Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.07.2004, Side 8

Víkurfréttir - 22.07.2004, Side 8
R eglurnar um myndatökuutan girðingar á varnar-svæði bandaríska hersins virðast vera óskýrar. Innan girðingar varnarsvæðisins gilda hinsvegar strangar reglur varð- andi myndatöku og þarf sér- stakt leyfi frá almannatengsla- skrifstofu varnarliðsins varð- andi myndatökur. Í fjórgang hafa vopnaðir hermenn eða herlögreglumenn varnarliðs- ins haft afskipti af ljósmyndurum Víkurfrétta þar sem þeir hafa ver- ið að taka fréttamyndir á Suður- nesjum á síðustu tveimur mánuð- um. Í tveimur tilfellanna hafa her- mennirnir reynt að fá ljósmyndara blaðsins til að eyða ljósmyndun- um sem teknar hafa verið og í einu tilfelli var þess krafist að stafrænt myndkort yrði afhent hermönnum. Afskipti #1 Um miðjan maí gerðu vopnaðir hermenn athugasemdir við störf ljósmyndara Víkurfrétta þar sem myndaðir voru hermenn sem stóðu vörð við kirkjugarð Kefla- víkur við Garðveg. Íbúi í Reykja- nesbæ kallaði til lögreglunnar þar sem honum þótti óeðlilegt að vopnaðir hermenn stæðu vörð utan varnarsvæðis við kirkjugarð- inn. Hermennirnir gáfu þá skýr- ingu á veru sinni að verið væri að afferma bensínflutningaskip í Helguvík. Ljósmyndari Víkur- frétta stóð í vegarkanti Garðvegar og myndaði þegar hermenn komu á svæðið en þeir gerðu athuga- semdir við störf ljósmyndara. Afskipti #2 Sama dag gerði hermaður athuga- semdir við störf ljósmyndara Vík- urfrétta sem staddur var í Helgu- vík að mynda bensínflutninga- skipið og vopnaða hermenn sem þar stóðu vörð. Ljósmyndarinn framvísaði skírteini blaðamanna og fékk að starfa óáreittur í fram- haldi af því. Afskipti #3 Þriðja atvikið átti sér stað fyrir um tveimur vikum þegar ljósmyndari Víkurfrétta myndaði afskipti ís- lenskra lögreglumanna af tveimur unglingum sem voru við girðingu varnarsvæðisins fyrir ofan Grænás. Vopnaðir hermenn komu á staðinn og gerðu athugasemdir við störf ljósmyndara og meinuðu honum að beina myndavélinni að varnarsvæðinu. Afskipti #4 Á þriðjudag gerðu svo vopnaðir herlögreglumenn athugasemdir við störf ljósmyndara Víkurfrétta þar sem hann var við frétta- myndatöku fyrir utan girðingu Patterson flugvallar. Alls komu sjö lögreglubílar á svæðið að meðtöldum íslenskum lögreglu- bílum og var ljósmyndarinn stöðvaður í tæpa klukkustund. Var hann meðal annars krafinn um að afhenda stafrænt myndakort og að eyða ljósmyndum að hermönnum viðstöddum. Ljósmyndarinn fékk að fara ferða sinna eftir nokkurt þóf og samskipti hermannanna við yfirmenn sína. Afskipti #5 Síðar um daginn gerðu íslenskir lögreglumenn af Keflavíkurflug- velli athugasemdir við störf frétta- og kvikmyndatökumanns sjón- varpsins þar sem þeir unnu frétt um afskipti hermanna af störfum ljósmyndara Víkurfrétta. Voru þeir þá staddir við hlið Patterson flug- vallar, en íslensku lögreglumenn- irnir voru kallaðir á staðinn að beiðni herlögreglunnar. Stór hluti svæðisins ógirtur Varnarsvæði bandaríska hersins á Suðurnesjum er ekki allt girt af. Nokkuð stór hluti svæðisins er utan girðingar. Sú spurning hlýtur að vakna hvort hermönnum varn- arliðsins sé heimilt að meina ljós- myndurum að taka fréttamyndir á svæði sem er utan girðingar. Í öll- um tilfellunum voru ljósmyndarar Víkurfrétta að taka fréttamyndir, þ.e. af atburðum sem