Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.08.2016, Side 29

Víkurfréttir - 25.08.2016, Side 29
29fimmtudagur 25. ágúst 2016 VÍKURFRÉTTIR ÞJÓNUSTUFULLTRÚI Í BÍLALEIGU Í KEFLAVÍK Thrifty Car Rental, bílaleiga Brimborgar, leitar að röskum og jákvæðum starfsmanni í starf þjónustufulltrúa á starfsstöðvar í Keflavík. Skemmtilegt og krefjandi starf í líflegu umhverfi. Stutt lýsing á starfi: • Afhending bíla til erlendra sem innlendra viðskiptavina og móttaka við leiguskil • Upplýsingagjöf og sala þjónustu • Skráning bókana • Skutl viðskiptavina til og frá starfstöð Hæfniskröfur: • Stúdentspróf og/eða reynsla af sambærilegu starfi • Hæfni í tölvunotkun • Gilt bílpróf og vera jafnvíg(ur) á beinskiptan og sjálfskiptan bíl • Framúrskarandi þjónustulund • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta Unnið er á vöktum 06:00-18:00 og frá 18:00-06:00 (5/4). Nánari upplýsingar um starfið má finna á www.brimborg.is (laus störf). Umsóknarfrestur er til 4. september 2016 SÆKTU UM NÚNA Þjónustufulltrúi_Bílaleiga__KEF_Víkurfréttir_99x200_20160823.indd 1 23.8.2016 13:09:26 VILTU VERA TÚLKUR? Túlka- og þýðingaþjónustan Interlingual óskar eftir samfélagstúlkum til að vera á skrá. Gerð er krafa um góð tök á íslensku og a.m.k. einu erlendu tungumáli. Ekki skiptir máli hvort viðkomandi hafi íslensku eða erlent tungumál að móðurmáli. Sérstaklega er leitað eftir fólki sem búsett er á Suðurnesjum. Reynsla er mikill kostur, en ekki skilyrði. Frekari upplýsingar eru veittar í síma 774 7500. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið interlingual@interlingual.is Nafn og hvenær varstu við nám í FS? Ég lauk stúdentsprófi af Viðskipta- fræðibraut FS jólin 1985 og hóf svo nám við Háskóla Íslands og lauk Cand. Oecon gráðu í viðskiptafræðum 1991. Á síðasta ári lauk ég síðan sér- stöku AMP stjórnenda námi frá IESE viðskiptaháskólanum í Barcelona. Hvað hefurðu verið að gera síðan þú útskrifaðist úr FS? Ég hóf störf fyrir Íslandsbanka strax eftir útskrift og hef komið að ýmsu innan bankans á þessum tíma, starfað almennt að viðskipta- og lánastjórnun, var útibússtjóri útibúsins hér í Reykja- nesbæ í 8 ár eða frá árinu 1999-2007, en eftir það varð ég framkvæmdastjóri útibúasviðs bankans og tók síðan við árið 2008 sem framkvæmdastjóri við- skiptabankasviðs Íslandsbanka. Hvað stendur upp úr þegar þú horfir til baka? Árin mín í Fjölbrautaskóla Suðurnesja voru bæði skemmtileg ár og eftir- minnileg, hæfileg blanda af öguðu námi, menningu, fjöri og fíflagangi, en fyrst og síðast undirbúningi undir lífsins alvöru. Ég var eins og margir mjög virk í félagslífi og sat í nem- endastjórn. Góður skóli þarf að hafa gott félagslíf og fjölbreytt, sérstaklega mikilvægt á menntaskólaárunum. Viltu deila með okkur eftirminni- legum minningum úr gamla skól- anum þínum? Það sem var allra eftirminnilegast í mínum huga þessi ár í FS voru kennar- arnir. Ég vil meina að á þessum árum hafi verið einstaklega sterkur kenn- arahópur, fjölbreyttur og hvetjandi. Tímarnir í Njálssögu hjá Jóni Böðv- arssyni skólameistara sem er maður sem maður gleymir aldrei, eða stærð- fræðitímarnir hjá Gísla Torfa, en þó sérstaklega skrautskrifaðar umsagnir hans á próf og verkefni og hafði þann- ig áhrif á mann að maður vildi drífa sig í næsta verkefni og fá fleiri um- sagnir. Hjálmar Árna, Björn Örvar, Rósa, Unnur Þorsteins, Ægir Sigurðs, Maja Loebell o.fl. allt frábærir kenn- arar sem undirbjuggu nemendur sína vel fyrir lífsins göngu. Hvernig fannst þér FS búa þig undir það nám sem þú fórst í? Ég hef ávalt verið mjög stoltur FS- ingur og þreytist