Víkurfréttir - 25.08.2016, Page 30
30 fimmtudagur 25. ágúst 2016VÍKURFRÉTTIR
Þátttakendur á skotvopnanámskeiðum þurfa að skila inn
sakavottorði, læknisvottorði og passamynd til skrifstofu
sýslumanns fyrir námskeiðin. Læknisvottorðið þarf að vera
sérstaklega útgefið vegna skotvopnaleyfis.
Skotvopnanámskeið
og veiðikortanámskeið
Skráning og nánari upplýsingar á www.veidikort.is
STAÐSETNING húsnæði Fimleikadeildar Keflavíkur
VEIÐIKORTANÁMSKEIÐ 8. september kl. 17:00-23:00
SKOTVOPNAN BÓKLEGT 9.-10. september kl. 18-22 / 9-13
SKOTVOPN VERKLEGT Eftir það hjá Skotdeild Keflavíkur
REYKJANESBÆR
Veiðikortanámskeiðið kostar kr. 14.900
Skotvopnanámskeiðið kostar kr. 20.000
ALLIR Í KÖRFU
Ængar heast 29. ágúst
hjá yngri okkum
körfuknattleiksdeildar UMFN
Ængataan og skráning er á
heimasíðu félagsins, www.umfn.is
Nánari upplýsingar á netfanginu
unglingarad.umfn@gmail.com
Komdu í körfu - Unglingaráð KKD UMFN
Jónas Þórhallsson man þá tíð þegar
raunverulegur rígur ríkti milli norður-
og suðurbæjar í Sandgerði. „Sagan
segir að í kringum 1965 hafi verið að
koma á markað prjónavélar sem gátu
prjónað sokka. Ég man að það var
ein saumakona á Brekkustíg í norður-
bænum þar sem ég bjó og svo var
önnur, Guðrún skólastjórafrú, sem
prjónaði í suðurbænum. Ég veit ekki
hvort að þetta var upphafið að þessu
en menn fóru í það minnsta að búa til
hverfalið í fótboltanum sem gjarnan
klæddust mismunandi sokkum,“
rifjar Jónas upp.
Enginn leikskóli og
margir í fótbolta
„Það var þarna blettur sem ól upp
heila kynslóð í Sandgerði. Það var
enginn leikskóli og þarna vorum við
að leik fram yfir miðnætti á sumrin.
Það var smá hlé þegar það var kallað
í mat.“ Mikil gróska var í bænum í
þessa tíð og urðu þarna til margir
frambærilegir knattspyrnumenn sem
seinna meir létu að sér kveða. Leikir
á milli bæjarfélaganna tíðkuðust á
þessum árum þar sem allt var lagt í
sölurnar. „Þetta var ótrúlegt alveg í
minningunni,“ segir Jónas sem fékk
þá hugmynd að endurverkja leikinn
árið 2008. Síðan þá hefur leikurinn
farið fram á Sandgerðisdögum. Eftir
leik er svo safnast saman og borðað og
peningum safnað fyrir knattspyrnu-
félagið Reyni. Segja mætti að þetta séu
óformlegir endurfundir þeirra sem
tengst hafa félaginu í gegnum tíðina.
Jónas segir að norðurbær hafi verið
sterkari fyrstu árin eftir að leikurinn
var endurvakinn en síðustu ár hafi
hallað á þann bæjarhluta þar sem öll
uppbygging í Sandgerði á sér stað í
suðurbænum. „Það skiptir öllu máli
að hafa montréttinn þegar upp er
staðið og menn eru stoltir yfir sigri í
leikslok. Það er stutt í barnsandann
og mikil gleði í þessum leikjum,“
bætir hann við. Þarna eru keppendur
á öllum aldri sem reima á sig tak-
kaskóna og það ætlar Jónas að gera á
föstudaginn. „Það er ekki spurning
um hverjir sigra á föstudaginn, það er
norðurbærinn,“ segir Jónas og hlær.
Förum illa með norðurbæingana
Suðurbæingurinn Jón Bjarni Sigur-
sveinsson telur að norðurbæingar hafi
búið vel í gegnum árin með því að
hafa mikla keppnismenn innan sinna
raða. „Þeir hafa kannski verið að taka
þetta með aðeins meiri alvöru en við,“
segir Jón léttur í bragði. „Ég er þó
smeykur um að við förum illa með
þá á föstudaginn,“ bætir hann við.
„Það var mikill rígur í gamla daga. Ég
man að frændi minn bjó alveg á mörk-
unum en datt þó inn í norðurbæinn.
Það var mikill rígur okkar á milli,“
segir Jón en hann telur að þessir
leikir hafi verið sérstaklega þýðingar-
miklir vegna þess að ekki var mikið
um kappleiki á þessum tíma og því
meira um að keppt hafi verið á milli
bæjarhluta. Suðurbæingar eru nokkuð
fleiri en þeir í norðri og hafa þeir því
séð aumur á grönnum sínum og veitt
þeim liðstyrk. „Það er nú vandamálið
að byggðin er ekkert að stækka í
norðri þannig að við höfum þurft að
lána þeim menn til þess að jafna þetta
út,“ segir Jón og hlær. Leikar hefjast
klukkan 16:00 á föstudag og munu
keppendur sem skráðu sig til leiks í
vítaspyrnum hefja keppni. Þar næst
fer fram leikur gæðinga, þar á eftir
fara fram tveir leikir trippa og fola á
sama tíma.
Ættarmót fótboltans
Í SANDGERÐI
●● Baráttan●um●bæinn●þegar●norðurbær●og●suðurbær●mætast●
Mikilvægasti knattspyrnuleikur ársins í Sandgerði fer jafnan fram á Sandgerðisdögum. Ekki er um að ræða leik hjá Reynis-
mönnum heldur eru það hverfin sem etja kappi. Keppni milli bæjarhluta í fótbolta á árum áður þótti stórviðburður og æfðu menn
á grasblettum um allan bæ þar sem grasrót framtíðar Reynismanna varð til. Stofnuð voru hverfalið í Sandgerði á sínum tíma. Í
norðurbæ var það Vír Football Club sem réð ríkjum en Elding United hélt merkjum suðurbæjar á lofti.
Auglýsingasíminn er
421 0001