Fréttablaðið - 15.01.2018, Side 12
Komnir með titlauppskriftina
Tindastóll vann fyrsta stóra titilinn í sögu félagsins þegar liðið vann 27 stiga sigur á KR, 69-96, í úrslitaleik
Maltbikars karla á laugardaginn. Uppbygging síðustu ára og áratuga skilaði loksins bikar á Krókinn.
Körfubolti Ef það er hægt að spila
hinn fullkomna leik þá gerði Tinda
stóll það gegn KR í úrslitaleik Malt
bikars karla á laugardaginn. Stólarnir
voru yfir allan leikinn, komust í 014
og 219 og unnu á endanum 27 stiga
sigur, 6996, og fögnuðu vel og inni
lega fyrsta stóra titlinum í sögu
félagsins. Hungrið var mikið hjá leik
mönnum Tindastóls sem voru miklu
sterkari í úrslitaleiknum og léku við
hvern sinn fingur.
„Þetta er magnað. Ég er ánægður
með að við höfum loksins stigið yfir
þennan þröskuld. Við erum búnir að
reka stóru tána ansi oft í hann,“ sagði
Helgi Freyr Margeirsson, aldursfor
setinn í liði Tindastóls.
Byrjaði 14 ára
Helgi hefur verið lengi að en hann
spilaði sinn fyrsta leik með meist
araflokki Tindastóls aðeins 14 ára
gamall. Hann hefur gengið í gegnum
ýmislegt með félaginu, spilað í næst
efstu deild og verið í liðum sem hafa
verið nálægt því að vinna titla, m.a.
árið 2012 þegar Tindastóll tapaði
fyrir Keflavík í bikarúrslitum.
„Við erum búnir að bíða lengi eftir
þessu. Við höfum farið einu sinni
áður í bikarúrslit og verið með lið
til þess að fara alla leið en aldrei náð
að setja saman heilsteypta leiki eins
og núna,“ sagði Helgi en síðustu þrír
leikir Tindastóls í Malt bikarnum voru
gegn þremur efstu liðum Domino’s
deildarinnar; ÍR, Haukum og KR.
Helgi segir að leikáætlun Stólanna
í úrslitaleiknum á laugardaginn hafi
ekki verið mjög flókin.
„Við einsettum okkur að einfalda
hluti hvað taktína varðar. Við vorum
með einfalda taktík, bæði í vörn og
sókn, en gáfum frekar meira í. Það var
ekkert hik á mönnum og við fórum á
fullum krafti í allt,“ sagði Helgi sem
var eini leikmaður Tindastóls sem
skoraði ekki í leiknum sem sýnir
breiddina í liðinu.
Israel Martin, þjálfari Tindastóls,
notaði 11 leikmenn meðan leikurinn
var jafn og aðeins einn leikmaður lék
meira en 30 mínútur. Það var Pétur
Rúnar Birgisson sem var valinn
maður leiksins.
Hann, líkt og flestir í liði Tinda
stóls, eru heimamenn. Aðeins Banda
ríkjamennirnir tveir, Antonio Hester
og Brandon Garrett, og Björgvin Haf
þór Ríkharðsson eru aðkomumenn.
Sá síðastnefndi er þó tengdasonur
Skagafjarðar eins og Helgi segir. Þessi
fjöldi heimamanna í liði Tindastóls
er til vitnis um það góða starf sem
er unnið í körfuboltanum á Sauðár
króki.
Lögreglufylgd og flugeldasýning
Helgi hrósaði stuðningnum sem
Tindastóll fékk á bikarhelginni.
Skagfirðingar fjölmenntu í Höll
ina og studdu vel við bakið á sínum
mönnum.
„Við unnum stórsigur í stúkunni í
báðum leikjunum. Þegar við komum
heim í gærkvöldi fengum við lög
reglufylgd inn í bæinn, það var flug
eldasýning og 1.500 manns sem biðu
eftir okkur í íþróttahúsinu,“ sagði
Helgi.
Hann segir að Stólunum séu allir
vegir færir eftir að hafa brotið þennan
þykka ís, að vinna fyrsta stóra titilinn.
Stefnan er sett á að vinna Íslands
meistaratitilinn.
„Fyrir tímabilið var markmiðið
ekkert leyndarmál; að vinna það sem
er í boði. Við erum komnir með upp
skriftina. Nú er bara að fylgja þessu
eftir. Það er enginn saddur, langt því
frá,“ sagði Helgi sem segir liðsheildina
hjá Tindastóli einstaka.
Mikið bræðralag
„Maður er búinn að vera í mörgum
liðum í gegnum ævina en þú finnur
ekki þessa liðsheild sem við erum
með hérna,“ sagði Helgi.
„Við erum rosalega heppnir með
baklandið og það er hvergi eins öfl
ugt og hérna. En liðið, þessi kjarni
leikmanna, er svo ofboðslega mikið
bræðralag. Það er svo mikið traust í
hópnum. Það hafa alls konar hlutir
komið upp en það koma aldrei
brestir í þennan kjarna. Það er svo
mikilvægt.“ ingvithor@frettabladid.is
Enska úrvalsdeildin
Staðan
Úrslit 23. umferðar 2017-18
Chelsea - Leicester 0-0
C. Palace - Burnley 1-0
1-0 Bakary Sako (21.).
Huddersf. - West Ham 1-4
0-1 Mark Noble (25.), 1-1 Joe Lolley (40.), 1-2
Marko Arnautovic (46.), 1-3 Manuel Lanzini
(56.), 1-4 Lanzini (61.).