aldrei á að segja frá þessum frábæru árum mínum í skól- anum. Ekki var ég vör við það ég eða skólafélagar mínir sem fórum áfram í framhaldsnám værum ver undir- búnari, ef svo var þá var það unnið upp með dugnaði og krafti. Eitthvað sem stendur upp úr þegar þú horfir til baka? Get ekki látið það vera að minnast þess að eitt af því skemmtilega sem við gerðum þarna fyrir rétt rúmum 30 árum, var að gefa út NFS skólabókina. Það er ekki ósjaldan sem maður flettir í þessum tveimur bókum sem voru gefnar út á árunum 1982-1985. Þarna eru myndir af öllum skólafélögunum, myndir úr félagslífi og dagsins önn á þessum árum í skólanum. Hjálpar manni að rifja upp og muna árin í FS eða eins og sagt er í fyrsta for- mála bókarinnar: „Það er vonandi að skóladagbókin eigi eftir að ylja vamb- miklum og rasssíðum gamalmennum, þegar sest er að áliðnu ævikvöldi við arinn minninganna og litið um öxl“, svo sannarlega orð með sönnu. Þarna var skólinn bara um 10 ára, nú er hann 40 ára og ég 30 árum síðar, er svo þakklát að geta flett upp í minning- unum frá þessum árum. Óska Fjöl- brautaskóla Suðurnesja til hamingju með árin 40 og þakka jafnframt fyrir mig. Uppáhalds náttúruperla á Suðurnesjum? Svarið er einfalt í mínum huga, það er Garðskaginn, algjör perla og í sér- stöku uppáhaldi hjá minni föðurfjöl- skyldu og ljóst að Garðskaginn er og mun draga enn frekar til sín, jafnt Ís- lendinga sem ferðamenn. ELDRI FS-INGUR ■ Í haust mun Fjölbrautaskóli Suðurnesja fagna 40 ára afmæli sínu og til stendur að halda uppá daginn 24. september næstkomandi. Fjölbrauta- skóli Suðurnesja, eða FS, hefur í gegnum árin boðið uppá fjölbreyttar námslínur og því alið af sér einstaklinga sem sinna hinum ýmsu störfum atvinnulífsins, bæði hérlendis og erlendis. Því er vel við hæfi að leita uppi gamla FS-inga og forvitnast um hvað á daga þeirra hefur drifið. Sumir þeirra luku stúdensprófi frá skólanum, aðrir luku iðnmenntun en enn aðrir komu við í skemmri tíma. Fram að afmælinu ætlum við að leita uppi gamla FS-inga. Þreysti ekki á að segja frá frábærum árum í FS Una Steinsdóttir, 40 ÁRA Óskast 70 ára kona bráðvantar íbúð ekki seinna en strax. Er reglusöm og skil- vísum greiðsum heitið. Upplýsingar 8618311. Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnu- kirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84 Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ sími 421 7979 www.bilarogpartar.is SMÁAUGLÝSINGAR ATVINNA Blaðberi óskast til að bera út Morgunblaðið í Innri-Njarðvík og Ytri Njarðvík. Upplýsingar gefur Kristrún í síma 862 0382. ■ Sveitarfélaginu Vogum hefur borist nokkrar ábendingar og kvartanir vegna ónæðis af flugumferð og var fjallað um málið á síðasta fundi bæjarráðs sem fram fór í gær, miðvikudag. Sveitarstjórninni hefur einnig borist afrit frá einum íbúa af bréfi hans til Ísavia ohf., um neikvæð áhrif flugumferðar í þétt- býli sveitarfélagsins, þar sem bréfritari vonast til að tekið verði undir erindið og því fylgt eftir við rétt stjórnvöld. Í fundargerð bæjarráðs kemur fram að erindið, ábendingarnar og kvartanirnar hafi verið lagðar fram. Bæjarráð tekur undir kvartanir íbúa sveitarfélagsins, og beinir því til Isavia ohf. að flugumferð um Keflavíkurflugvöll verði eftir föngum beint á þær flugbrautir vallarins sem valda íbúum sveitarfélagsins minnstu ónæði, sérstaklega að næturlagi. Íbúar í Vogum kvarta vegna hávaða frá flugumferð SJÓNVARP V ÍKURFRÉTTA NÝR ÞÁTTUR Í HVERRI VIKU INNÁ WWW.VF.IS/VEFTV SJÁÐ’ANN Í HÁSKERPU Í TÖLVUNNI, SPJALDTÖLVUNNI EÐA SÍMANUM ÞÍNUM!

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.