Víkurfréttir - 11.10.2007, Side 31
31ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU Í BOÐI LANDSBANKANS VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR
Síðasta keppnin í Íslands-mótinu í ralli, Haustrall
BÍKR, var haldin á Djúpavatni
og Kleifarvatni laugardaginn
29. september. Sigurvegarar
rallsins urðu Suðurnesjamenn-
irnir Óskar Sólmundarson og
Valtýr Kristjánsson á Subaru
Impreza wrx á 56,53 mín og í
öðru sæti urðu Jón Hrólfsson
og Borgar Ólafsson á Subaru
Impreza sti á 57,54 mín.
Henning Ólafsson og Anna
Birna Björnssdóttir lentu í 3.
sæti í max1 flokki á tímanum
1.09.21, en þetta eru allt Suður-
nesjamenn.
Eknar voru 6 sérleiðar í mikilli
bleytu og djúpum pollum sem
voru ein til tvær bíllengdir. Öku-
menn sögðu þetta klárlega erf-
iðasta dagsrall sem haldið var
í sumar og virkilega krefjandi.
„Við komum oft á yfir 100 km
hraða í pollana og komum
þversum útúr þeim. Þetta var
virkilega erfitt.“
Þetta er í fyrsta skipti í 17 ár
sem Suðurnesjamenn vinna rall
á Íslandi, en árið 1990 unnu
Ólafur og Ingi, bræðurnir úr Bíl-
bót, alþjóðarall.
Suðurnesjaliðunum er spáð óvenju dræmu gengi í karlakörfunni á komandi tímabili, en
í árlegri könnun formanna, þjálfara og fyrirliða
er Grindvíkingum spáð bestu gengi eða þriðja
sæti. Í humátt þar á eftir koma Njarðvíkingar í
fjórða og Keflvíkingar í því fimmta. Meisturum
síðasta árs, KR, er spáð titlinum, en Snæfell-
ingum öðru sæti.
Í kvennakörfunni eru það Keflvíkingar sem þykja
sigurstranglegastar, enda hafa þær leikið geysivel
á undirbúningstímabilinu og þegar unnið tvo
titla, Powerade-bikarinn og Meistarakeppni KKÍ.
Þær fengu nær fullt hús stiga en meistarar Hauka
koma þar á eftir og svo Valur. Grindavík er svo
spáð fjórða sætinu.
Þessar spár eru að sjálfsögðu einungis til gamans
gerðar, en þær sýna vel hvernig innanbúðarfólki
finnst landið liggja í þessum efnum. Keflavíkur-
stúlkur eru vissulega sigurstranglegar. Þær hafa
misst sterka leikmenn frá fyrra ári, en hafa einnig
fengið aðra. Önnur lið hafa ekki náð að vinna upp
þá leikmenn sem þau misstu líkt og Haukar sem
misstu m.a. Helenu Sverrisdóttur, og Grindavík
sem missti Hildi Sigurðardóttur aftur heim til KR.
Í karlaflokki er erfitt að spá þó meistararnir hafi
fengið nokkra sterka leikmenn til sín, því öll liðin
í efstu fimm sætunum gætu unnið hvern sem er á
góðum degi. Grindavík styrkti sig fyrir tímabilið,
en Njarðvíkingar eru með gjörbreytt lið frá fyrra
ári og erfitt að spa fyrir um gengi þeirra. Það
sama má segja um Keflavík, sem eru nú með þrjá
erlenda leikmann innan sinna raða, en þeir gætu
komið öðrum liðum í opna skjöldu í upphafi
móts. Þó Hraðlestin hafi ekki sýnt sitt rétta andlit
undanfarin misseri, skal enginn voga sér að van-
meta þá.
Nýliðar Fjölnis í Iceland Express-deild kvenna fá
það erfiða verkefni að sækja
Keflvíkinga heim í fyrsta leik
vetrarins á laugardag.
Keflavíkurstúlkur sigruðu í
Meistarakeppni KKÍ um helg-
ina og þær eru til alls líklegar.
