Víkurfréttir - 25.08.2016, Síða 16
16 fimmtudagur 25. ágúst 2016VÍKURFRÉTTIR
Sérstök tilfinning að
labba yfir brúna
Henning Hexeberg er hlaupari
frá Noregi sem margsinnis hefur
komið til Íslands. Hann segir sér-
stakan kraft búa á Reykjanesi.
„Ég elska Ísland og hef komið
hingað oft á síðustu 20 árum. Hef
ferðast mest hér í kring en líka
farið norður á Akureyri. Reykja-
nesið er framandi staður, að geta
verið á milli Evrópu og Ameríku
er magnað og gefur mér sérstaka
tilfinningu þegar ég labba yfir
brúna. Það er einhver tilfinning sem ég hef í maganum um að þetta sé skrítið og öðruvísi. Ég vona að
fleira fólk frétti af þessum stað og komi og upplifi þetta,“ hafði Norðmaðurinn á orði við blaðamenn
Víkurfrétta á brúnni milli heimsálfa.
Besta ljósmyndin kom á Garðskaga
Maros Tunak er áhugaljósmyndari frá Tékklandi hefur komið tvisvar til Íslands síðustu fimm ár.
Hann kemur til Íslands vegna
sérstöðu landsins sem hann segir
vera vegna hreinnar náttúru.
Hann er að ferðast ásamt konu
sinni Veroniku og systur hennar
Klöru. Maros hefur sérstak-
lega gaman af því að ljósmynda
landið enda mikið um opin og
hrein svæði að hans sögn. Uppá-
halds ljósmyndin sem Maros tók
í ferðalaginu er af Garðskaga-
vita og hann getur ekki útskýrt
af hverju myndin snertir hann
sterkar en aðrar myndir sem
hann tók. „Við byrjum ferða-
lagið á Reykjanesi og förum svo
um Suðurlandið og allan hring-
veginn. Þegar ég ferðaðist til Ís-
lands fyrir fimm árum heimsótti
ég einnig Reykjanesið og vildi
koma aftur.“
Orkan og sagan
hafa aðdráttarafl
Sigurður Þorsteinsson, veitinga-
maður á Garðskaga, segir söguna
og orku frá svæðinu hafa sérstakt
aðdráttarafl fyrir ferðamenn.
„Þetta hefur farið langt fram úr
væntingum hjá okkur. Okkur
hefur verið sérstaklega vel tekið
af heimamönnum frá Reykjanes-
svæðinu. Fólk úr bænum hefur líka verið að heimsækja okkur þegar það hefur heyrt af kaffihúsinu,“
segir Sigurður en litla kaffihúsið á Garðskaga hefur fallið vel í kramið hjá fólki. „Ferðamennirnir
sem koma til okkar eru oft að skoða svæðið áður en þau fljúga aftur út og þá reynum við að segja
þeim skemmtilegar sögur af svæðinu og dreifa þeim áfram um Reykjanesið. Fólk getur oft ekki gefið
ástæðu af hverju það er hrifið af þessu svæði en mig grunar að það sé orkan sem kemur frá sjónum
og sögurnar um að eitt sinn hafi þetta verið mikilvægur staður vegna fiskveiða. Fólk alveg elskar að
heyra sögur frá því hvernig staðurinn hér var áður fyrr. Fólki finnst mjög merkilegt að við skulum
bara nýverið hafa gert um gamla vitann og opnað í sumar eftir að hann hafi staðið auður í 60 ár.“
Kaffihúsið er eflaust með þeim
minni á landinu og er boðið
uppá kaffi, drykki og meðlæti.
Stefnt er á að bæta við vöfflum og
sjávarréttasúpu síðar.
„Við erum að reyna að kynna allt
svæðið, Sandgerði og Reykja-
nesbæ líka. Ef við vinnum öll
saman ná allir árangri. Það hefur
vantað afþreyingu, við verðum að
hugsa hvernig við höldum ferða-
manninum hér á svæðinu í lengri
tíma. Við fáum oft fyrirspurnir
frá erlendum ferðaskrifstofum
REYKJANESIÐ
MEÐ AUGUM FERÐAMANNA
Suðurnesjamenn fara ekki varhluta af auknum ferðamannastraumi til landsins. Augljós merki um áhrif ferðamennskunnar er vöxturinn í bílaleigugeiranum og gríðarleg umsvif og álag í flug-
stöðinni. Nú er svo komið að sífellt fleiri ferðamenn sækja Reykjanesið og helstu perlur þess heim. Bláa Lónið er orðið fyrirbæri út af fyrir sig þar sem færri komast að en vilja. Áhugaverðir staðir á
svæðinu draga sífellt að sér fleiri ferðamenn. Blaðamenn Víkurfrétta heimsóttu þessa staði í liðinni viku og ræddu við ferðamenn og staðarhaldara. Hrafnhildur Ýr Hafsteinsdóttir, verkefnastjóri
ferðamála hjá Reykjanesbæ, segir að aukning ferðamanna á landinu sé í takt við aukningu á Reykjanesi. Hún segir 30% fleiri erlenda ferðamenn hafa heimsótt upplýsingamiðstöð í Duus húsum
í Reykjanesbæ en í fyrra. Heimsóknum Íslendinga hefur hins vegar fjölgað þar um 60%. „Það er almenn tilfinning fólks að umferðin á svæðinu sé að aukast í takt við umferð ferðamanna á Íslandi
sem og fyrirspurnir um svæðið,“ segir Hrafnhildur. Bæði hefur gistinóttum og gistirýmum á svæðinu fjölgað auk þess sem dvöl ferðafólks er að leng jast.
●● Íslendingum●fjölgar●um●60%●á●svæðinu● Umferðin●á●Reykjanesi●að●aukast●í●takt●við●straum●ferðamanna●á●Íslandi
Hlauparinn Hennig hefur margsinnis
komið til Íslands. Hann fær alveg sér-
staka tilfinningu í magann þegar hann
gengur yfir brúna milli heimsálfa.
Maros Tunak áhugaljósmyndari frá Tékk-
landi tók eftirminnilegustu myndir Íslands-
ferðarinnar á Garðskaga.
Sigurður Þor-
steinsson, veit-
i n g a m a ð u r á
Garðskaga, segir
söguna og orku
frá svæðinu hafa
sérstakt aðdrátt-
arafl fyrir ferða-
menn.