Ljósið - 01.01.1909, Side 5
títgefancli og ábyrgðarmaður Ljóssins kennir að
Kristur sé Drottinn almáttugur, hans andi Guð, er
stjórna á kristnum mönnum.
HÖFUNDUR OG ÁBYRGÐARMAÐUR: EINAR JOCHUMSSON
1909
Reykjavik, janúar.
1. blaö.
IVýja árið.
Nýtt ár er gengið í garð, bræður og systur.
Eg bið því Jesú Krist, konunginn á himnum, að senda
oss íslendingum nýja andlega strauma inn i þjóðlíf vort.
Eg bið þann góða hirðir að saman safna vorri sundruðu,
viltu þjóð, undir sannleikans og frelsisins merki. Vorir
góðu kraftar mega ekki vera cins sundraðir og þeir eru.
Hér eru tveir pólitískir flokkar í fámennu landi — óöld
er í landi. Þeir bræður, sem eiga að vera kristnir í góðri
samvinnu, rífast um völd og þingsæti; um trú og réttvísi
er ekkert talað. Sönn, iifandi Guðstrú er ekki til hjá ís-
lendingum, þvi alheims frelsarinn er enn í reifum í asna-
jötu. Prófastar og prestar hafa ekki troðið sér inn á þing
til að reisa upp merki drottins vors Jesú krists og halda
því hátt á tofti; nei, nei, þeir fylla flokk stjórnleysingjanna.
Sú óaldar-klíka varð ofan á, sem kallast Landvörn.
Þeirri hneykslis-klíku fylgja kirkjuþjónar, sem hafa gleymt
sínum barnaeiði og vilja hreikja sér liátt og lilaða undir
sig. Blindir á sálaraugum eða l'ullir af liræsnis-látæði
þykjast þeir vera kristnir, en vilja þó ekki, eða þora ekki
að minnast á nauðsynlega lagfæringu á trúarlífi þjóðar
sinnar.
Þá eru góð ráð dýr, svo þjóðin verði ekki siðspilt og
trúlaus, algjör guðleysis þjóð, sem ekkert virðir meir enn
likamlega nautn.