Er því hætt við að þessi leikur
verði algert skylduverkefni og
Fjölnisstúlkur muni ekki sjá
til sólar í leiknum.
Jón Eðvaldsson, þjálfari Kefla-
víkur, segir að það sé augljóst
hvort liðið sé sigurstrang-
legra. „Það er alveg ljóst að ef
bæði lið leika af eðlilegri getu
þá ætti þetta að verða sigur
fyrir okkur. Það er alveg klárt.
Ég sé ekki að önnnur lið fari
að ógna okkur ef við höldum
áfram á þeirri siglingu sem
við erum!“
Hópurinn hjá Jóni er minni
en hann var í fyrra, en hann
nýtur þess að það eru margir
leikmenn sem geta lagt sitt af
mörkum og það gæti verið lyk-
ill að því að fá bikarinn aftur
heim.
Þá mæta Grindvíkingar
Hamri á sama tíma, en
Grindvíkingar urðu fyrir
mikilli blóðtöku frá síðasta
vetri þar sem Tamara Bowie
og Heildur Sigurðardóttir hafa
leitað á önnur mið.
Kristján Guðmundsson, þjálfari knattspyrnuliðs
Keflavíkur, hefur framlengt
samning sinn
við félagið um
tvö ár, eða til árs-
ins 2009. Hann
hefur þjálfað
liðið frá vorinu
2005 og náð góðum árangri
með það þó síðari hluti núlið-
ins tímablis hafi ekki verið eins
og best verður á kosið. Meðal
annars varð liðið Bikarmeistari
undir hans stjórn á síðasta ári.
Þá má geta þess að Vesna Smilj-
kovic, Danka Podovac og Jelena
Petrovic, serbnesku leikmenn
kvennaliðs Keflavíkur, hafa
framlengt samninga sína við
Keflavík til tveggja ára. Er það
mjög mikill fengur fyrir Keflavík
að hafa náð að tryggja sér krafta
þeirra næstu árin, en þær eru
meðal burðarása í liðinu. Vesna
hefur m.a. verið einn af skæð-
ustu framherjum deildarinnar
frá því að hún kom til liðsins
fyrir þremur árum.
Þær hafa nú snúið aftur til síns
heima en mæta galvaskar aftur
að ári.
Einni framlengdi knattspyrnu-
deild Keflavíkur samning sinn
við Danann Nicolai Jörgen-
sen, sem var einn af betri leik-
mönnum Keflavíkurliðsins á
nýliðinni leiktíð. Það er fagn-
aðarefni fyrir Keflvíkinga, því
orðrómur var á kreiki um að
önnur lið hér á landi hafi borið
víurnar í leikmaninn. Samning-
urinn er til tveggja ára.
Sameinað fyrirtæki Samhæfni í Reykjanesbæ og tölvuþjónusta Vesturlands skrifuðu á dögunum undir styrktarsamning við
knattspyrnudeild Keflavíkur.
Fyritækið er starfrækt bæði á Suðurnesjum og á Vesturlandi og
ákváðu forsvarsmenn fyrirtækisins að slá tvær flugur í einu höggi
í hálfleik á viðureign Keflavíkur og ÍA og skrifuðu undir styrktar-
samninga við bæði lið í einu.
Keflavíkurstúlkur
byrja gegn nýliðunum
Nýr leikmaður
Keflavíkur, Pálína
Guðmundsdóttir, sést
hér keyra að körfunni
gegn sínum gömlu
félögum í Haukum.
VF-mynd/Stefán
Keflvíkingar semja
við lykilmenn
-samkvæmt spá leikmanna og þjálfara
Keflavíkurstúlkur
endurheimta titilinn
Fulltrúar liðanna í kvennadeildinni.
VF-mynd/Stefán
Samhæfni styrkir Keflavík
Fulltrúar
félaganna
tveggja ásamt
eigendum
SAmhæfni/TV
Suðurnesjamenn gera
góða hluti í rallinu