Ljósið - 13.03.1908, Page 8

Ljósið - 13.03.1908, Page 8
56 L JÓSIÐ „Ekkert er nýtt undir sólunni44, sagði Salómon, og það er satt: Sagan endurtekur sjálfa sig á ný. Sæmundur fróði, sem fyrir mörgum öldum var prestur í Odda, fór út í lönd og gekk þar í Svartaskóla hjá Kölska. Eptirmaður hans, Oddapresturinn á öndverði 20. öld, þarf ekki nema suður í Reykjavík, til að ganga þar í Svartaskóla hjá »þeim Vonda«. Mentastoínanirnar færast inn í landið. Skygn. (Eftir Lögréttu). Forvitni. Forvitnir alþýðumenn hafa óskað eftir, að fá að vita, hvað djöfullinn væri gamall orðinn. Eg hef sagt þeim, að ritningin sýndi, að hann hafi verið sá fyrsti guðfræðingur veraldar. Þá bjó hann í höggormi, en nú finst hann í höfuðstöðum og bókasöfnum, og lifir nú á eftirlaunum sínum eins og uppgjafa-páfar gera. Þá hafa þeir forvitnu viljað vita nær hann mundi hætta að villa. Eg hef sagt, sem satt er, að prestarnir og kirkj- an réðu því, nær myrkra-furstinn yrði grafinn, og leg- steinn látinn á leiði þess vonda óþarfa satans. Útgefandi tímarits þessa býr í Pingholtsstrœli 15. Hjá lionum fást keypt rit hans »Hróp og lögmál«, »Krist- indómur« og fleira smávegis. Útgefandi og ábyrgðarmaður »Ljóssins« kennir, að Kristur sé drottinn almáttugur, lrans andi guð, er stjórna á kristnum mönnum. FxuarrsmsjAif öuxeitbekq.

x

Ljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.