Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.03.2007, Page 18

Víkurfréttir - 15.03.2007, Page 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 11. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR Þeir sem vilja hætta að reykja, nota munntóbak og minnka eða hætta notkun nikótínlyfja, geta nú leitað til lyfjaverslunar Lyf og heilsu sem nýverið hóf að bjóða upp á sérhæfða, einstaklings- bundna ráðgjöf og eftirfylgni. Markmið Lyf og heilsu með þessari þjónustu er að auka lífs- gæði landsmanna og taka þátt í forvarnarstarfi. Tóbaksnotkun er ein alvarlegasta ógn nútímans við heilbrigði einstaklinga en að meðaltali deyr einn Íslendingur á dag af völdum reykinga. Að sögn Ásgeirs Ásgeirssonar, lyfjafræðings hjá Lyf og heilsu í Reykjanesbæ byggist ráðgjöfin á einstaklingsviðtölum með ráð- gjöf og fræðslu þar sem fjallað er m.a. um áhrif tóbaks á lík- amann og hvaða ráð hægt er að nota til að ná árangri í reyk- bindindi. Nikótínlyf duga verr ein og sér „Nikótínlyf gera vissulega gagn, en það hefur sýnt sig að þau ein og sér gagnast að tak- mörkuðu leyti. Það eru innan við 5% líkur á að þetta takist ef fólk ætlar að gera þetta með nikótínlyfjum eingöngu. Það þarf meira að koma til. Það hefur sýnt sig að um leið og viðkomandi sækir sér stuðning og fræðslu aukast líkurnar á að þetta takist upp í 40%. En ník- ótínlyfin geta vissulega reynst vel á meðan verið að að kom- ast yfir erfiðasta hjallann,” segir Ásgeir. Hálfkák dugar ekki Það er ýmislegt annað sem taka verður með í reikninginn þegar fólk ætlar að hætta að reykja og eitt af því er vaninn. Reykinga- maðurinn hefur komið sér upp ýmsum venjum og athöfnum sem tengjast því að kveikja sér í sígarrettu. Þessar venjur og at- hafnir þarf því að skoða með öðru hugarfari, en hugarfarið er einmitt lykilinn að því að fólki takist að hætta. Ásgeir segir að ef árangur eigi að nást þurfi að taka einlæga ákvörðun um að hætta. Þar dugi ekkert hálfkák, s.s að ætla bara að reyka við hátíðleg tækifæri, reykja bara þegar farið er út að skemmta sér og annað í þeim dúr. Annað hvort er að hætta eða ekki. „Það hefur komið fyrir að ég hef sent fólk heim og sagt því að koma aftur þegar það er tilbúið til að hætta. Á hinn bóginn hvet ég fólk til að gefast ekki upp þó það falli, því hver reyklaus dagur skiptir nefnilega máli,” segir Ásgeir. Líka fyrir þá sem vilja minnka notkun nikótínlyfja Athygli vekur að námskeiðið er líka fyrir þá sem vilja minnka eða hætta notkun nikótinlyfja en aðspurður segir Ásgeir mörg dæmi um það að fólk sé að nota þau löngu eftir að drepið var í síðustu sígarettunni. Notkun nikótínlyfja er fyrst og fremst hugsuð sem hjálpartæki á meðan verið að komast yfir erf- iðasta hjallann en dæmi eru um að fólk verði háð þeim. Dæmi eru um að fólk segist ekki þora að hætta notkun þeirra af ótta við þyngdaraukningu. Hugsan- leg þyngdaraukning er einmitt nokkuð sem margur reykinga- maðrinn notar sem réttlætingu fyrir því að hætta ekki að reykja. Óttinn við þyngdina „Það hægist á efnaskiptum um 10% sem hljómar kannski ekki að vera mikið en við erum að tala um 1-2 kíló á ári. Við förum yfir þetta í ráðgjöfinni, fjöllum um hollt mataræði og gildi hreyfingar. Til að koma í veg fyrir þyngdaraukningu þarf að skera aðeins niður orku- inntökuna, þ.e. að fækka hita- einingum. Ef við miðum við fimmtugan reykingamann sem situr við skrifborð allan daginn, þá brennir hann um 2500 hita- einingum á dag. Hann hefur kannski komist upp með að inn- byrða 2700 hitaeiningar á dag út af reykingunum. Hann þarf því að að fara niður í 2400 hita- einingar á dag til að hafa þetta í lagi. Það er þó ekkert stórátak, við erum kannski ekki tala um nema tvær brauðsneiðar á dag,” segir Ásgeir. Þeir sem vilja nýta sér ráð- gjöfina hjá Lyf og heilsu geta pantað tíma í síma 421 3200. Ásgeir Ásgeirsson og Ásta Stefánsdóttir í Lyf og heilsu hjálpa reykingafólki á Suður- nesjum að sigrast á nikótínfíkninni. VF-mynd: elg Fólk aðstoðað til að hætta reykingum Lyf og heilsa býður upp á nýja þjónustu: ELLERT GRÉTARSSON VEFGALLERY www.eldhorn.is/elg

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.