Ljósið - 01.01.1909, Síða 16

Ljósið - 01.01.1909, Síða 16
12 LJÓSIÐ nema fyrir lifandi trú á hann sem kom í heiminn til þess að allar þjóðir skyldu blessun liljóia. Sömuleiðis mun sá evangeliski faðir Einars hafa kent syni sinum að kristnir menn ættu að meta Jesú Krist meir en alt annað í heimi þessum; því að kristnum mönnum bæri að elska guð sinn af öllu hjarta, sál og hugskoti, en náungann eins mikið og sjálfan sig. Séra Hjörleifur mun hafa bannað syni sínum að leita frétta af framliðnum, að fara, með kukl, að ljúga og svíkja fé út af fáfróðum undir því yfirskyni að nú ættu kraftaverk að gerast, dauðir að upprísa, syngja, tala, yrkja erfdjóð, taka krabbamein úr mönnum, taka tennur úr mönnum, taka limi af og láta þá á aftur, færa liluti til, láta þá fara gegnum lieilt o. s. frv. Sr. Hjörleifur mun hafa kent honum að syndin hefndi sín sjálf, og að drottinn láti ekki eilíflega að sér hæða. Einnig mun prófasturinn, hafa kent hinum gáfaða syni sínum og slaðfest hann upp á það, að liann tryði á Ijósið sem kom í heiminn til að eyðileggja myrkrið og myrkra- verkrin. Því gjörir skáldið og mentaði andatrúar-presturinn þá alt öfugt við það, sem réttkristinn maður á að gjöra. Hann er að fást við ofurefli, sem hann strandar á og allir herr- arnir, sem myrkraverkin aðhyllast. Fláttskap og lýgi fer þessi fíni herra með, þegar hann er að hafa dagprísa á kukli; 10 kr. var sagt að aðgöngumiðar liefðu kostað hjá náunganum á Akureyri í sumar. Kærleikan hefir hann á vörum sér líkur Júdasi, er sveik kennara sinn með ílærðar- kossi. — Er það ekki svivirðing fyrir skírðan mann í kristnu landi að kalla það stærstu kreddu guðfræði vorrar, að Jesú Kristur er talinn að vera Drottinn og Guð kristinna manna. Hr. Einar Hjörleifsson taldi hart á mig fyrir það, að ég vildi ráðast á menn, er liéldu kreddum við, t. d. dósent Jón Helgason, þar sem ég sjálfur kendi stærstu kredduna, sem sé að Jesú Kristur væri almáttugur Drolt- inn vor og Guð! — Nú er bezt að vita hvor okkar nafn- anna er andlega sterkari, — hr. E. H., sem trúir á myrkur og myrkravaldið, eða ég, sem trúi á »Ljósið« og hið himn- pska vald,

x

Ljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.