Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.08.2016, Page 18

Víkurfréttir - 25.08.2016, Page 18
18 fimmtudagur 25. ágúst 2016VÍKURFRÉTTIR „Við erum að horfa upp á uppbygg- ingu næstu þrjú árin sem hefði þurft að eiga sér stað síðustu þrjú árin ef ég segi alveg eins og er. Það hefur skort fjármagn og svo hefur skipulagsvinna og samráð við landeigendur, sveitar- félög og ríkisvaldið flækt málin. Ef við horfum fram á veginn eru skipulags- málin komin lengra en áður, það er búið að samþykkja deiliskipulag við Reykjanesvita og nágrenni. Skipulags- stofnun hefur staðfest það og á næstu vikum förum við í jarðvegsvinnu við bílastæðin. Einnig munum við laga veginn að Gunnuhveri og fara í fram- kvæmdir á bílastæðunum við Brim- ketil,“ segir Eggert Sólberg verkefna- stjóri Reykjanes Geopark. Að hans sögn er búinn að vera mjög mikill straumur um Reykjanesið og mikill uppgangur á svæðinu. „Við sjáum að bílastæðin eru alltaf full og staðirnir með þá innviði sem eru til staðar í dag, eru ekki að höndla þetta álag. Það er skýrast við Reykjanesvita og Brim- ketil. Það hefur verið byggt upp við Brúna á milli heimsálfa og Gunnuhver sem hrósað hefur verið fyrir. Þeir sem stóðu að þeirri uppbyggingu á sínum tíma eiga hrós skilið fyrir framsýnina. Við verðum þó að halda áfram að byggja upp. Svona framkvæmdir kosta mikinn pening og við höfum leitað í samkeppnissjóði til þess að fjármagna uppbyggingu, það hefur gengið vel að fá það í gegn,“ segir verkefnastjórinn. „Þeir ferðaþjónustuaðilar og ferða- menn sem við höfum rætt við hafa mjög góða sögu að segja af svæðinu. Þeir staðir sem við fylgjumst með eru undir miklu álagi og verða það næstu þrjú árin, sérstaklega við Gunnuhver, Reykjanesvita, Brúna milli heims- álfa og Brimketil. Hvað Geoparkinn varðar, þá verða framkvæmdir fyrir allt að 100 milljónir á þriggja ára tíma- bili,“ bætir hann við. Eins og fjallað er um í Víkurfréttum í dag þá eru sal- ernismál í ólestri á þessum stöðum sem Eggert nefnir. En hvað veldur? „Á pappír virka salernismál eins og það sé lítið mál að redda því. Hins vegar þarf að leggja lagnir, samþykkja skipulag og skipulagsferlið hefur tekið langan tíma. Það er komin ákveðin lausn hvað það mál varðar og verður kynnt á næstu vikum. Það verður byggt þjónustuhús á Reykjanesi þar sem m.a. verður salernisaðstaða og annars konar þjónusta. Við erum að hugsa þetta í heildarsamhengi, að vegurinn frá Garði, Sandgerði, Reykjanesbæ og út á Reykjanes og Bláa lónið sé einn ferðamannavegur. Vonandi sjá aðilar tækifæri í því að byggja um þjónustu- svæði á þessari leið. Á leiðinni eru margir áhugaverðir staðir eins og Hafnir, Hafnarberg, Ósabotnar, Brú milli heimsálfa, Stampagígar, Gunnu- hver, Reykjanesviti, Brimketill og Bláa lónið. Á Reykjanesi, við Valahnúka yrði ferðamannamiðstöð fyrir fólk á þessari leið og þá getum við mögulega lengt dvalartíma ferðamanna á svæð- inu. Ef ferðamaðurinn dvelur lengur á svæðinu fer hann að kalla eftir aukinni þjónustu og afþreyingu á svæðinu sem verður svo að bregðast við.“ Eggert gerir ráð fyrir því að þeir aðilar sem ætla sér að byggja upp þjónustumið- stöðina komi til með að kynna tillögur sínar á allra næstu vikum. Þeir muni jafnvel hefja framkvæmdir í haust og opna næsta sumar. „Við höfum unnið forgangslista og sveitarfélögin eru sammála um hvar eigi að byggja upp. Það hefur verið gert í gegnum Geoparkinn, Atvinnu- þróunarfélagið og Markaðsstofuna. Sveitarfélögin hafa verið að færast nær hvert öðru hvað þetta varðar, það er alls enginn hrepparígur eða innbyrðis skriffinnskustríð á milli sveitarfélag- anna. Staðið hefur verið vel að hönn- unarmálum, við erum að vinna með færum arkitektum og viljum vanda til verka. Þetta verður mjög flott þegar þetta verður loksins tilbúið. Undir- búningsvinnan hefði mátt ganga hraðar fyrir sig en við höfum þurft að fara í gegnum ýmsa ferla og takast á við margt sem við bjuggumst ekki við að þurfa að gera.“ Eggert áætlar að um 200 þúsund ferðamenn séu á ferð á svæðinu í ár. Unnið er að því að mæla umferðina en hann segir það hvimleitt að þurfa að notast við gamlar tölur. Doktorsnemar við Háskóla Íslands hafa verið að mæla traffík um helstu ferðamannastaði landsins. „Hér mæla þeir við Garðskaga- og Reykjanesvita. Ég hef ekki enn fengið tölur frá þeim fyrir sumarið en við höfðum áætlað að það væru að koma um 200.000 ferða- menn á ári. Það er ákveðinn galli við ferðaþjónustuna að við erum alltaf að vinna með eldri tölur og við byggjum þetta mat á nokurra ára gömlum tölum sem við fáum frá Vegagerðinni. Það verður fróðlegt að sjá uppfærðar tölur.“ Fundarboð um almannatryggingakerfið og lífeyrissjóðina Flokkur fólksins boðar til fundar á Hótel Keflavík, Vatnsendavegi 12-14 mánudaginn 29. ágúst kl 17 um samspil tryggingakerfisins við lífeyrissjóði og þær bætur sem stjórnarflokkarnir hafa lofað að hrinda fram og áætla nú að gera með að samþykkja breytingar á lögum um almannatryggingar nr. 100/2007. Einum fulltrúa, ráðherra eða þingmanni hefur verið boðið að hafa framsögu frá hvorum stjórnarflokki. Andsvör munu veita Halldór Gunnarsson, formaður kjararáðs EB í Rangárvallasýslu og Guð- mundur Ingi Kristinsson formaður Bótar. Auk þess verða umræður og fyrirspurnir. Allir áhugasamir hjartanlega velkomnir. Uppbygging á helstu ferðamannastöðum á Reykjanesi er þremur árum á eftir áætlun að sögn verkefnastjóra Reykjanes Geopark. Skortur á fjármagni er þess valdandi auk þess sem flækja í skipulagsvinnu og samskiptum við landeigendur, sveitarfélög og ríkis- valdið hefur tafið fyrir. Til stendur að byggja þjónustuhús við Reykjanesvita sem mun leysa flest þessi vandamál. Þremur árum á eftir áætlun ●● Engin●salerni●á●helstu●ferðamannastöðum●á●Reykjanesi● ●Eru●ekki●að●höndla● álagið● Þjónustumiðstöð●við●Reykjanesvita●vonandi●tekin●í●gagnið●næsta●sumar „Þeir staðir sem við fylgjumst með eru undir miklu álagi og verða það næstu þrjú árin, sérstak- lega við Gunnu- hver, Reykjanes- vita, Brúna milli heimsálfa og Brim- ketil,“ segir Eggert Sólberg verkefna- stjóri Reykjanes Geopark.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.