Dagsbrún - 01.11.1895, Side 9
— 169 —
FRAMTÍÐ TRÚBRAGÐANNA.
Eftir Paul Caeus.
(Lauslega þýtt úr “Open Court”).
Á þcssum síðustu og vestu timurn er eins og trúarbi’ögðin
skjálfi á beinunum. Margt af liinum gömlu hugmyndum manna er
orðið fúið og rotið, og svo er því kastað, en nýjar hugmvndir koma
í stað hinna gömlu, Nýjar hugmyndir um náttúruna, heiminn,
jörðina, mannkynið, guðina. Yísindin verða ekki lengur þögguð
niður, frelsið er einlægt heimtað af fieirum og fieirum, cr setið hafa
öldum saman, hneptir undir oki kúgunarinnar, og frelsið vcrður
einlægt meira og meira, veitist einlægt fleirum og fieirum, en livað
verður þá um trúarbrögðin ?
Margir hugsa sér, að i framtiðinni muni mannkynið verða trú-
laust, trúin fari einlægt minkandi og minkandi, þangað tii hún loks-
ins verði engin. En þá blanda þeir saman trú og lijátrú, þeir vill-
ast á þvi, að kalla trú á liégiljur og hindurvitni, trú á kraftaverk og
helga dóma, trúarbrögð. Þeir virðast gleyma því, að trúin er í
heiminum, að hún hefir byi’jað sem trú á alt það, sem maðurinn
skildi ekki í, orðið siðan skripatrú, en svo farið að kasta einni hé-
giljunni á eftir annari, farið meira og meira að greina sannleika frá
lygi, orðið meira og meira andlegri og andlegri. Þeir, sem ætla, að
trúin sé ekki þess virði, að mannkynið haldi í liana, þeir dæma
trúna eftir skrípamyndum hennar, eftir kyrkjudeildunum, eftir játn-
ingunni, eftir hégiljunum og hindurvitnunum, sem menn nú eru að
kasta jafnóðum og mennn þroskast svo andlega, að menn verði fær-
ir um það. Þessir menn virðast gleyma því, að trúin er andlcgur
kraftur, en ekki vofa ein, að hún nú cr á framrásarskeiði og snýst
meira og meira að lögum skynseminnar og náttúrunnar, já gctur
ekki gengið á móti þeim, því að þá verður hún meiningarlaust bull.
Það, að hjátrúnni og hégiljunum hefir verið blandað saman við
trúna, sýnir aðeins það, að þau trúarbrögð þurfa að hreinsast, það
þarf að kasta soranum burtu og rýma burtu öllum villum sem
mögulegt er.
Vér gætum eins hugsað oss, að komandi kynslóðir vcrði sál-
arlausar, eins og að þær verði trúlausar. Iivorugt er hugsanlegt,
en eins og vér vonum, að sálir liinna komandi kynslóða verði göf-
ugri, upplýstari, fegurri, eins vonum vér að trúin verði göfugri,
fegurri, skynsamari. Því að því nær, sem trúin kemst skynsem-
innni. því sannari er hún.