Víkurfréttir - 22.07.2004, Page 23
Sólvallagata 26, Keflavík
3 herb. ca. 92m2 e.h. í tvíbýli
ásamt 41m2 bílskúr. Parket
og flísar á gólfum, nýleg eldh.
innrétting. Endurn. skolp,
ofnalagnir og raflagnir+tafla.
Áhv. viðbótarlán. Laus strax.
9.900.000,-
Smáratún 44, Keflavík
Um 130m2 einbýlishús ásamt
35m2 bílskúr. 3 svefnherb.,
mikið endurnýjað, verönd á
baklóð, garður ræktaður, vin-
sæl staðsetning.
15.900.000,-
Fífumói 5c, Njarðvík
2 herb. íbúð á 1. hæð í fjölbýli.
Snyrtileg eign. Nýtt parket á
stofu, flísar á baðherbergi.
Hagstætt áhvílandi.
5.900.000,-
Heiðarholt 28, Keflavík
78m2, 3 herb. íbúð á 1. hæð í
fjölbýli. Nýlegt parket á gólf-
um, ný innrétting á baði.
Falleg og björt eign. Forhitari
á miðstöð. Íbúðin er laus.
Lyngholt 18, Keflavík
Góð ca. 84m2 risíbúð í þríbýli.
Eignin hefur öll nýlega
verið endurnýjuð, nýjar innrétt-
ingar, ný gólfefni, nýjar hurðir
og skápar.
9.500.000,-
Hjallavegur 1, Njarðvík
3 herb. 81m2 íbúð á 2. hæð í
fjölbýli. Baðherb. nýlega tekið í
gegn, tæki ný í eldhúsi og gler.
Hagstætt áhvíl. Laus strax.
7.800.000,-6.900.000,-
Reykjanesvegur 8, Njarðvík
5 herbergja íbúð á e.h. í tvíbýli.
Mjög rúmgóð eign, nýlegt parket
á gólfum, endurnýjaðar skolp-
lagnir og neyslulagnir.
Nýir ofnar og ofnalagnir. Íbúðin
er laus.
9.900.000,-
Vatnsholt 20, Keflavík.
Skemmtileg ca. 102m2 parhús
á góðum stað. 3 svefnherbergi,
góðar innréttingar, skápar í
öllum herbergjum, geymsla á
háalofti. Laus stax.
13.900.000,-
Lágmói 21, Njarðvík
151m2 einbýli ásamt 40m2
innbyggðum bílskúr. Parket og
flísar á gólfum, nýjar fallegar
innréttingar, hurðir og skápar,
allt úr eik. Forhitari á miðstöð,
hiti í plani og stéttum.
21.000.000,-
Ásgarður 2, Keflavík
Um 150m2 einbýlishús ásamt
30m2 bílskúr. Gott hús á
góðum stað. Hellulögð verönd á
baklóð með heitum potti. Plan
hellulagt með hitalögn.
17.800.000,-
Guðlaugur H. Guðlaugsson löggiltur fasteigna- og skipasali
Halldór Magnússon sölustjóri
Hafnargötu 29, 2. hæð, Keflavík • Sími 420 4000 • fax 420 4009 • studlaberg.is
Hjallagata 2, Sandgerði
125m2, 5 herb. einbýli. Parket á
flestum gólfum, baðherbergi
flísalagt. Endurnýjaðar neyslu-
lagnir og hluti af gluggum.
Teikningar af bílskúr geta fylgt.
11.800.000,-
Mávabraut 3b, Keflavík
Um 90m2 raðhús á tveimur
hæðum ásamt bílskýli. Nýlegar
flísar á eldhúsi og stofu, stórar
svalir, nýtt grindverk á svölum.
9.300.000,-
Óðinsvellir 9, Keflavík
Um 165m2 einbýlishús ásamt
49m2 bílskúr. Mjög snyrtileg og
rúmgóð eign á góðum stað.
Nýlegar innréttingar og gólfefni.
Parket og flísar á gólfum.
19.500.000,-
Heiðarból 4, Keflavík
Um 63m2, 2 herb. íbúð á 3. hæð
í fjölbýli, laus fljótlega.
áhv. viðbótarlán.
Heiðarvegur 25, Keflavík
4ra herb. íbúð á n.h. í þríbýli.
Endurnýjað skolp og
rafmagn. Nýmálað að utan.
Bílskúrsréttur.
7.300.000,-
8.400.000,-
VÍKURFRÉTTIR I 30. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 22. JÚLÍ 2004 I 23
Þ að hefur skipt miklu fyrirSuðurnesin í gegnum árinað sveitarfélögin hér hafa
staðið saman að uppbyggingu og
rekstri þjónustustofnana fyrir
íbúana. Flestar þessar stofnanir
eru staðsettar í Reykjanesbæ og
nægir þar að nefna Sorpeyðing-
arstöðina, Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja, Heilbrigðiseftirlitið,
Brunavarnir Suðurnesja,
Sjúkrahúsið, Hlévang og skrifs-
stofu SSS. Raunsæið verður að
vera með í för þegar þessi mál
eru rædd og auðvitað er eðlilegt
að flestar stofnanir séu staðsettar
í Reykjanesbæ og að þeir hagnist
mest á samstarfinu, Reykjanes-
bær er jú stærsta sveitarfélagið á
Suðurnesjum.
