Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.11.2007, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 22.11.2007, Blaðsíða 13
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 22. NÓVEMBER 2007 13STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Ei rík ur Árni er fædd ur 14. sept. 1943 og ólst hann upp í Kefla vík. Hann út skrif- að ist sem tón list ar kenn ari árið 1963 og hóf þá strax störf við tón list ar kennslu en hann hef ur kennt víða, m.a. í Sví þjóð, en við Tón- list ar skóla Reykja nes bæj ar hef ur hann kennt í rúma tvo ára tugi og er þar starf andi í dag. Hann hef ur ver ið öt ull liðs mað ur ungra tón list ar- manna við að að stoða þá við út setn ing ar allt frá dæg ur- lög um til klass ískra verka. Ei rík ur hef ur ekki að eins starf að sem tón list ar kenn ari og kór stjóri, m.a. með Karla- kór Kefla vík ur, held ur hef ur hann einnig ver ið virk ur tón smið ur. Árið 1983 fór Ei rík ur í tón smíða nám til Banda ríkj anna og Kanada og höf um við feng ið að njóta þess. Hann hef ur samið a.m.k. 5 sin fón í ur, strengja- kvar tetta, gít ar konsert, klar- inettu konsert, konsert fyr ir tvær flaut ur og strengja sveit, kór verk og org el verk. Mörg verka hans hafa ver ið flutt hér í bæj ar fé lag inu einnig hef ur Sin fón íu hljóm sveit Ís lands frum flutt verk eft ir hann oft ar en einu sinni. Ei rík ur lagði einnig stund á mynd list ar nám og kenndi mynd list jafn hliða tón list- ar kennsl unni og hef ur alla tíð ver ið virk ur mynd list ar- mað ur. Hann hef ur hald ið ótal mynd list ar sýn ing ar, bæði inn an lands og utan og skemmst er að minn ast sýn- ing ar sem hann hélt í Frakk- landi árið 2006 þar sem hann fékk mjög góða dóma. Vík ur frétt ir hafa í árarað ir stutt við menn- ing ar líf Reykja nes bæj ar með margs kon ar um fjöll un. Miðl ar fyr ir tæk is ins, fyrst að eins prent aða út gáf an og síð ar einnig vef ur inn og kap al sjón varp ið, hafa stað ið fólki opn ir með kynn ing ar og um fjöll un um menn ingu, list ir og mann líf. Fjöl marg ar frétta til kynn ing ar frá menn- ing ar stofn un um bæj ar ins, kór un um og öðr um menn ing- ar hóp um hafa ver ið birt ar án end ur gjalds þannig að íbú ar hafa feng ið að vita hvað fram und an er og einnig hafa blaða menn ver ið dug leg ir að skrifa frétt ir um merki- lega við burði eft ir að þeir hafa sleg ið í gegn og þannig stuðl að að því að gera menn- ing ar líf ið sýni legra og þar með öfl ugra. Einnig hafa Vík ur frétt ir oft ar en einu sinni lagt ein staka verk efni sér stakt lið með því að birta aug lýs ing ar án end ur gjalds og er þar skemmst að minn- ast þeg ar ungt fólk í Reykja- nes bæ setti upp söng leik inn Ösku busku í Frum leik hús- inu. Vík ur frétt ir kost uðu all ar aug lýs ing ar vegna sýn- ing anna, auk þess að leggja til leik skrá og vegg spjöld. Vík ur frétt ir hafa kapp kost að við að kynna alla stóra menn- ing ar við burði í sveit ar fé lag- inu s.s. Ljósa nótt á veg leg an hátt og í raun má segja að í gegn um Vík ur frétt ir megi lesa menn ing ar sögu svæð is- ins hin síð ari ár. Um sögn menn ing ar ráðs um Vík ur frétt ir Um sögn menn ing ar ráðs um Ei rík Árna Sig tryggs son EIGENDUR VÍKURFRÉTTA þau Páll Hilmar Ketilsson og Ásdís Björk Pálmadóttir með verðlaunagripinn, Súluna, sem keflvíska listakonan Elísabet Ásberg hannaði og smíðaði. FRAMVARÐASVEIT Víkurfrétta með Súluna, menningarverðlaun Reykjanesbæjar árið 2007. Frá vinstri: Hilmar Bragi Bárðarson fréttastjóri, Þorgils Jónsson blaðamaður, Páll Ketilsson ritstjóri, Ellert Grétarsson blaðamaður og Páll Orri Pálsson aðstoðarritstjóri Víkurfrétta. ÞÉTT HANDTAK Árna bæjarstjóra Sigfússonar þegar hann afhendir Eiríki Árna Sigtryggssyni Súluna í Bíósal DUUS-húsa í síðust viku. ÓVÆNT ÁNÆGJA fyrir Eirík Árna, þegar kennarar við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar fluttu eitt verka hans. SJÁ EINNIG VEFSJÓNVARP VÍKURFRÉTTA

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.