Víkurfréttir - 22.07.2004, Blaðsíða 8
R eglurnar um myndatökuutan girðingar á varnar-svæði bandaríska hersins
virðast vera óskýrar. Innan
girðingar varnarsvæðisins gilda
hinsvegar strangar reglur varð-
andi myndatöku og þarf sér-
stakt leyfi frá almannatengsla-
skrifstofu varnarliðsins varð-
andi myndatökur.
Í fjórgang hafa vopnaðir hermenn
eða herlögreglumenn varnarliðs-
ins haft afskipti af ljósmyndurum
Víkurfrétta þar sem þeir hafa ver-
ið að taka fréttamyndir á Suður-
nesjum á síðustu tveimur mánuð-
um. Í tveimur tilfellanna hafa her-
mennirnir reynt að fá ljósmyndara
blaðsins til að eyða ljósmyndun-
um sem teknar hafa verið og í
einu tilfelli var þess krafist að
stafrænt myndkort yrði afhent
hermönnum.
Afskipti #1
Um miðjan maí gerðu vopnaðir
hermenn athugasemdir við störf
ljósmyndara Víkurfrétta þar sem
myndaðir voru hermenn sem
stóðu vörð við kirkjugarð Kefla-
víkur við Garðveg. Íbúi í Reykja-
nesbæ kallaði til lögreglunnar þar
sem honum þótti óeðlilegt að
vopnaðir hermenn stæðu vörð
utan varnarsvæðis við kirkjugarð-
inn. Hermennirnir gáfu þá skýr-
ingu á veru sinni að verið væri að
afferma bensínflutningaskip í
Helguvík. Ljósmyndari Víkur-
frétta stóð í vegarkanti Garðvegar
og myndaði þegar hermenn komu
á svæðið en þeir gerðu athuga-
semdir við störf ljósmyndara.
Afskipti #2
Sama dag gerði hermaður athuga-
semdir við störf ljósmyndara Vík-
urfrétta sem staddur var í Helgu-
vík að mynda bensínflutninga-
skipið og vopnaða hermenn sem
þar stóðu vörð. Ljósmyndarinn
framvísaði skírteini blaðamanna
og fékk að starfa óáreittur í fram-
haldi af því.
Afskipti #3
Þriðja atvikið átti sér stað fyrir um
tveimur vikum þegar ljósmyndari
Víkurfrétta myndaði afskipti ís-
lenskra lögreglumanna af tveimur
unglingum sem voru við girðingu
varnarsvæðisins fyrir ofan
Grænás. Vopnaðir hermenn komu
á staðinn og gerðu athugasemdir
við störf ljósmyndara og meinuðu
honum að beina myndavélinni að
varnarsvæðinu.
Afskipti #4
Á þriðjudag gerðu svo vopnaðir
herlögreglumenn athugasemdir
við störf ljósmyndara Víkurfrétta
þar sem hann var við frétta-
myndatöku fyrir utan girðingu
Patterson flugvallar. Alls komu
sjö lögreglubílar á svæðið að
meðtöldum íslenskum lögreglu-
bílum og var ljósmyndarinn
stöðvaður í tæpa klukkustund. Var
hann meðal annars krafinn um að
afhenda stafrænt myndakort og að
eyða ljósmyndum að hermönnum
viðstöddum. Ljósmyndarinn fékk
að fara ferða sinna eftir nokkurt
þóf og samskipti hermannanna
við yfirmenn sína.
Afskipti #5
Síðar um daginn gerðu íslenskir
lögreglumenn af Keflavíkurflug-
velli athugasemdir við störf frétta-
og kvikmyndatökumanns sjón-
varpsins þar sem þeir unnu frétt
um afskipti hermanna af störfum
ljósmyndara Víkurfrétta. Voru þeir
þá staddir við hlið Patterson flug-
vallar, en íslensku lögreglumenn-
irnir voru kallaðir á staðinn að
beiðni herlögreglunnar.
Stór hluti svæðisins ógirtur
Varnarsvæði bandaríska hersins á
Suðurnesjum er ekki allt girt af.
Nokkuð stór hluti svæðisins er
utan girðingar. Sú spurning hlýtur
að vakna hvort hermönnum varn-
arliðsins sé heimilt að meina ljós-
myndurum að taka fréttamyndir á
svæði sem er utan girðingar. Í öll-
um tilfellunum voru ljósmyndarar
Víkurfrétta að taka fréttamyndir,
þ.e. af atburðum sem skilgreindir
voru sem fréttir.
