Víkurfréttir - 22.07.2004, Síða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
• KJARNABORUN
• MÚRBROT
• TÆKJALEIGA
Gerum föst verðtilboð
í öll verk, stór sem smá!
JÓN HELGASON
SÍMI 824 6670STEYPUSÖGUN
➤ Varnarliðið reynir enn að trufla ljósmyndara Víkurfrétta:
➤ Fréttamyndataka við Patterson:
V ið erum eiginlega bara búnar að komahingað einu sinni en við eigum örugg-lega eftir að koma aftur,“ sögðu vinkon-
urnar Berglind 6 ára og Guðrún 5 ára þar
sem þær voru í nestisferð í Skrúðgarðinum í
Njarðvík.
Þær voru með dúkkuvagnana með sér og léku sér
með dúkkur og dúkkuföt. Þegar þær voru spurðar
hvað þær ætli að gera í sumar voru þær ekki
lengi að svara: „Við ætlum bara að skemmta
okkur og leika okkur heilmikið í sumar.“
Í nesti voru stelpurnar með súkkulaði, eins og
kannski sést á myndinni.
Ætlum að leika
okkur í sumar
Berglind og Guðrún sátu í mestu mak-
indum á teppinu sínu og með dúkkurnar
í skrúðgarðinum í Njarðvík.
L jósmyndari Víkurfréttavar á þriðjudag um-kringdur af hermönnum
varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli þar sem hann var við störf
sín fyrir utan hliðið að Patter-
son flugvelli. Hermenn og her-
lögreglumenn gerðu athuga-
semdir við störf ljósmyndarans
og bönnuðu honum að beina
myndavélinni í átt að flugvell-
inum. Hermennirnir kröfðust
þess að fá stafrænt myndakort
úr myndavélinni afhent.
„Þeir stoppuðu mig og báðu mig
að eyða myndunum. Ég tók það
ekki í mál og þá fóru þeir að
hringja í hina og þessa til að fá
fyrirmæli,“ segir Atli Már Gylfa-
son ljósmyndari Víkurfrétta en
alls voru sjö lögreglubílar kallað-
ir á staðinn. „Mér leið eins og ég
væri einhver stórglæpamaður því
þarna voru fjölmargir hermenn
sem stóðu í kringum mig.“
Atli segir að hann hafi verið
krafinn um kortið úr myndavél-
inni en að hann hafi staðfastlega
neitað að afhenda það. „Ég sagði
þeim að ég myndi aldrei afhenda
þeim kortið - fyrr þyrftu þeir að
handtaka mig,“ segir Atli en
hann var stöðvaður í tæpa
klukkustund vegna málsins. Að
lokum var honum leyft að fara
eftir að hermennirnir höfðu ráð-
fært sig við almannatengslaskrif-
stofu varnarliðsins.
Þetta er í þriðja sinn á stuttum
tíma sem hermenn/herlögreglu-
menn af Keflavíkurflugvelli gera
athugasemdir við störf ljósmynd-
ara Víkurfrétta utan girðingar
varnarliðsins. Í fyrsta skiptið var
ljósmyndara blaðsins meinað að
mynda við kirkjugarð Keflavíkur
við Garðveg og fyrir um tveimur
vikum var gerð athugasemd við
ljósmyndara blaðsins þar sem
hann var við fréttaljósmyndun
við Grænás.
Róbert Marshall formaður
Blaðamannafélags Íslands hefur
fordæmt vinnubrögð hermanna
varnarliðsins vegna afskipta þeir-
ra af ljósmyndurum Víkurfrétta.
Róbert sagði þegar ljósmyndari
blaðsins var stöðvaður við
Grænás fyrir um tveimur vikum
að viðbrögð hermannanna lýstu
mikilli vankunnáttu á réttindum
blaðamanna á Íslandi. „Auðvitað
hefur ljósmyndari Víkurfrétta all-
an rétt til að ljósmynda það sem
honum sýnist og beina sinni
myndavél að bandarískum her-
mönnum jafnt sem herstöðinni.
Ég hef ekki trú á öðru en að
þarna hafi verið á ferðinni her-
maður sem oftúlkar valdsvið sitt.
Blaðamannafélagið mun gera
formlega athugasemd við herinn
og íslenska utanríkisráðuneytið
komi í ljós að hermenn hagi sér
með þessum hætti gagnvart ís-
lenskum blaðamönnum að undir-
lagi yfirmanna sinna.“
Páll Ketilsson ritstjóri Víkurfrétta
segir að það sé ekki hægt að star-
fa við það að ljósmyndarar blaðs-
ins eigi það á hættu að vopnaðir
hermenn mæti þegar þeir sinna
störfum sínum fyrir utan girð-
ingu varnarsvæðisins. „Við mun-
um í framhaldi þessara síðustu
atburða senda formlegt erindi til
Blaðamannafélags Íslands þar
sem óskað verður eftir að þessi
mál verði tekin til skoðunar.“
Hermenn hindra ljósmyndara
Víkurfrétta í störfum sínum
VF
LJ
ÓS
M
YN
D:
Jó
ha
nn
es
K
r. k
ris
tjá
ns
so
n.
Hermenn stöðvuðu för ljósmyndara Víkurfrétta í tæpa klukkustund þar sem hann var við fréttamyndatöku við hlið Patterson
flugvallar. Sjö lögreglubílar voru á vettvangi þegar mest var og á myndinni má sjá fjóra herlögreglubíla og hermenn ræða við
ljósmyndarann. Hermennirnir kröfðust þess að ljósmyndarinn léti stafrænt myndakort af hendi. Því var neitað.
Um sexleytið á þriðjudag gerði lögreglan á Keflavíkur-flugvelli athugasemdir við störf fréttamanns og kvik-myndatökumanns Ríkissjónvarpsins þar sem þeir voru
staddir við Patterson flugvöll.Voru þeir að vinna frétt vegna at-
burða þegar hermenn gerðu athugasemdir vegna starfa ljós-
myndara Víkurfrétta við flugvöllinn fyrr um daginn.
Var þeim tjáð að ekki væri ekki heimilt að mynda Patterson flug-
völlinn. Lögreglumenn af Keflavíkurflugvelli voru kallaðir til að
beiðni herlögreglunnar. Eftir nokkur símtöl kom í ljós að ekki var
hægt að meina fréttamanni og kvikmyndatökumanni sjónvarpsins
að mynda við flugvöllinn. Er þetta í annað sinn í dag sem lögreglan
og bandaríski herinn gera athugasemdir við störf fjölmiðlamanna
utan víggirtra svæða sem herinn á.
Reynt að stöðva
fréttamann Sjónvarpsins
Megi Guð vera með ykkur öllum.
Halla Tómasdóttir Pálmi B. Einarsson
Linda Björk Pálmadóttir Þórdís Halla Gunnarsdóttir
Finna Pálmadóttir Guðjón Á. Antoníusson
Tómas Pálmason Jón N. Hafsteinsson
Halldís Bergþórsdóttir Tómas Tómasson
Finna Pálmadóttir
og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug í okkar garð
vegna fráfalls okkar ástkæru
Jórunnar Pálmadóttur
30. tbl. 2004LOKA 21.7.2004 12:16 Page 6