Newcastle - Swansea 1-1
0-1 Jordan Ayew (60.), 1-1 Joselu (68.).
Watford - Southampton 2-2
0-1 James Ward-Prowse (20.), 0-2 Ward-
Prowse (44.), 1-2 Andre Gray (58.), 2-2
Abdoulaye Doucouré (90.).
West Brom - Brighton 2-0
1-0 Jonny Evans (4.), 2-0 Craig Dawson (55.).
Tottenham - Everton 4-0
1-0 Son Heung-Min (26.), 2-0 Harry Kane
(47.), 3-0 Kane (59.), 4-0 Christian Eriksen
(81.).
Bournemouth - Arsenal 2-1
0-1 Hector Bellerin (52.), 1-1 Callum Wilson
(70.), 2-1 Jordon Ibe (74.).
Liverpool - Man. City 4-3
1-0 Alex Oxlade-Chamberlain (9.), 1-1 Leroy
Sané (40.), 2-1 Roberto Firmino (59.), 3-1
Sadio Mané (61.), 4-1 Mohamed Salah (68.),
4-2 Bernardo Silva (84.), 4-3 Ilkay Gündogan
(90+1.).
FÉLAG L U J T MÖRK S
Man. City 23 20 2 1 67-17 62
Man. Utd. 22 14 5 3 45-16 47
Liverpool 23 13 8 2 54-28 47
Chelsea 23 14 5 4 41-16 47
Tottenham 23 13 5 5 46-21 44
Arsenal 23 11 6 6 41-30 39
Burnley 23 9 7 7 19-20 34
Leicester 23 8 7 8 34-32 31
Everton 23 7 6 10 25-38 27
Watford 23 7 5 11 33-42 26
West Ham 23 6 7 10 29-41 25
C. Palace 23 6 7 10 21-33 25
B’mouth 23 6 6 11 24-35 24
Huddersf. 23 6 6 11 19-39 24
Newcastle 23 6 5 12 21-31 23
Brighton 23 5 8 10 17-29 23
S’oton 23 4 9 10 23-34 21
Stoke 22 5 5 12 23-47 20
West Brom 23 3 10 10 18-30 19
Swansea 23 4 5 14 14-35 17
Okkar menn
Íslendingar í efstu tveimur
deildunum í Englandi
Everton
Gylfi Þór Sigurðsson
Lék allan leikinn
þegar Everton steinlá fyrir
Totten ham, 4-0. Everton er án sigurs
í síðustu fimm deildarleikjum.
Cardiff City
Aron Einar Gunnarsson
Er enn frá vegna meiðsla
og lék ekki með Cardiff í
4-0 stórsigri á Sunderland.
Reading
Jón Daði Böðvarsson
Sat allan tímann á
bekknum þegar Reading
gerði markalaust jafntefli við Hull.
Aston Villa
Birkir Bjarnason
Lék seinni hálfleikinn í 0-1
útisigri Aston Villa á Nott-
ingham Forest.
Bristol City
Hörður B. Magnússon
Kom inn á undir lokin
þegar Bristol City tapaði
0-1 fyrir Norwich á heimavelli.
Helgi Rafn Viggósson, fyrirliði Tindastóls, lyftir bikarnum hátt á loft eftir sigurinn stóra á KR í úrslitaleik Maltbikarsins á laugardaginn. FRÉTTABLAðið/HANNA
Burnley
Jóhann Berg Guðm.
Var á sínum stað í byrj-
unarliði Burnley sem laut
í lægra haldi fyrir Crystal
Palace á útivelli, 1-0.
Næststærsti sigurinn í úrslitaleik
Sigur Tindastóls á KR á laugardaginn var næst-
stærsti sigurinn í úrslitaleik í 48 ára langri sögu
bikarkeppni karla í körfubolta. Þetta var jafn-
framt stærsti sigurinn í bikarúrslitum í 22 ár.
Stólarnir unnu KR-inga með 27 stigum
(69-96), með sama mun og Haukar unnu
Skagamenn í bikarúrslitum 1996 (85-58).
Langstærsti sigurinn í úrslitaleik
bikarkeppninnar kom árið 1993. Þá
vann Keflavík Snæfell með 39 stigum
(115-76).
1 5 . j a n ú a r 2 0 1 8 M Á n u D a G u r12 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
Bikarúrslit karla
Kr 69-96 tindastóll
(33-57)
KR: Björn Kristjánsson 22, Jón
Arnór Stefánsson 15, Kristófer Acox
13/12 fráköst, Brynjar Þór Björns-
son 10, Orri Hilmarsson 3, Darri
Hilmarsson 2, Sigurður Þorvalds-
son 2, Brandon Penn 2.
Tindastóll: Pétur Rúnar Birgisson
22/7 fráköst/8 stoðsendingar, Sig-
tryggur Arnar Björnsson 20/7 frá-
köst, Antonio Hester 14, Björgvin
Ríkharðsson 11, Hannes Ingi Más-
son 7, Viðar Ágústsson 6, Brandon
Garrett 5, Finnbogi Bjarnason 3,
Axel Kárason 3, Friðrik Þór Stefáns-
son 3, Helgi Rafn Viggósson 2.
1
5
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
B
C
-E
3
D
0
1
E
B
C
-E
2
9
4
1
E
B
C
-E
1
5
8
1
E
B
C
-E
0
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K