skilgreindir voru sem fréttir. Einu reglurnar sem blaða- og fréttamenn fara eftir við frétta- myndatöku eru að taka ekki myndir inni á heimilum manna eða einkasvæði. Á opinberum vettvangi, víðavangi og á stöðum sem venjulega eru taldir til opin- berra staða getur hinsvegar eng- inn bannað fréttaljósmyndara að taka myndir. Ef einhver atburður á sér stað á slíkum stöðum sem kallast getur frétt, er ekkert sem segir til um það að ekki megi ljós- mynda atburðinn. Svæði varnarliðsins sem er utan girðingar hlýtur að teljast opinber vettvangur. Þar sem almenningur getur gengið um hlýtur að teljast opinbert svæði; jafnvel þó slíkt svæði sé skilgreint sem varnar- svæði utan girðingar. Margir velta því fyrir sér af hverju svæðið sé ekki girt af ef yfirmenn varnar- liðsins vilja ekki að ljósmyndað sé á svæðinu. Óljós skilaboð eða reglur Í öllum þeim tilvikum sem her- menn varnarliðsins hafa haft af- skipti af ljósmyndurum Víkur- frétta þar sem þeir hafa verið við fréttamyndatöku hafa þeir fengið fyrirmæli um að stöðva ekki ljós- myndara. Það hlýtur að teljast ein- kennilegt í ljósi þess að hermenn- irnir hafa ávallt í byrjun haldið því fram að myndunum eigi að eyða. Skilaboðin eða reglurnar sem her- mennirnir halda að þeir séu að framfylgja hafa þá ekki átt við rök að styðjast. Óþolandi framkoma Róbert Marshall formaður Blaða- mannafélags Íslands segir afskipti hermanna varnarliðsins af ljós- myndurum Víkurfrétta óþolandi og að slík framkoma líðist ekki. Hann segir það geta verið að í Bandaríkjunum séu lög sem heimili hermönnum að meina fréttaljósmyndurum myndatöku á einhverjum svæðum en hér á Ís- landi sé það ekki heimilt. Róbert segist ekki vita betur en að fyrir utan girðingu varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli gildi Íslensk lög. Eðlilegur núningur Jóhann R. Benediktsson sýslu- maður á Keflavíkurflugvelli segir að uppákomur sem þessar séu al- mennt ekki vandamál. Jóhann segir að ekki megi gleyma því að í sumum tilfellum geti verið að her- lögreglumenn þekki ekki reglurn- ar. Af þeirri einföldu ástæðu segir Jóhann að samskipti sem þessi eigi að fara í gegnum íslensku lögregluna á Keflavíkurflugvelli. „Það er okkar hlutverk að greiða úr svona málum sem má kannski segja að séu að sumu leyti eðlileg. Herlögreglumennirnir eru vanir öðrum reglum og öðru umhverfi. Þó að þeir séu vel fræddir um slík mál þá má kannski segja að svona uppákomur séu eðlilegur núning- ur þegar tveir menningarheimar mætast. Það er mjög algengt að við séum að leysa svona núnings- fleti,“ segir Jóhann og hann hvetur fréttadeildir til að hafa samband við embætti Sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli ef myndataka er fyrirhuguð á varnarsvæðinu. „Í langflestum tilfellum er það mjög auðsótt mál að taka ljósmyndir á þessu svæði.“ Furðulegar uppákomur Einar Falur Ingólfsson myndstjóri Morgunblaðsins segir reglurnar sem fréttaljósmyndarar fara eftir séu þær að friðhelgina þurfi að virða á einkasvæði og að þar sé ekki myndað nema leyfi sé feng- ið. Hann segir einkasvæði geta verið heimili fólks eða svæði sem er í einkaeigu. „Það er litið þannig á að þeir sem eru á ferð um al- menningssvæði séu á opinberu svæði og það megi birta myndir af þeim. Svo er það gráa svæðið þar sem menn velta fyrir sér hvar einkasvæði byrjar, þ.e. ef menn eru á einkasvæði en blasa við af almenningssvæðinu. Til dæmis ef þú stendur út í glugga á heimili þínu en blasir við af almennings- svæðinu þá ertu sýnilegur og get- ur lent inni á mynd.