Víkurfréttir - 25.08.2016, Qupperneq 17
17fimmtudagur 25. ágúst 2016 VÍKURFRÉTTIR
um hvað sé hægt að skipuleggja
héðan, eins og að fara Suður-
strandarveginn. En við þurfum
að setja meiri fókus á það að
skoða hvernig við getum þjónu-
stað fólk á meðan það er hérna.
Ef fólk hefur nóg að gera hérna
og er ánægt þá spyrst það út.
Ferðamönnum mun fjölga meira
hér á næstunni og erum við að
bregðast við því með því að auka
við salernisaðstöðu. Grindavík
er nú þegar að gera frábæra hluti
en við í Garði, Sandgerði og
Reykjanesbæ þurfum að standa
og vinna betur saman.“
Gullmoli fyrir ferðamenn
German Khlopin, tónlistarkenn-
ari frá Rússlandi, hefur búið um
árabil í Reykjanesbæ. Hann fer
reglulega um Reykjanesið og
nýtur þess að vera ferðamaður
á nýjum heimaslóðum. Hann
var við Valahnjúk ásamt Jeka-
terinu eiginkonu sinni þegar
blaðamenn bar þar að garði.
„Mér finnst gaman að koma á
þetta svæði vegna hafsins og
sólarinnar en líka gaman þegar
það er rok og rigning. Þetta eru
kjöraðstæður fyrir ljósmyndara
að taka flottar myndir frá Íslandi.
Ég og konan mín heimsækjum
þetta svæði reglulega og tökum
myndir. Ég er mjög hrifinn af
Reykjanesinu, Garðinum og Bláa Lóninu. Garðskaginn er æðislegur staður til að taka myndir, þar
nær maður svo flottum skugga og sérstaklega við sólsetur.“
German hefur búið í nokkrum
öðrum löndum og segir bláa
himininn það sérstakasta við Ís-
land, hvernig hann getur breyst
á örskotsstundu og verið mis-
munandi á litinn ef maður horfir
í mismunandi áttir. „Ferska loftið
er líka er eitthvað sem finnst ekki
á meginlandi Evrópu. Mér finnst
að það ætti að bjóða fleiri ferðir
um Reykjanesið og Reykjanesbæ.
Þetta er gullmoli sem við getum
boðið ferðamönnum, rétt hjá
flugvellinum og Bláa lóninu.“
Ferðamönnum líður vel í öruggu umhverfi
Þeir sem hafa gert sér ferð út á Garðskaga í sumar hafa eflaust tekið eftir myndarlegri byggingu sem
rís í nágrenni við vitana tvo. Þar byggja stórhuga heimamenn glæsilegt hótel með mikil tengsl við
náttúruöflin. „Þetta byrjaði sem hugmynd yfir kaffibolla. Við erum búnir að reka gistiheimili í Garð-
inum í fjögur ár og verið mikil traffík. Þegar maður talar við fólk kemst maður fljótt að því að því líkar
vel að vera hér í sveitinni og upplifa kyrrðina, norðurljósin og nálægðina við dýrin. Við ákváðum því
að stækka við okkur,“ segir Gísli Heiðarsson en hann á sjálfur bjálka sumarhús og ákvað því að hafa
hótelið þannig. Húsið kemur nánast tilbúið frá finnsku fyrirtæki og tekur svo skamman tíma að setja
það saman fyrir vana menn.
„Þann 6. júní kom húsið og nokkrir Finnar með. Við settum þetta upp með þeim og tók það okkur
fjórar vikur. Það var ótrúlega gaman að setja húsið saman en líka erfitt, það eru spes aðferðir sem not-
aðar eru við þetta. Eftir á hyggja var það besta hugmyndin að fá Finnana til okkar til þess að aðstoða
við þetta,“ segir Gísli en 24 rúmgóð herbergi verða í hótelinu.
„Allir ferðamenn sem ég hef talað við segjast ætla að koma aftur til landsins og skoða meira. Það segir
manni mikið. Einnig finnst fólki Ísland öruggt land og líður vel hér. Það andar að sér kalda og ferska
loftinu daginn sem það lendir sem hefur örugglega með sér svipaða upplifun og þegar Íslendingar
lenda í sólarlöndum og anda að sér heita loftinu þar.“
Við heimamenn finnum fyrir auknum áhuga á Garðinum og mikið líf núna með nýja kaffihúsinu og
svo veitingastaðnum sem fer að opna.“ Gísli er þó ekki í vafa um hvað sé best við Garðinn. „Ætli það
sé ekki knattspyrnufélagið Víðir,“ segir hann sposkur á svip.
eythor@vf.is
German Khlopin, tónlistar-
kennari frá Rússlandi, hefur búið
um árabil í Reykjanesbæ. Hann
fer reglulega um Reykjanesið
og nýtur þess að vera ferða-
maður á nýjum heimaslóðum.
Það er margt um að vera á Garðskaga.
Nú er þar starfrækt kaffihús og rís hótel innan skamms.