Fréttablaðið - 15.01.2018, Síða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@365.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@365.is, s. 512 5368 | Sigríður Inga
Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 |
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@365.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelms-
son, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is,
s. 512 5433 | Ruth Bergsdóttir, ruth@365.is, s. 512 5095,
„Dagbókin er alls ekki að deyja út þótt sumir haldi það ef til vill. Vissulega dalaði salan aðeins fyrst með tilkomu snjallsímanna en hún hefur aftur aukist undanfarin ár,“ segir Brynjólfur.
Minnisbækur í stærðunum A4, A5
og A6.
Dagur á síðu eða vika á opnu.
Til vinstri má sjá
A4 minnisbækur
með punktum.
Til hægri eru
minnisbækur
með kraft-
kápum í þremur
litum.
Varmá bókaútgáfa hefur um 40 ára skeið hannað og framleitt vinsælar dagbækur
fyrir landsmenn. Ætla mætti að
vinsældir þeirra hefðu dvínað
með tilkomu nýrrar tækni á borð
við snjallsímann en það er öðru
nær segir Brynjólfur Páll Schram,
framkvæmdastjóri og eigandi
Varmár bókaútgáfu. „Dagbókin
er alls ekki að deyja út þótt sumir
haldi það ef til vill. Vissulega dalaði
salan aðeins fyrst með tilkomu
snjall símanna en hún hefur aftur
aukist undanfarin ár. Þar spila
nokkrir þættir inn að mínu mati.
Í fyrsta lagi varð fljótt ljóst að ný
tækni kom ekki í stað gömlu dag-
bókarinnar. Í öðru lagi má nefna
að við hófum árið 2015 að bjóða
upp á nýtt og mjög fjölbreytt
litaúrval sem hefur slegið í gegn.“
Mikið litaúrval
Óhætt er að segja að nýju litirnir
sem Brynjólfur minntist á hafi
slegið í gegn. „Í marga áratugi voru
sömu 4-5 litirnir allsráðandi hér
á landi. Svartar, bláar, grænar og
rauðar bækur svo dæmi séu tekin.
Nú geta viðskiptavinir okkar valið
úr úrvali lita á borð við appelsínu-
gulan, bleikan, fjólubláan, gulan,
sægrænan og brúnan auk fjölda
annarra lita og jafnvel nokkurra
útgáfna af sama litnum. Konur og
yngra fólk er sérstaklega þakk-
látt fyrir þetta litaúrval enda eldri
litirnir síður spennandi. Þeir sem
nota dagbækur á annað borð eru
með þær fyrir framan sig allt árið og
þá skiptir ekki bara notagildið máli
heldur líka að bókin sé litfögur,
falleg og sómi sér vel á borði.“
Gömlu dagaheitin
Dagbækurnar frá Varmá hafa
löngum verið nefndar málshátta-
bækurnar vegna málshátta sem
eru neðst á hverri síðu. „Áður fyrr
læddust stundum með málshættir
eða spakmæli sem voru ekki við-
eigandi en allt gagnasafnið var
tekið í gagngerða endur-
skoðun á síðasta ári eftir
verðskuldaða gagnrýni frá
viðskiptavinum okkar.“
Eina skemmtilega
nýjung má finna í tveimur
gerðum dagbóka frá
Varmá en þar hefur gömlu
dagaheitunum verið bætt
við þau heiti sem notuð
eru í dag. „Eftir því sem
ég best veit erum við
fyrstir til að gera þetta.
Þar bætum við því inn
dagaheitum eins og
óðinsdagur, þórsdagur
og freyjudagur við þau
dagaheiti sem allir
þekkja. Síðast talda
heitið, freyjudagur,
vekur oft athygli en
margir nota frekar
frjádag. Ég hef þó
fengið það staðfest frá
prófessor við Háskóla
Íslands að freyjudagur
sé í raun jafngott
heiti.“
Hentugar minnisbækur
Auk dagbóka hefur Varmá bóka-
útgáfa einnig hannað og fram-
leitt minnisbækur
í öllum stærðum
og gerðum segir
Brynjólfur. „Ég var
alltaf mikill minnis-
bókamaður þegar ég
var yngri og notaðist
iðulega við hinar
þekktu Moleskine-
bækur sem eru mjög
vandaðar. Þegar við
tókum ákvörðun um að framleiða
slíkar bækur árið 2014 vildi ég ekki
vera minni maður. Því bjóðum
við upp á endingarbetri bækur
með sterkari kápu en Moleskine-
bækurnar. Eins og dagbækurnar
þá bjóðast minnisbækur okkar í
mörgum litum og um leið í ólíkum
stærðum og útfærslum.“
Nánari upplýsingar má finna á
www.varmabok.is.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . JA N ÚA R 2 0 1 8 M Á N U DAG U R
1
5
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
B
C
-F
7
9
0
1
E
B
C
-F
6
5
4
1
E
B
C
-F
5
1
8
1
E
B
C
-F
3
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K