaraþoni um síðustu helgi og söfnuðu samtals 269.000 krónum. Sjóðurinn var stofnaður af Stígamótum til minningar um Kristínu Gerði Guð- mundsdóttur úr Keflavík. Hann er ætlaður konum sem eru á leið úr vændi og/eða mansali og vilja byggja sig upp á nýjan leik. Úr sjóðnum hafa Stígamót veitt konum fjárhagsaðstoð á krítískum augnablikum og stundum he f u r s á s tu ð n i ng u r skipt sköpum fyrir þær. Fyrir Reykjavíkurmara- þonið var lítið fjármagn í sjóðnum. Berglind Ósk Guðmunds- dóttir úr Reykjanesbæ, systir Kristínar heitinnar, var ein þeirra sem hljóp fyrir sjóðinn. Í viðtali í Víkurfréttum í síðustu viku sagði hún frá lífs- hlaupi systur sinnar og sjóðnum sem stofnaður var í minn- ingu hennar. ■ Hlauparar sem hlupu fyrir Minningarsjóð Ölla í Reykjavíkurmaraþoni um síðustu helgi söfnuðu 540.000 krónum. Alls hlupu 21 hlaupari fyrir sjóðinn. Minningarsjóður Ölla var stofnaður haustið 2013 til minningar um Örlyg Aron Sturluson, körfuboltamann, sem lést af slysförum árið 2000, 18 ára gamall. Markmið sjóðsins er að styrkja þau börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga þess kost vegna bágrar fjárhagsstöðu forráðamanna. Reykjavíkurmaraþon: Yfir hálf milljón safnað- ist í Minningarsjóð Ölla Á þriðja hundrað þúsund söfnuðust í Kristínarsjóð Kristín Gerður Guðmundsdóttir Landhelgisgæsla Íslands Gagnafulltrúi Capacent — leiðir til árangurs Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Þá fer Landhelgisgæslan einnig með daglega framkvæmd öryggis- og varnarmála samanber varnarmálalög, þ.m.t. er rekstur Öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar NATO/LHG og ratsjár- og fjarskiptastöðva. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent, www.capacent.is Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Upplýsingar og umsókn capacent.is/s/3521 Menntunar- og hæfniskröfur Grunnnám í flugumferðarstjórn, flugnám eða annað flugtengt nám æskilegt. Búseta í nágrenni Keflavíkurflugvallar æskileg. Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu og riti. Góð tölvukunnátta og tölvulæsi. Reglusemi, nákvæmni, snyrtimennska og stundvísi. Sjálfstæði og agi í vinnubrögðum. Geta til að vinna vaktavinnu. Góðir samskiptahæfileikar. Ökuréttindi skilyrði. � � � � � � � � � � � � � Umsóknarfrestur 5. september Helstu verkefni Loftrýmiseftirlit og stuðningur við loftrýmisgæslu. Samskipti við stjórnstöðvar Atlantshafsbandalagsins og aðildarþjóðanna. Skýrslugerð og greining gagna. Önnur tengd verkefni. Landhelgisgæsla Íslands auglýsir lausa til umsóknar stöðu gagnafulltrúa á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Leitað er að gagnafulltrúa til starfa við loftrýmiseftirlit í stjórnstöð NATO/Landhelgisgæslunnar. Um vaktavinnu er að ræða. Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skulu starfsmenn uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild og bakgrunnsskoðun samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012. Konur, jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið. Íþróttahúsið við Sunnubraut í Keflavík var þétt setið á sl. föstudaginn þegar haldið var fjáröflunarkvöld fyrir Pétur Pétursson osteopata og fjölskyldu hans, en Pétur glímir við krabbamein. Andrúmsloftið var magnað og ótrúlegt að fylgjast með samheldninni sem ríkir í körfuboltasam- félaginu á Íslandi. Þar hefur Pétur starfað um áraskeið við frábæran orðstír hjá nokkrum félögum og fyrir KKÍ. Færasta körfuboltafólk landins var samankomið til þess að leika listir sínar fyrir þetta verð- uga málefni. A-landslið kvenna og karla mættu pres- suliðum, þriggjastigakeppni fór fram þar sem m.a. goðsagnirnar Valur Ingimundar og Guðjón Skúlason tóku þátt. Páll Óskar mætti á svæðið og reif stemninguna upp á annað stig. Haldið var uppboð á treyjum þar sem m.a. Haukur Helgi og Svali Björgvins borguðu fúlgu fjár fyrir flottar treyjur. Haukur Helgi tók sig ágætlega út í gulu Grindavíkurtreyjunni. Tilfinningaþrungin stund við Sunnubraut ●● Samfélagið●stendur●við●bakið●á●Pétri●Péturssyni●og●fjölskyldu

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.