Einu reglurnar sem blaða- og
fréttamenn fara eftir við frétta-
myndatöku eru að taka ekki
myndir inni á heimilum manna
eða einkasvæði. Á opinberum
vettvangi, víðavangi og á stöðum
sem venjulega eru taldir til opin-
berra staða getur hinsvegar eng-
inn bannað fréttaljósmyndara að
taka myndir. Ef einhver atburður á
sér stað á slíkum stöðum sem
kallast getur frétt, er ekkert sem
segir til um það að ekki megi ljós-
mynda atburðinn.
Svæði varnarliðsins sem er utan
girðingar hlýtur að teljast opinber
vettvangur. Þar sem almenningur
getur gengið um hlýtur að teljast
opinbert svæði; jafnvel þó slíkt
svæði sé skilgreint sem varnar-
svæði utan girðingar. Margir velta
því fyrir sér af hverju svæðið sé
ekki girt af ef yfirmenn varnar-
liðsins vilja ekki að ljósmyndað sé
á svæðinu.
Óljós skilaboð eða reglur
Í öllum þeim tilvikum sem her-
menn varnarliðsins hafa haft af-
skipti af ljósmyndurum Víkur-
frétta þar sem þeir hafa verið við
fréttamyndatöku hafa þeir fengið
fyrirmæli um að stöðva ekki ljós-
myndara. Það hlýtur að teljast ein-
kennilegt í ljósi þess að hermenn-
irnir hafa ávallt í byrjun haldið því
fram að myndunum eigi að eyða.
Skilaboðin eða reglurnar sem her-
mennirnir halda að þeir séu að
framfylgja hafa þá ekki átt við rök
að styðjast.
Óþolandi framkoma
Róbert Marshall formaður Blaða-
mannafélags Íslands segir afskipti
hermanna varnarliðsins af ljós-
myndurum Víkurfrétta óþolandi
og að slík framkoma líðist ekki.
Hann segir það geta verið að í
Bandaríkjunum séu lög sem
heimili hermönnum að meina
fréttaljósmyndurum myndatöku á
einhverjum svæðum en hér á Ís-
landi sé það ekki heimilt. Róbert
segist ekki vita betur en að fyrir
utan girðingu varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli gildi Íslensk
lög.
Eðlilegur núningur
Jóhann R. Benediktsson sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli segir
að uppákomur sem þessar séu al-
mennt ekki vandamál. Jóhann
segir að ekki megi gleyma því að í
sumum tilfellum geti verið að her-
lögreglumenn þekki ekki reglurn-
ar. Af þeirri einföldu ástæðu segir
Jóhann að samskipti sem þessi
eigi að fara í gegnum íslensku
lögregluna á Keflavíkurflugvelli.
„Það er okkar hlutverk að greiða
úr svona málum sem má kannski
segja að séu að sumu leyti eðlileg.
Herlögreglumennirnir eru vanir
öðrum reglum og öðru umhverfi.
Þó að þeir séu vel fræddir um slík
mál þá má kannski segja að svona
uppákomur séu eðlilegur núning-
ur þegar tveir menningarheimar
mætast. Það er mjög algengt að
við séum að leysa svona núnings-
fleti,“ segir Jóhann og hann hvetur
fréttadeildir til að hafa samband
við embætti Sýslumannsins á
Keflavíkurflugvelli ef myndataka
er fyrirhuguð á varnarsvæðinu. „Í
langflestum tilfellum er það mjög
auðsótt mál að taka ljósmyndir á
þessu svæði.“
Furðulegar uppákomur
Einar Falur Ingólfsson myndstjóri
Morgunblaðsins segir reglurnar
sem fréttaljósmyndarar fara eftir
séu þær að friðhelgina þurfi að
virða á einkasvæði og að þar sé
ekki myndað nema leyfi sé feng-
ið. Hann segir einkasvæði geta
verið heimili fólks eða svæði sem
er í einkaeigu. „Það er litið þannig
á að þeir sem eru á ferð um al-
menningssvæði séu á opinberu
svæði og það megi birta myndir af
þeim. Svo er það gráa svæðið þar
sem menn velta fyrir sér hvar
einkasvæði byrjar, þ.e. ef menn
eru á einkasvæði en blasa við af
almenningssvæðinu. Til dæmis ef
þú stendur út í glugga á heimili
þínu en blasir við af almennings-
svæðinu þá ertu sýnilegur og get-
ur lent inni á mynd.“ Einar segist
hinsvegar alltaf hafa talið svæðið
utan girðingar varnarsvæðisins
opinbert svæði. „Mér þykja þetta
ákaflega furðulegar uppákomur
þar sem hermenn reyna að stöðva
ljósmyndara við myndatöku utan
girðingar.“
Aukinn viðbúnaður
„Það sem gerðist á þriðjudag og
það sem hefur gerst síðustu miss-
eri varðandi samskipti hermanna
og ljósmyndara Víkurfrétta er
vegna aukins viðbúnaðar á varn-
arstöðinni vegna árásanna á
bandaríkin í september 2001,“
segir Chris Usselman yfirmaður
almannatengslaskrifstofu varnar-
liðsins.
