Fréttablaðið - 15.01.2018, Page 30
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Grétar L. Strange
rafvélavirkjameistari,
lést þann 10. janúar á Landspítalanum
í Fossvogi. Útför hans fer fram frá
Seljakirkju 23. janúar kl. 13.00.
Edda Ásta Sigurðardóttir Strange
Sigurður Strange Harpa Kristjánsdóttir
Guðrún Strange Hilmar Snorrason
Hannes Strange Bryndís Björnsdóttir
Grétar Strange Guðbjörg Fanndal Torfadóttir
afabörn og langafabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Friðrik Marteinsson
Kurt Müller
ketil- og plötusmiður,
Bröttuhlíð 15, Hveragerði,
lést á hjúkrunarheimilinu Ási
í Hveragerði miðvikudaginn 10. janúar.
Signý Egilsdóttir
Elsa Backman Rúnar Skarphéðinsson
Helgi Backman
Marteinn Friðriksson Íris Blandon
Katrín Friðriksdóttir Atli Lýðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Fallegar vandaðar kistur á góðu verði
Sími: 555 3888 granithollin.is
Verð frá kr. 58.800,-
Elsku hjartans pabbi okkar,
tengdapabbi, afi og langafi,
Þorvaldur Ragnarsson
fyrrverandi forsetabílstjóri,
fæddur 19. nóvember 1933,
lést í faðmi fjölskyldunnar mánudaginn
8. janúar á hjúkrunarheimilinu Ísafold.
Útför hans fer fram á morgun, þriðjudaginn 16. janúar,
kl. 13.00 frá Áskirkju. Þeim sem vilja minnast hans er bent
á Alzheimersamtökin.
Ásthildur Þorvaldsdóttir
H. Jóna Þorvaldsdóttir Jón Diðrik Jónsson
Anna María Þorvaldsdóttir Jónas Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
MANNRÉTTINDI „Þó að nám sé að sjálf-
sögðu mikilvægt þá eru ekki endilega
skilyrði um það. Frekar er sett fram krafa
um skilning á því hvað er að vera mann-
úðarstarfsmaður og hver gildi hans eru,
eins og réttlæti. Hjá okkur starfa ekki
bara læknar og hjúkrunarfræðingar, líka
smiðir og verkfræðingar og fólk með alls
konar menntun,“ segir Lára Jónasdóttir
sem hefur starfað fyrir samtökin Lækna
án landamæra í fimm ár. Hefur hún á
þeim tíma ferðast víða um heim og þar
með talið til Nígeríu og Suður-Súdans.
Lára lærði friðar- og átakafræði og lauk
síðan meistaraprófi í alþjóðasamskipt-
um. Hún hefur sinnt ýmsum verkefnum
hjá samtökunum á sviði réttindagæslu,
verkefnastjórnunar, mannauðsmála og
samræmingar aðgerða á vettvangi. „Það
var eiginlega fyrir tilviljun að ég fór á
upplýsingafund í Ósló. Á fundinum sá
ég að þessi samtök pössuðu mér vel og
mínum hugsjónum. Þau tala beint út og
eru óhrædd.“
Lára segir að sjálfstæði samtakanna
og geta þeirra til að vera óháð hafi
heillað hana mikið. „Fjármagn kemur
90 prósent frá einstökum aðilum, ekki
ríkjum. Við höfum meira frelsi til að
tala um ýmis málefni sem öðrum sam-
tökum, sem treysta á ríkisfjármagn, er
erfiðara að tjá sig um. Það er alls ekki
sjálfsagt mál innan mannúðargeirans
að geta það. Samtökin passa vel upp á
það hvaðan fjármagnið kemur og hvert
það fer. Sem dæmi fer ekkert fjármagn
frá Bandaríkjunum í starf samtakanna í
Afganistan. Þannig getum við verið eins
hlutlaus og hægt er.“ Hún segir sjálf-
stæðið einnig gera þeim kleift að fara á
staði sem aðrir eru ekki á, og að þau séu
yfirleitt fyrst á staðinn, þegar upp kemur
neyð.
Samtökin eru í leit að starfsfólki og
fólki til að vera á viðbragðslista, sem
hægt er að leita til með stuttum fyrir-
vara. „Verkefnin eru yfirleitt í kringum
sex mánuði til ár. Flestir sem vinna hjá
samtökunum eru sjálfboðaliðar og fólk
er því ekki á háum launum. Flug, hús-
næði og uppihald er þó alltaf greitt.“
En samtökin eru ekki einungis á
Íslandi til að ná í starfsfólk. „Það sem
samtökin gera líka með því að koma
til Íslands er að hvetja íslensk stjórn-
völd til að beita sér á alþjóðavettvangi
í þeim málefnum sem Læknar án landa-
mæra eru að vinna að, eins og að koma
í veg fyrir of hátt verð og einkaleyfi á
lyfjum, grun um pyntingar í Líbíu og
málefni flóttamanna í Evrópu, sem og
flótta Róhingja frá Bangladess.“
Í dag hefjast Læknadagar í tilefni af
100 ára afmæli Læknafélags Íslands.
