Víkurfréttir - 25.08.2016, Síða 31
31fimmtudagur 25. ágúst 2016 VÍKURFRÉTTIR
FÓTBOLTASNILLINGUR VIKUNNAR
Aldur/félag?
11 ára og spila með Keflavík.
Hvað hefur þú æft fótbolta lengi?
Ég hef æft í tvö ár.
Hvaða stöðu spilar þú?
Ég er framherji.
Hvert er markmið þitt í fótbolta?
Að komast í meistaraflokk í Keflavík og
spila með landsliðinu.
Hversu oft æfir þú á viku?
Ég æfi fjórum sinnum á viku á sumrin
og þrisvar sinnum á viku á veturna.
Hver er þinn eftirlætis
fótboltamaður/kona?
Uppáhaldsfótboltamaðurinn minn er
Ronaldo.
Áttu þér einhverja
fyrirmynd í boltanum?
Kolbeinn Sigþórsson og Gylfi Sigurðs-
son.
Hefurðu farið á fótboltaleik erlendis?
Nei ekki enn en stefni á að sjá Arsenal
næsta sumar.
Hversu oft getur þú haldið á lofti?
33.
Hvaða erlenda félag heldur þú upp á?
Barcelona og Arsenal
Ísak Þór Place er fótboltasnillingur vikunnar
RONALDO
ER Í UPPÁHALDI
Til fundar við
forystumann
Páll Magnússon býður sig fram
til forystu á lista sjálfstæðismanna
í Suðurkjördæmi í prófkjöri
10. september 2016.
Hann boðar til fundar
í Hljómahöllinni
fimmtudaginn 25. ágúst
kl. 20.00.
Fundurinn er opinn
og allir velkomnir.
■ Kraftlyftingafólkið í Massa í Reykjanesbæ fær hrós frá fulltrúa evrópska kraftlyftingasambandsins og varaforseta
alþjóða kraftlyftingasambandsins vegna Evrópumeistaramótsins í bekkpressu, sem fram fór í íþróttahúsinu í Njarð-
vík um helgina.
Í lokahófinu talaði fulltrúinn um það að nýir staðlar hefðu verið settir í mótsumgjörðinni.
„Keppendur, þjálfarar, dómarar og embættisfólk víðsvegar frá Evrópu hrósaði Massafólki fyrir vel unnin störf og frábært
mót í alla staði,“ skrifar Sturla Ólafsson á fésbókarsíðu Massa þar sem hann kemur þökkum til heimamanna eftir að kraft-
lyftingamótinu lauk.
Massafólki hrósað fyrir móts-
umgjörð á EM í bekkpressu
Þrír Suðurnesjamenn í hópi Heimis
■ Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari í knattspyrnu hefur tilkynnt um fyrsta leikmannahóp sinn sem mætir
Úkraínu í Kiev þann 5. september, en leikurinn er fyrsti leikur Íslands í undankeppni HM. Suðurnesjamennirnir
Arnór Ingvi Traustason, Alfreð Finnbogason og Ingvar Jónsson eru allir hópnum. Allir voru þeir hluti af EM hóp
Íslands sem fór til Frakklands undir stjórn Lars Lågerback og Heimis.
Tveir Suðurnesjamenn eru í hóp Íslenska U-21 árs landsliðsins í knatt spyrnu karla sem leik ur tvo mik il væga leiki
í undan keppni EM 2017 í byrj un sept em ber. Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson sem leikur með Gautaborg er í
hópnum og sömuleiðis Grindvíkingurinn Daníel Leó Grétarsson sem leikur með Álasund í Noregi.