Spurður um hvaða reglur væru í
gildi hjá varnarliðinu um mynda-
töku á varnarsvæðinu sagði Chris
að verið væri að endurskoða allar
reglur á varnarstöðinni. Það sem
setti þá atburðarrás af stað sem
hófst á þriðjudaginn var þegar
fólk sást við girðingu Patterson
flugvallar. „Á meðan þú ert á al-
menningsvegi þá máttu mynda
það sem þú vilt frá þeim vegi. Það
er ekki algengt að svo margir lög-
reglubílar fari á vettvang svona
mála eins og gerðist á þriðjudag-
inn. En hermennirnir voru í sam-
bandi við sína yfirmenn sem gáfu
þeim skipanir um að yfirgefa
staðinn að lokum. En það er alls
ekki viðtekin venja að senda svo
marga lögreglubíla á vettvang
eins og þarna varð raunin.“
Óttast hryðjuverk
Chris segir að Ísland sé frábært
land og að hermönnunum sem
hér eru líki mjög vel á Íslandi.
„Eftir 11. september eru her-
menn á herstöðvum bandaríkja-
manna um allan heim mjög við-
kvæmir fyrir grunsamlegum
ferðum manna utan stöðvanna og
þá sérstaklega þegar ljósmyndir
eru teknar. Við lítum svo á að
þegar ljósmyndir eru teknar í ná-
grenni varnarstöðva þá gæti við-
komandi verið að safna upplýs-
ingum fyrir hryðjuverkaárás.
Með auknum viðbúnaði á varn-
arstöðinni og í nágrenni hennar
erum við að gæta öryggis okkar
og íbúa svæðisins vegna hugsan-
legra hryðjuverka. Okkar hlut-
verk er að gæta öryggis Íslend-
inga jafnvel og okkar sjálfra á
varnarstöðinni.“
Aðspurður hvort hermönnum
væru uppálagt að óska eftir film-
um eða stafrænum myndakortum
þegar þeir hafa afskipti af ljós-
myndurum sagði Chris svo ekki
vera. „Ég tel að um misskilning
hafi verið að ræða í þessu tilviki.
Við vinnum að því að fræða her-
menn okkar um þær reglur sem
gilda hér á Íslandi og við viljum
ekkert annað en að eiga góð sam-
skipti við fjölmiðlamenn.“
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
F R É T T A S K Ý R I N G
➤ Stirðleiki í samskiptum ljósmyndara Víkurfrétta og varnarliðsins:
Eru afskipti hermanna af ljósmyndurum Víkurfrétta eðlileg?
Texti: Jóhannes Kr. Kristjánsson • johannes@vf.is
Hermenn nálgast ljósmyndara við
Kirkjugarðinn í Keflavík við Garðveg í
maí.
Íslenskur lögregluþjónn ræðir við her-
mennina. Ljósmyndarinn myndar
áfram.
Vígalegur hermaður á vaktinni við
Helguvík. Ljósmyndari fékk að mynda
eftir að hafa sýnt skírteini.
Hermenn varnarliðsins gerðu
athugasemdir við störf ljósmyndara
Víkurfrétta við Grænás fyrir stuttu.
Hermenn gerðu athugasemdir við
störf ljósmyndara Víkurfrétta við
Patterson flugvöll á dögunum.
30. tbl. 2004LOKA3 21.7.2004 14:30 Page 8