Karine Nordstrand, formaður norskra
landssamtaka Lækna án landamæra
mun kynna hlutverk og starfsemi félags-
ins þar.
Að auki verða tveir fundir fyrir þá sem
hafa áhuga á að starfa með samtökunum
miðvikudagana 17. og 24. janúar á Kex
hosteli, klukkan 20-21.30.
lovisaa@frettabladid.is
Læknar án landamæra
leita í fyrsta sinn til Íslands
Samtökin starfa í 70 löndum víða um heim og leita nú í fyrsta skipti til Íslands eftir starfs-
fólki. Leitað er að alls konar hugsjónafólki sem vill sinna neyðaraðstoð. Ekki bara lækn-
um og hjúkrunarfræðingum heldur einnig smiðum, verkfræðingum og fleirum.
Hér er Lára Jónasdóttir í Suður-Súdan, í þorpinu Gumurk, fyrir utan heilsugæsluna sem Læknar án landamæra ráku þar. Nokkrum
mánuðum síðar varð að loka henni vegna átaka í landinu. Lára hefur starfað fyrir samtökin í fimm ár og ferðast víða um heim.
Flestir sem vinna hjá samtökunum eru
sjálfboðaliðar og fólk er því ekki
á háum launum. Flug, húsnæði
og uppihald er þó alltaf greitt.
Lára Jónasdóttir
69 Galba Rómarkeisari myrtur
1582 Pólsk-litháíska samveldið fær Eistland og Lífland frá
Rússum.
1609 Eitt fyrsta fréttablaðs heims, Avisa Relation oder
Zeitung, kemur fyrst út í Ágsborg.
1759 Þjóðminjasafn Bretlands opnað almenningi.
1892 James Naismith gefur út reglur um körfubolta.
1935 Mjólkursamsalan stofnuð
1942 Vindhraðamet slegið í Reykjavík, 39,8 metrar á
sekúndu.
1943 Pentagon, skrifstofubygging varnarmálaráðuneytis
Bandaríkjanna, tekin í notkun.
1994 Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga stofnað eftir sam-
einingu Hjúkrunarfélags Íslands og Félags háskólamennt-
aðra hjúkrunarfræðinga.
2001 Wikipedia opnuð.
Merkisatburðir
„Bandalag jafn-
aðarmanna verður
stofnað í dag,“ sagði í
frétt Morgunblaðsins
þennan dag árið
1983. Sú frétt reynd-
ist auðvitað rétt og
sagði enn fremur að
aðalhvatamaður að
stofnun bandalagsins
hafi verið Vilmundur
Gylfason, þáverandi
alþingismaður.
Degi síðar höfðu
línur skýrst og banda-
lagið verið stofnað.
Undir stórri fyrirsögn
á síðu tvö sagði í
Morgunblaðinu þann
16. janúar: „Í drögum
að málefnagrundvelli segir m. a., að bandalagið sé stofnað til
höfuðs hinu staðnaða flokkakerfi stjórnmálaflokkanna, eins
og það er orðað.“
Bandalag jafnaðarmanna varð þó ekki langlíft. Síðar þetta
sama ár fékk flokkurinn fjóra þingmenn kjörna en þremur
árum síðar, undir lok kjörtímabilsins, gengu þrír þeirra í Al-
þýðuflokkinn og sá fjórði í Sjálfstæðisflokkinn svo enginn
varð eftir í þingflokki bandalagsins.
Jafnaðarmenn létu þó brotthvarf þingmannanna ekki
stöðva sig og buðu fram í Reykjavíkurkjördæmi og Reykja-
neskjördæmi. Fékk flokkurinn samtals 246 atkvæði og var því
tiltölulega langt frá því að ná inn manni. – þea
Þ EttA g E R ð i St : 1 5 . JA N úA R 1 9 8 3
Bandalag jafnaðarmanna
stofnað af Vilmundi Gylfa
1 5 . j A N ú A R 2 0 1 8 M Á N U D A G U R14 T í M A M ó T ∙ F R É T T A B L A ð I ð
tímamót
1
5
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
B
C
-D
E
E
0
1
E
B
C
-D
D
A
4
1
E
B
C
-D
C
6
8
1
E
B
C
-D
B
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K