Víkurfréttir - 22.07.2004, Qupperneq 17
VÍKURFRÉTTIR I 30. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 22. JÚLÍ 2004 I 17
Sportpóstur: sport@vf.is
K örfuknattleiksmennirnirFannar Ólafsson og LogiGunnarsson munu stan-
da fyrir námskeiði fyrir unga
og upprennandi körfusnillinga
í íþróttahúsinu við Sunnubraut
næstkomandi laugardag.
Kapparnir voru með annað nám-
skeið fyrr í sumar og hugðust
koma aftur í ágúst, en vegna
anna með liðum sínum í Þýska-
landi og Grikklandi þurftu þeir
að flýta áætlunum sínum.
Þeir Logi og Fannar hafa gert
víðreist um landið í sumar og
verið með námskeiðin, sem eru í
samvinnu við KKÍ, í mörgum
byggðarlögum.
„Við vorum til að mynda í Vík í
Mýrdal laugardaginn 10.júlí og
var áhuginn gríðarlegur,“ sagði
Logi í samtali við Víkurfréttir.
„Það kom okkur mikið á óvart
hversu margir úr svona litlu bæj-
arfélagi mættu á námskeiðið og
ég vona að við sjáum sama
áhuga í Reykjanesbæ. Það er
enda mjög mikilvægt að krakkar
æfi sem mest yfir sumartímann
því það er tíminn til að bæta ein-
staklingshæfileika sína. Ég hef
fundið það sjálfur í gegnum tíð-
ina að það margborgar sig.“
Námskeiðið verður haldið laug-
ardaginn 24. júlí milli kl. 13 og
16 og er fyrir krakka á öllum
aldri. Þátttökugjald er 2500 kr. og
er veittur 50% systkinaafsláttur.
Áhugasamir geta skráð sig á
staðnum áður en námskeiðið
hefst.
Fannar og Logi aftur með
námskeið um helgina
T orfærukempan GunnarGunnarsson á Trúðnumlenti í öðru sæti á Heims-
bikarmótinu sem kláraðist um
helgina. Hann var í öðru sæti í
keppninni í Stapafelli á
Reykjanesi en náði toppsætinu
á Hellu. Gunnar hlaut einnig
tilþrifaverðlaun fyrir frammi-
stöðu sína þar.
Keppnin var í uppnámi allt fram
á síðustu stundu þar sem lengi
vel var útlit fyrir að ekki næðist
að losa bíla erlendu keppendanna
út úr tolli í tæka tíð.
Tollayfirvöld settu óheyrilegar
kröfur um tryggingarfjárhæð, 25
milljónir króna, en með hjálp
góðra manna á réttum stöðum
var hægt að leysa málið. Keppn-
irnar fóru fram eftir rest og var
almenn ánægja með framkvæmd
þeirra.
Gunnar var þó ekki alveg sáttur
við annað sætið í Heimsbikarn-
um þar sem hann á góðu að venj-
ast, enda margfaldur Íslands-
meistari og Akstursíþróttamaður
ársins í fyrra. „Ég hefði getað
tekið þetta en það munaði bara
einu stigi í lokin.“
Hann er sem stendur í efsta sæti
Íslandsmótsins í götubílaflokki
og í öðru sæti í heildarkeppninni
þegar tvö mót eru eftir af tímabil-
inu.
Trúðnum gekk vel í torfærunni
➤ Torfærukeppnin í Stapafelli:
K nattspyrnukonanNína Ósk Kristins-dóttir frá Sandgerði
var valin í úrvalsliðið fyrir
fyrstu 7 umferðir Lands-
bankadeildar kvenna.
Nína leikur með toppliði Vals
og hefur skorað 10 mörk í
sumar. „Þetta er auðvitað
mikill heiður,“ sagði Nína í
samtali við Víkurfréttir. „Ég
þakka þjálfaranum mínum
sérstaklega fyrir þessa framför
hjá mér undanfarið. Hún hef-
ur gert mig að mikið betri
leikmanni en ég var áður en
ég skipti yfir.“
Valsstúlkur hafa verið á mik-
illi siglingu í sumar og trjóna
á toppi deildarinnar. Nína
sagði að þær ætluðu að sjálf-
sögðu að halda út og taka titil-
inn. „Við erum komnar það
langt að við ætlum ekki að
klúðra þessu núna og sláum
ekkert af.“
Gunnar Gunnarsson á
Trúðnum í einni þrautinni í
Stapafelli um síðustu helgi.
F yrir helgina kláruðustmeistaramót golfklúb-banna um allt land. Þar
mátti sjá fjölmörg skemmtileg
tilþrif og voru margir meis-
tarar krýndir. Svo skemmtilega
vildi til hjá Golfklúbbi
Vatnsleysustrandar að þrír
ættliðir unnu til titla, í öldun-
ga-, kvenna- og unglingaflokki.
Golfklúbbur Suðurnesja
Mfl. karla:
1. Örn Ævar Hjartarson 284
högg
Mfl. kvenna:
1. Rut Þorsteinsdóttir 333 högg
Öldungar:
1. Jóhann R. Benediktsson 260
högg
Drengir:
1. Sigurður Jónsson 314 högg
Golfklúbbur Grindavíkur
Mfl. karla
Gunnlaugur Sævarsson 300
Mfl. kvenna
Arnfríður Grétarsdóttir 285
Öldungar
Steinþór Þorvaldsson 271
Golfklúbbur
Vatnsleysustrandar
Mfl. karla
Ragnar Davíð Riordan 249
Mfl. kvenna
Ragnheiður Gunnarsdóttir 340
Öldungar:
Gunnar Hallgrímsson 390
Unglingar:
Gylfi Þór Rögnvaldsson 315
Golfklúbbur Sandgerðis
Mfl. karla
Bjarni Sigþór Sigurðsson 292
Mfl. kvenna
Heiður Friðbjörnsdóttir 323 hög-
gum.
Öldungaflokkur
Auðunn Gestson 327
Unglingaflokkur
Viktor Gíslason 367
Fjölmargir meistarar á golfmótum á SuðurnesjumNína í úrvalsliðið
Það er aldeilis hægt að
segja að golf sé fjölskyldu-
íþrótt en hjá Golfklúbbi
Vatnsleysustrandar voru
þrír ættliðir á verðlauna-
palli. Afinn Gunnar
Hallgrímsson og mæðginin
Ragnheiður Gunnarsdóttir
og Gylfi Þór Rögnvaldsson.
30. tbl. 2004LOKA 21.7.2004 12:18 Page 17