Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.08.2016, Side 30

Víkurfréttir - 25.08.2016, Side 30
30 fimmtudagur 25. ágúst 2016VÍKURFRÉTTIR Þátttakendur á skotvopnanámskeiðum þurfa að skila inn sakavottorði, læknisvottorði og passamynd til skrifstofu sýslumanns fyrir námskeiðin. Læknisvottorðið þarf að vera sérstaklega útgefið vegna skotvopnaleyfis. Skotvopnanámskeið og veiðikortanámskeið Skráning og nánari upplýsingar á www.veidikort.is STAÐSETNING húsnæði Fimleikadeildar Keflavíkur VEIÐIKORTANÁMSKEIÐ 8. september kl. 17:00-23:00 SKOTVOPNAN BÓKLEGT 9.-10. september kl. 18-22 / 9-13 SKOTVOPN VERKLEGT Eftir það hjá Skotdeild Keflavíkur REYKJANESBÆR Veiðikortanámskeiðið kostar kr. 14.900 Skotvopnanámskeiðið kostar kr. 20.000 ALLIR Í KÖRFU Ængar heast 29. ágúst hjá yngri okkum körfuknattleiksdeildar UMFN Ængataan og skráning er á heimasíðu félagsins, www.umfn.is Nánari upplýsingar á netfanginu unglingarad.umfn@gmail.com Komdu í körfu - Unglingaráð KKD UMFN Jónas Þórhallsson man þá tíð þegar raunverulegur rígur ríkti milli norður- og suðurbæjar í Sandgerði. „Sagan segir að í kringum 1965 hafi verið að koma á markað prjónavélar sem gátu prjónað sokka. Ég man að það var ein saumakona á Brekkustíg í norður- bænum þar sem ég bjó og svo var önnur, Guðrún skólastjórafrú, sem prjónaði í suðurbænum. Ég veit ekki hvort að þetta var upphafið að þessu en menn fóru í það minnsta að búa til hverfalið í fótboltanum sem gjarnan klæddust mismunandi sokkum,“ rifjar Jónas upp. Enginn leikskóli og margir í fótbolta „Það var þarna blettur sem ól upp heila kynslóð í Sandgerði. Það var enginn leikskóli og þarna vorum við að leik fram yfir miðnætti á sumrin. Það var smá hlé þegar það var kallað í mat.“ Mikil gróska var í bænum í þessa tíð og urðu þarna til margir frambærilegir knattspyrnumenn sem seinna meir létu að sér kveða. Leikir á milli bæjarfélaganna tíðkuðust á þessum árum þar sem allt var lagt í sölurnar. „Þetta var ótrúlegt alveg í minningunni,“ segir Jónas sem fékk þá hugmynd að endurverkja leikinn árið 2008. Síðan þá hefur leikurinn farið fram á Sandgerðisdögum. Eftir leik er svo safnast saman og borðað og peningum safnað fyrir knattspyrnu- félagið Reyni. Segja mætti að þetta séu óformlegir endurfundir þeirra sem tengst hafa félaginu í gegnum tíðina. Jónas segir að norðurbær hafi verið sterkari fyrstu árin eftir að leikurinn var endurvakinn en síðustu ár hafi hallað á þann bæjarhluta þar sem öll uppbygging í Sandgerði á sér stað í suðurbænum. „Það skiptir öllu máli að hafa montréttinn þegar upp er staðið og menn eru stoltir yfir sigri í leikslok. Það er stutt í barnsandann og mikil gleði í þessum leikjum,“ bætir hann við. Þarna eru keppendur á öllum aldri sem reima á sig tak- kaskóna og það ætlar Jónas að gera á föstudaginn. „Það er ekki spurning um hverjir sigra á föstudaginn, það er norðurbærinn,“ segir Jónas og hlær. Förum illa með norðurbæingana Suðurbæingurinn Jón Bjarni Sigur- sveinsson telur að norðurbæingar hafi búið vel í gegnum árin með því að hafa mikla keppnismenn innan sinna raða. „Þeir hafa kannski verið að taka þetta með aðeins meiri alvöru en við,“ segir Jón léttur í bragði. „Ég er þó smeykur um að við förum illa með þá á föstudaginn,“ bætir hann við. „Það var mikill rígur í gamla daga. Ég man að frændi minn bjó alveg á mörk- unum en datt þó inn í norðurbæinn. Það var mikill rígur okkar á milli,“ segir Jón en hann telur að þessir leikir hafi verið sérstaklega þýðingar- miklir vegna þess að ekki var mikið um kappleiki á þessum tíma og því meira um að keppt hafi verið á milli bæjarhluta. Suðurbæingar eru nokkuð fleiri en þeir í norðri og hafa þeir því séð aumur á grönnum sínum og veitt þeim liðstyrk. „Það er nú vandamálið að byggðin er ekkert að stækka í norðri þannig að við höfum þurft að lána þeim menn til þess að jafna þetta út,“ segir Jón og hlær. Leikar hefjast klukkan 16:00 á föstudag og munu keppendur sem skráðu sig til leiks í vítaspyrnum hefja keppni. Þar næst fer fram leikur gæðinga, þar á eftir fara fram tveir leikir trippa og fola á sama tíma. Ættarmót fótboltans Í SANDGERÐI ●● Baráttan●um●bæinn●þegar●norðurbær●og●suðurbær●mætast● Mikilvægasti knattspyrnuleikur ársins í Sandgerði fer jafnan fram á Sandgerðisdögum. Ekki er um að ræða leik hjá Reynis- mönnum heldur eru það hverfin sem etja kappi. Keppni milli bæjarhluta í fótbolta á árum áður þótti stórviðburður og æfðu menn á grasblettum um allan bæ þar sem grasrót framtíðar Reynismanna varð til. Stofnuð voru hverfalið í Sandgerði á sínum tíma. Í norðurbæ var það Vír Football Club sem réð ríkjum en Elding United hélt merkjum suðurbæjar á lofti. Auglýsingasíminn er 421 0001

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.