“ Einar segist hinsvegar alltaf hafa talið svæðið utan girðingar varnarsvæðisins opinbert svæði. „Mér þykja þetta ákaflega furðulegar uppákomur þar sem hermenn reyna að stöðva ljósmyndara við myndatöku utan girðingar.“ Aukinn viðbúnaður „Það sem gerðist á þriðjudag og það sem hefur gerst síðustu miss- eri varðandi samskipti hermanna og ljósmyndara Víkurfrétta er vegna aukins viðbúnaðar á varn- arstöðinni vegna árásanna á bandaríkin í september 2001,“ segir Chris Usselman yfirmaður almannatengslaskrifstofu varnar- liðsins. Spurður um hvaða reglur væru í gildi hjá varnarliðinu um mynda- töku á varnarsvæðinu sagði Chris að verið væri að endurskoða allar reglur á varnarstöðinni. Það sem setti þá atburðarrás af stað sem hófst á þriðjudaginn var þegar fólk sást við girðingu Patterson flugvallar. „Á meðan þú ert á al- menningsvegi þá máttu mynda það sem þú vilt frá þeim vegi. Það er ekki algengt að svo margir lög- reglubílar fari á vettvang svona mála eins og gerðist á þriðjudag- inn. En hermennirnir voru í sam- bandi við sína yfirmenn sem gáfu þeim skipanir um að yfirgefa staðinn að lokum. En það er alls ekki viðtekin venja að senda svo marga lögreglubíla á vettvang eins og þarna varð raunin.“ Óttast hryðjuverk Chris segir að Ísland sé frábært land og að hermönnunum sem hér eru líki mjög vel á Íslandi. „Eftir 11. september eru her- menn á herstöðvum bandaríkja- manna um allan heim mjög við- kvæmir fyrir grunsamlegum ferðum manna utan stöðvanna og þá sérstaklega þegar ljósmyndir eru teknar. Við lítum svo á að þegar ljósmyndir eru teknar í ná- grenni varnarstöðva þá gæti við- komandi verið að safna upplýs- ingum fyrir hryðjuverkaárás. Með auknum viðbúnaði á varn- arstöðinni og í nágrenni hennar erum við að gæta öryggis okkar og íbúa svæðisins vegna hugsan- legra hryðjuverka. Okkar hlut- verk er að gæta öryggis Íslend- inga jafnvel og okkar sjálfra á varnarstöðinni.“ Aðspurður hvort hermönnum væru uppálagt að óska eftir film- um eða stafrænum myndakortum þegar þeir hafa afskipti af ljós- myndurum sagði Chris svo ekki vera. „Ég tel að um misskilning hafi verið að ræða í þessu tilviki. Við vinnum að því að fræða her- menn okkar um þær reglur sem gilda hér á Íslandi og við viljum ekkert annað en að eiga góð sam- skipti við fjölmiðlamenn.“ 8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! F R É T T A S K Ý R I N G ➤ Stirðleiki í samskiptum ljósmyndara Víkurfrétta og varnarliðsins: Eru afskipti hermanna af ljósmyndurum Víkurfrétta eðlileg? Texti: Jóhannes Kr. Kristjánsson • johannes@vf.is Hermenn nálgast ljósmyndara við Kirkjugarðinn í Keflavík við Garðveg í maí. Íslenskur lögregluþjónn ræðir við her- mennina. Ljósmyndarinn myndar áfram. Vígalegur hermaður á vaktinni við Helguvík. Ljósmyndari fékk að mynda eftir að hafa sýnt skírteini. Hermenn varnarliðsins gerðu athugasemdir við störf ljósmyndara Víkurfrétta við Grænás fyrir stuttu. Hermenn gerðu athugasemdir við störf ljósmyndara Víkurfrétta við Patterson flugvöll á dögunum. 30. tbl. 2004LOKA3 21.7.2004 14:30 Page 8

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.