Ljósið - 13.03.1908, Blaðsíða 5

Ljósið - 13.03.1908, Blaðsíða 5
LJÓSIÐ 53 nokkurs manns, hann vildi lækna þjóð sína og segja henni satt. Messias, er kallaður var Jesús Kristur, var réttkristinn maður, og bar því nafn þess almáttuga frelsara allra þjóða, drottins þess almáttuga. Prestar guðfróðir geta aldrei sannað með ritningunni, að Messí- as, er kvalinn var á Gyðingalandi, hafi verið annað en framúrskarandi vitur og góður maður. Eg held að prestar þjóðarinnar hafi sjálfir gott af að breyta til og kenna ekki óþarfa tygi lengur, eins og þeir hafa gert, og gera allir, bæði viljandi, af vana, og af þekkingarleysi á sannleikanum. Kristur aldrei á krossi dó, konungur; engla og manna drottins andi í drottni bjó, dauð er trú Gyðinganna. Fari hún gamla fjandans til, framar eg ekki þjóna vil þjóðhneixli þjóðprestanna. (Framh.) Kristindómur. Eg vil trúa, træði flyt, frelsið eyðir trega, meistarinn góði mannavit mentar eilíflega Sál mín góða fræði fann, fer burt dauðans mistur. Hér upplýsir heim allan herrann, Jesú Kristur. Maður hver það sannur sér, sé hann lyndis-trómur: þjóð vorri hjá þroskast er þarfur Kristin-dómur.

x

Ljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.