Víkurfréttir - 25.08.2016, Side 22
22 fimmtudagur 25. ágúst 2016VÍKURFRÉTTIR
V I Ð E R U M H L U T I
A F G Ó Ð U F E R ÐA L AG I
16
-1
62
0
—
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Arnar starfar í öryggisleit á Keflavíkurflugvelli. Á hverri vakt skoðar hann farangur þúsunda
farþega og þannig tryggir hann öryggi allra farþega um borð. Þannig er Arnar hluti af góðu
ferðalagi farþega á hverjum degi.
Sigrún er á leið í frí til Frakklands að hitta vini sína. Hún hlóð spjaldtölvuna sína
og skoðaði í búðir og naut lífsins á meðan hún beið eftir fluginu sínu.
Hjá Isavia starfar samhentur hópur starfsmanna. Markmið okkar er
að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra 30 milljóna farþega sem fara
um flugvelli og flugstjórnarsvæði okkar árlega. Okkar hlutverk er að
tryggja öryggi þeirra allra og gera för þeirra sem ánægjulegasta.
Við erum að vaxa og þurfum að fjölga í liðinu okkar til að bregðast við
sífelldri fjölgun farþega. Stefna okkar er að bjóða upp á gott og fjöl-
skylduvænt starfsumhverfi, öfluga fræðslu og þjálfun og við leggjum
áherslu á jákvæðan starfsanda innan fyrirtækisins.
Kynntu þér störfin sem standa til boða hjá Isavia og vertu með okkur
í því að vera hluti af góðu ferðalagi.
isavia.is/atvinna
facebook.com/isaviastorf
Baráttan var æsispennandi um 1. sætið á Ís-
landsmóti Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra
(FÁÍA) í pútti 60 ára og eldri sem fram fór í
Reykjanesbæ fimmtudaginn 18. ágúst. Fjórir
keppendur voru þar jafnir í karlaflokki á 66
höggum og réðust úrslit í bráðabana. Eftir bráða-
banann lá fyrir að heimamaðurinn Aðalbergur
Þórarinsson hafði tryggt sér fyrsta sætið, Haf-
steinn Guðnason annað sætið og Ingimundur
Ingimundarson það þriðja. Í kvennaflokki var
það heimakonan Eydís Eyjólfsdóttir í fyrsta sæti,
Álfheiður Einarsdóttir í öðru sæti en Jytta Juul í
því þriðja.
Metþátttaka var á Íslandsmótinu, enda blíð-
skaparveður. Til leiks voru skráðir 94 keppendur
frá ellefu félögum og komu sumir langt að á þetta
skemmtilega og spennandi mót. Allar félags-
miðstöðvar eða aðrir staðir um allt land þar sem
aldraðir æfa pútt gátu sent keppendur eða lið á
mótið. Flestir keppenda eru gamlar kempur úr
ungmennafélagshreyfingunni.
Keppendur voru á ýmsum aldri og var sá elsti 95
ára gamall. Mótið var keppni á milli einstaklinga,
karla og kvenna, en einnig var boðið upp á liða-
keppni og voru fjórir í hverju liði. Sveit Pútt-
klúbbs Suðurnesja sigraði í sveitakeppni á 199
höggum, og voru átta höggum á undan næstu
sveit. Sveitina skipa Aðalbergur Þórarinsson,
Hafsteinn Guðnason, Hákon Þorvaldsson og
Guðbrandur Valtýsson. Púttklúbbur Suðurnesja
átti veg og vanda að mótshaldinu í samstarfi við
FÁÍA.
Úrslit réðust í spennandi bráðabana á Íslandsmóti í pútti
●● Fjömennasta●mótið●sem●hefur●verið●haldið●á●landsvísu