Víkurfréttir - 22.07.2004, Side 12
G eitungar hafa svo sann-arlega gert sig heima-komna í garðinum hjá
Guðmundi Sigurðssyni og
Kristínu Jónasdóttur í Sand-
gerði en á rúmri viku hefur
tveimur geitungabúum verið
eytt í garðinum. Í fyrra skiptið
var búi eytt af meindýraeyði en
í seinna skiptið greip Guð-
mundur til sinna ráða og eyddi
búinu. Hann sagði það lítið
mál.
Eitur á bensínstöðvum
„Það er hægt að fá gott skordýra-
eitur í Esso en ræsissprey eða
bremsudiskahreinsir er mjög
góður sem eitur fyrir geitung-
ana,“ segir Guðmundur en hann
notaði skordýraeitur til að drepa
geitungana.
Mikið líf um kvöldið
„Ég sprautaði yfir búið þegar það
var farið að rökkva og beið með
að hreinsa það burt þar til daginn
eftir. Kvöldið sem ég úðaði eitr-
inu yfir var mikið líf í kringum
búið en um morguninn var engin
hreyfing. Það var því lítið mál að
hreinsa búið og koma því í
poka.“
Verða vitlausir í ágúst
Guðmundur varð ekki fyrir neinu
ónæði þegar hann tók búið og
hann segir að geitungarnir hafi
látið lítið fyrir sér fara. „Það er
ekki fyrr en í ágúst sem að þeir
verða kolvitlausir. Ég vildi bara
eyða þessu strax svo þeir færu
ekki að ónáða fjölskylduna,“ seg-
ir Guðmundur en honum er
meinilla við geitunga. „Ég var
stunginn í lærið þegar ég var er-
lendis og lærið bólgnaði upp. Það
er ekki þægilegt að vera stung-
inn.“
Að sögn Guðmundar er gott fyrir
fólk að fylgjast með umferð geit-
unganna í garðinum og finna
þannig búið. „Þær eru uppteknar
af því að fljúga alltaf sömu leið-
ina og maður finnur búið þan-
nig.“
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
stuttar
f r é t t i r
S amtökin Betri Bær kyn-ntu í dag umhverfisátaksem mun felast í því að
fegra húsin við Hafnargötu,
sjávarmegin að þessu sinni.
Skýtur skökku við að á meðan
Hafnargatan tekur á sig sífellt
fallegri blæ er ástand húsanna
á bakhliðinni enn frekar ósjá-
leg í flestum tilfellum.
Betri Bær, í samstarfi við Hörpu
Sjöfn, Reykjanesbæ og nokkur
fyrirtæki í málningargeiranum,
hefur nú gefið húseigendum við
Hafnargötuna tækifæri til að gera
bragarbót. Allir við Hafnargöt-
una, sem og aðrir íbúar Reykja-
nesbæjar, eiga þess kost að fá
málningu á góðum kjörum hjá
Hörpu Sjöfn auk þess sem þar
mun liggja fyrir listi yfir málara-
meistara sem eru þátttakendur í
átakinu.
Markmiðið með þessu framtaki
er að hvetja alla hlutaðeigandi til
að mála allar fasteignir á Hafnar-
götunni, báðum megin, á næstu
tveimur árum.
Myndir: 1)Húsin við Hafnargötu
eru ekki eins glæsileg séð frá
þessari hlið. 2) Fundarmenn hitt-
ust úti í góða veðrinu og virða
fyrir sér verkefnið.
Hafnargatan fær upplyftingu hinum megin
➤ Umhverfisátak í Reykjanesbæ heldur áfram:
➤ Íbúi í Sandgerði sker upp herör gegn geitungum í garðinum hjá sér:
Sá hluti Hafnargötunnar sem snýr að sjónum verður tekinn
í gegn á næstunni.
L augardaginn 24. júlí kl.14.00 verða haldnirsannkallaðir stórtónleik-
ar í Kálfatjarnarkirkju á
Vatnsleysuströnd. Þetta eru
tónleikar tékkneska tónlistar-
hópsins Musica ad Gaudium
sem hefur lagt lykkju á leið
sína milli anna við tónleika-
hald á meginlandi Evrópu. Í
heimsókn sinni hingað til lands
mun hópurinn einnig halda
tónleika í Akureyrarkirkju
sunnudaginn 25. júlí kl 17.00
og í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar þriðjudaginn 27. júlí kl
20.30.
Tékkneski tónlistarhópurinn
Musica ad Gaudium hefur sér-
hæft sig í flutningi tónlistar frá
endurreisnar- og barokktímabil-
inu, er mikilsvirtur á því sviði og
hefur hlotið fjölda viðurkenn-
inga. Hann hefur margoft gert
upptökur fyrir tékkneska útvarp-
ið auk tónleikahalds í Tékklandi
og nágrannalöndum. Musica ad
Gaudium skipa: Andrea
Brocáková sópran, Alena Tichá
semballeikari, Jaromír Tichý
flautuleikari og Václav Kapusta
fagottleikari. Auk þess að leika
með Musica ad Gaudium taka
þau öll virkan þátt í hinu fjöl-
breytilega tónlistarlífi Tékklands
sem einleikarar, í hljómsveitar-
og kammertónlist auk kennslu.
Gestur þeirra á tónleikunum er
Eydís Franzdóttir óbóleikari.
Á efnisskrá tónleikanna er tékk-
nesk barroktónlist auk verka eftir
Bach, Telemann, Marcello ofl.
Stórtónleikar í
Kálfatjarnarkirkju
Hreinsaði geitungabúið sjálfur
Sprautað í búið.
Daginn eftir var búið skorið
burt...
...og sett í gulan Bónuspoka.Þeir voru heldur óhressir
með vökvann.
Guðmundur ásamt sonum sínum. Fyrir nokkrum árum var Guðmundur stunginn
af geitungum erlendis og í kjölfarið bólgnaði á honum lærið. Honum er meinilla
við geitunga og vildi losna við þá úr garðinum.
92% lestur á Suðurnesjum
- samkvæmt könnun Gallup fyrir Víkurfréttir
Auglýsingasíminn er 421 0000
Slapp með skrekkinn
■ Ungir drengir komu í veg
fyrir eldsvoða í íbúð að Ása-
braut 11 í Reykjanesbæ að-
faranótt sunnudags. Þeir
sögðust hafa heyrt í reyk-
skynjara og runnið á hljóðið.
Þegar þeir litu inn um glugg-
ann í húsinu sáu þeir reyk og
höfðu samband við neyðarlín-
una þegar í stað. Lögreglan
spennti upp glugga þar sem
komið var að húsráðanda sof-
andi í íbúðinni. Honum var
ekki meint af. Plast sem lá á
eldavél í húsinu hafði bráðnað
og myndað reyk í húsinu en
slökkviliðið reykræsti íbúðina.
30. tbl. 2004LOKA 21.7.2004 12:17 Page 12