Dagsbrún - 01.01.1894, Blaðsíða 8

Dagsbrún - 01.01.1894, Blaðsíða 8
4 sé þ«J töluvert, sein þau eigi oftir ólært, en þau ætla, að það sé svo sem sjálfsagt, að þau geti lært það alt á þessum æðri skólum, sem þau eru að búa sig til að ganga á. En þegar þau eru Min að iæra alt á þeim skólum, sem lært verðr, þá fara augu þeirra að opnast og þ ui fara að sjá það, að með þessum afarmikla lærdómi, sem þau héldu að væri, hafa þau ekki lært alt, sem lært verðr, það fara að ljúkast upp á þeim augun fvrir því, að þótt þau séu nú búin að vera að nema í eiu 10—15 ár, þá eru þau þó ekki komin lengra en að því, að vita hvern- ig þau eiga að fara að nema. Þá fyrst geta þau.fariðað nema, ogefur því, sem árin safuast vfir þau, fylla þau huga sinn með einu og öðru af hinum svo kölluðu yísindum manna. En eftir . því sem lengra líðr á æfina og þau sökkva sér dýpra og dý.pra niðr í að nema og rannsaka og skoða, þá sjá þau, að það, sem þau hafa numið, er í sam- anburði við það, sem þau eiga ónumið, sem vatnsdropi einn á móti úthafssænum. Þarna sjáum vér þroskun (evolution) einstaklingsins, og eins og henni er varið, eins er varið þroskun mannkynsins. Fyrst verða fyrir oss spuruingarnar „hvaðan“ og ,,livert.“ Fyrst af öllu fara menn að hugsa um upprunann, hvaðan maðrinn og náttúr- an og heimrinn sé kominn, og hvernig hann sé til orðinn. Fyrst af öllu, þegar maðrinn var orðinn svo þroskaðr, að hann fór að beit-a skynseminni, kendi reynslan honum það, að hver afleiðing hlýtr að. hafa sína orsök. Hann sá það fljótt, að hann þurfti að framleiða með höndum sínum alt, sem hann þurfti sér til varnar og skýlis og þæg- inda. Svo fór hann að líta í kringum sig, og sá jörðina, með öllu því sem er og lifir á henni; hann sá fljótin og vötnin og sjóinu og skepnur þær sem í þeim lifa, og ljósin á himuum uppi, sólina, tungl- ið og stjörnurnar. Þær gengu brautir sínar og ýmist hurfu sjónuni hans, eða komu í ljós aftr. Hann sá fljótt, að það var langt umfram það, sem hann gat gjört, að búa þetta til eða stjórna því og balda þyí við, kom þá ósjálfrátt fram spurningin : „Hver hefir búið.þetta til í“ H .nn leitaði eftir svai'i, en það gekk eklci svo greitt að fá það .; hann fór að svara séi sjálfr og sagði: „Þessir hlutir oru allir haudaverk veru þeirrar, sem er langt um meiri og vitrari og máttugri, en ég er, og nnfn heivnar skal ég kalla: Guð.“ Þannig talaði hann, en var þ.ó ekki ánægðr. Þessa hugmynd, sem liann hafði fengið, þurfti hann að gjöra líkamlega, klæða. hana í líkamlegan og sýnilegan búning. Búningarnir urðu margir, sém von-

x

Dagsbrún

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/1272

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.