Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.08.2016, Side 26

Víkurfréttir - 25.08.2016, Side 26
26 fimmtudagur 25. ágúst 2016VÍKURFRÉTTIR Leikur, söngur, sjálfsstyrking hópefli, glens og gaman Skráning fer fram á www.gargandisnilld.is Takmarkaður fjöldi þátttakenda á hvert námskeið Aldursskiptir hópar Kennt er 1x í viku, hver tími er 90 mínútur, í 7 vikna lotu á miðvikudögum í Frumleikhúsinu Námskeiðið hefst 7. september Leiðbeinendur: Guðný Kristjánsdóttir og Halla Karen Guðjónsdóttir í samstarfi við Leikfélag Keflavíkur Verð 15.000 kr. Nánari upplýsingar í síma 8691006/6903952 Gargandi gleði í Frumleikhúsinu Leiklistarnámskeið í samstarfi við Leikfélag Keflavíkur Framundan er prófkjör Sjálfstæðis- flokksins í Suðurkjördæmi sem fram fer 10.september. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, hefur verið oddviti flokksins í gegnum tvennar kosningar. Á þeim tíma hefur staða flokksins í kjördæminu styrkst. Ragn- heiður hefur boðið fram krafta sína til að leiða flokk- inn í kjördæminu í þriðja sinn og er mikilvægt að Sjálf- stæðismenn standi saman og veiti henni afgerandi kosn- ingu í prófkjörinu til að leiða flokkinn áfram. Þrátt fyrir að Ragnheiður sé lang yngsti frambjóðandinn sem hefur boðið sig fram til að leiða listann er hún reynslumest þeirra allra. Ragnheiður hefur setið 9 ár á þingi en aðeins verið ráðherra síðustu 3 árin. Áður en hún tók sæti á alþingi var hún aðstoðarmaður fjármálaráðherra, utanríkisráðherra og síðan forsætis- ráðherra, samtals í 9 ár, þannig að í raun hefur hún reynslu af störfum ríkisstjórnar og þings síðustu 18 ár. Fáir hafa jafn víðtæka reynslu. Slík reynsla er þó afar mikilvæg og vegur þungt þegar horft er til þeirra ein- staklinga sem gætu sest í ráðherrastól að loknum kosningum, ef flokkurinn verður í stöðu til þess eftir 29.október. Sjálfstæðisflokkurinn verður jafn- framt að horfa til þess að tryggja sem jafnasta stöðu kvenna og karla í fram- boði. Af sex ráðherrum flokksins eru tvær konur sem báðar bjóðast til að leiða framboðslista í næstu kosn- ingum. Við þurfum að veita þeim brautargengi til þess. Athyglisvert er að heyra andstæðinga Sjálfstæðis- flokksins reyna að úthrópa kvenráðherrum flokksins, í þeirri von að þær verði felldar í næsta prófkjöri. Þessir sömu aðilar yrðu fyrstir til þess að hrópa að konur ættu litla von um framgang innan flokksins ef svo færi. Sjálfstæðismenn mega ekki láta úrtölur og neikvæðni stuðningsmanna annarra flokka hafa áhrif á val sitt. Ragnheiður er glæsileg kona. Hún hefur verið fyrirmynd fjölmargra ungra kvenna sem vilja hasla sér völl í forystu, hvort sem er í atvinnulífinu eða stjórnmálum. Hún hefur, sem ráðherra atvinnumála, verið hvetjandi og stutt dyggilega við fjölmarga frumkvöðla sem á síðustu árum hafa reynt að hasla sér völl við nýsköpun, framleiðslu og þróun. Sjálf þekki ég persónulega nokkra sem hafa ákveðið að berjast áfram, vinna meira og þrauka lengur vegna hvatningar frá Ragnheiði og uppskorið árangur og betri tíð í kjölfarið. Ég hvet alla Sjálfstæðismenn í Suður- kjördæmi til þess að tryggja Ragnheiði 1. sætið í prófkjörinu 10.september. Ragnheiður Elín í 1. sæti Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir LESANDI VIKUNNAR Hvaða bók ertu að lesa núna? Ég var að ljúka við Endurkomuna eftir Ólaf Jóhann Ólafsson og bókin er snilld! En núna er ég að lesa tvær bækur, spennu- söguna 3 sekúndur eftir höfundana Röslund & Helström og bókina Viðrini veit ég mig vera - Megas og dauðasyndirnar eftir Óttar Guð- mundsson. Hver er þín eftirlætis bók? Góði dátinn Svejk. Aðalpersónan er svo skemmtileg og hann hefur svo sérstaka sýn á lífið. Það er líka mjög áhugavert hvernig sögunni framvindur. Hver er eftirlætis höfundurinn þinn? Pablo Neruda, Isabel Allende, Steinn Steinarr (ég hvet fólk að kíkja á safnið um hann, Steinshús) og Jónína Leosdóttir sem ég uppgötvaði því miður allt of seint, hún er frábær. Hvernig bækur lestu helst? Ég les eiginlega allt; skáldsögur, ljóðabækur, fræðibækur, spennusögur og ævintýri. Ég les síst ævisögur, það þarf að vera eitthvað alveg sérstakt til að ég nenni að lesa þær. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Ferðabókin Kjölfar kríunnar eftir hjónin Unni Jökulsdóttur og Þorbjörn Magnús- son. Einnig nefni ég ljóðabálkinn Cartas de amor eftir Pablo Neruda. Mér þykir samt erfitt að tilgreina einhverjar ákveðnar bækur. Það er auðvitað fullt af bókum sem ég hef lesið sem hafa haft einhvers konar áhrif á mig eða vakið mig til um- hugsunar, jafnvel þó að maður átti sig ekki sérstaklega á því. Hvaða bók ættu allir að lesa? Ég held að allir hefðu gott af því að gleyma sér aðeins í heimi Harry Potter. Það er erfitt annað en að hafa gaman af þessum bókaflokki, óháð aldri lesenda. Hvar finnst þér best að lesa? Heima! Hvaða bækur standa upp úr sem þú vilt mæla með? Endurkoman eftir Ólaf Jóhann Ólafsson, Kirkja hafsins eftir Ildefonso Falcones, Eyjan undir hafinu eftir Isabel Al- lende, Konan í blokkinni eftir Jónínu Leósdóttur og Eragon bókaflokkurinn. Uppgötvaði rithöfundinn Jónínu Leósdóttur allt of seint Ottó Þórðarson lögreglumaður er Lesandi vikunnar hjá Bókasafni Reykjanesbæjar TÖLVUNNI SNJALLSÍMANUM SPJALDTÖLVUNNI VF.IS Í NÝJUM FÖTUM FYLGSTU MEÐ Í...

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.