Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.10.2007, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 04.10.2007, Blaðsíða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 40. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR SANDGERÐISBÆR Auglýsing á tillögum að deiliskipulagi Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar auglýsir hér með tillögur að deiliskipulagi skv. 25. gr. laga nr. 73/1997 m.s.br. 1. Vesturbakki Skipulagssvæðið afmarkast af Strandgötu til austurs, Eyrargötu til suðurs, Sjávarbraut og fjöru neðan hennar til vesturs og lóð Hafnarstrætis 1 til norðurs. Deiliskipulagstillagan felur m.a. í sér skilgreiningu nýrra lóða fyrir verslun, þjónustu og hafnsækna starfsemi með möguleika á íbúðum á efri hæð meðfram Sjávarbraut og fjörugarði, útfærslu aðkoma frá hafnarsvæðinu að núverandi lóðum um Sjávarbraut og gönguleiðar (hafnarstígs) meðfram hafnarbakka. 2. Norðursvæði Skipulagssvæðið afmarkast af Strandgötu til austurs og norðurs að Vitatorgi, Norðurgarði og höfninni. Í vestur og suður afmarkast svæðið af Norðurgarði og Suðurgarði og fjörunni sunnan við Hafnargötuna. Deiliskipulagstillagan felur m.a. í sér nýjar lóðir við Hafnargötu og sunnan fiskmarkaðar, skilgreiningu umferðarleiða milli íshúss, hafnar og fiskimarkaðar ásamt aðkomum að nýjum og núverandi lóðum, útfærslu gönguleiðar (hafnarstígs) meðfram hafnarbakka, hafnartorgs sunnan Vitatorgs. Tillögurnar verða til sýnis á bæjarskrifstofum í Vörðunni á Miðnestorgi 3, frá 2. október til 31. október. Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til og með 13. nóvember. Skila skal skriflegum athugasemdum á bæjarskrifstofur Sandgerðisbæjar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir. Skipulagsfulltrúi Hugmyndir eru uppi um að setja Fasteign ehf. á almennan markað. Samkvæmt sex mánaða uppgjöri fyrir þetta ár er bókfært verð heildareigna félagsins upp á tæpa 20 milljarða íslenskra króna. Sjá menn fyrir sér mikinn vöxt félagsins á næstu árum og að innan þriggja ára verði virði eigna um 40 milljarðar ís- lenskra króna. Hugmyndin gengur út á að skipta eignarhlutum í A- og B-hluta þannig að þeir sem hefðu yfir að ráða A-hlutum myndu hafa yfirráð í Fasteign en B-hlutar væru svokallaðir markaðshlutar, sem væru þá til sölu á markaði. Aðilar í Fasteign gætu breytt A-hlutum í B-hluta ef þeir kysu svo en myndu við það missa yfirráð í Fasteign. Málið kom fyrir bæjarráð Reykjanesbæjar nú fyrir helgi og var sameinast um tillögu Guðbrands Ein- arssonar, A-lista, um að leita umsagnar félagsmála- ráðuneytisins. Talsvert hefur verið tekist á í bæjarstjórn um hlut- deild Reykjanesbæjar í Fasteign ehf. og meirihluti sjálfstæðismanna löngum sætt harðri gagnrýni A-listans vegna þess. Rætt um að setja Fasteign á almennan markað

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.