Ein sameiginlega rekin stofnun er í
Garðinum, Garðvangur, og hefur
verið rekin í samstarfi sveitarfélag-
anna í tæp 30 ár og gengið mjög
vel. Eins og lesendur Víkurfrétta
hafa orðið varir við hafa nú orðið
kaflaskipti í afstöðu Reykjanesbæj-
ar til samstarfsverkefna sveitarfé-
laganna. Bæjarstjórn Reykjanes-
bæjar hefur sótt um að byggja
hjúkrunarheimili, sem staðsett yrði
í Reykjanesbæ. Þess ber að geta að
ekki var kannaður vilji til þess
hvort hægt yrði að vinna þetta
verkefni á sameiginlegum grunni,
þessi mál eru þó sameiginlega rek-
in í dag. Bygging nýs hjúkrunar-
heimilis í Reykjanesbæ án tengsla
við D.S. (Garðvang) hlýtur að hafa
áhrif á rekstur heimilisins í Garði.
Það er því í alla staði eðlilegt að
við Garðmenn höfum áhyggjur af
því hvað verði um Garðvang, eigi
þessi þróun sér stað. Bæjarstjórn
Garðs hefur rætt þessi mál og full-
trúar bæjaryfirvalda hafa meðal
annars átt fund með heilbrigðisráð-
herra. Undirritaður var á þeim
fundi og var okkur tjáð af ráðherra
að með umsókn Reykjanesbæjar
yrði staða og uppbygging öldrunar-
mála á Suðurnesjum skoðuð í heild
sinni.
Guðbrandur Einarsson, bæjarfull-
trúi Reykjanesbæjar, skrifar á vef
Víkurfrétta og gefur það í skyn að
Garðmenn ætli sér að koma í veg
fyrir byggingu nýs hjúkrunarheim-
ilis í Reykjanesbæ. Þessu vil ég
hér með vísa á bug því Garðmenn
hafa margoft tekið fram að það sé
mjög svo eðlilegt að hjúkrunar-
heimili verði byggt í Reykjanesbæ
og var þeirri skoðun komið á fram-
færi við ráðherra á fundi okkar.
Við höfum lagt áherslu á að fram-
tíðin og uppbygging öldrunarheim-
ila yrði skoðuð í heild sinni fyrir
Suðurnesin og helst væri þetta gert
á sameiginlegum vettvangi eins og
staðið hefur verið að annarri þjón-
ustuuppbyggingu á svæðinu. Und-
ir þessi sjónarmið tók heilbrigðis-
ráðherra, og er það á þeim forsend-
um að við Garðmenn viljum fá
fulltrúa í nýskipuðum viðræðuhóp
vegna uppbyggingar öldrunarmála.
Fyrir liggur álit stjórnar og fram-
kvæmdarstjóra D.S. að mjög brýnt
sé að ráðast í endurbætur við Garð-
vang. Heimilið er þannig í dag að
herbergin eru yfirleitt lítil og her-
bergin jafnvel tveggja eða þriggja
manna. Nútíma kröfur kalla á auk-
ið rými og að um einstaklingsher-
bergi sé að ræða. Stærð heimilisins
í dag er rekstarlega óhagkvæm og
er því ekki réttlætanlegt að fækka
vistmönnum og þannig auka kostn-
að á vistmann. Til að ná fram auk-
inni hagkvæmni þarf heimilið að
stækka eða rekstrarform þess að
breytast.
Í máli sem þessu þarf enginn
ágreiningur að vera heldur væri
eðlilegt að menn ræddu málin á
samstarfsvettvangi. Hér á Suður-
nesjum hafa verið og eru öflug
sveitarfélög, sem vinna af krafti að
uppbyggingu í sínu sveitarfélagi en
hafa svo náð góðum árangri í að
byggja upp sameiginlega þjónustu
öllum íbúum svæðisins til góða.
Hvað er að því að halda áfram á
þeirri braut?
Einar Jón Pálsson
Bæjarfulltrúi í Garði
Hagsmunir aldraðra
á Suðurnesjum
➤ Aðsend grein um málefni aldraðra:
[ Tímarit Víkur
frétta • júlí 20
04 ]
T V Ö B L Ö Ð
Í E I N U !
T Í M A R I T I
Ð Q M E N
- K R Y D D A
R T I L V E R
U N A
TEKINN AF LÍFI
AF FJÖLMIÐLI
Eldhugi
MEÐ ADRENA
LÍN Í ÆÐUM
5
6
9
0
3
1
0
0
2
3
2
1
6
BREIÐBANDIÐ GRILLAÐ
Fékk 14 milljóna
kr.
glæsibifreið að g
jöf
- skin og skúri
r í lífi Fannars
Ólafssonar
- Sigmundur E
yþórsson hefu
r þurft að glím
a við marga s
tórbruna
Verð kr. 499,- m
/vsk.
• Í garðinum h
já Sigrúnu Hau
ksdóttur • Á ef
tir bolta kemu
r barn • Frá Ke
flavík til Kabú
l •
Grillað með Br
eiðbandinu • F
reyja í toppfor
mi • Með kakk
alökkum í Kól
umbíu
• Fótboltafíkil
l úr Grindavík
• Bergásballið
• Hjólað til Ak
ureyrar • Tísku
þættir og m.fl
. •
STÆRRA BLAÐ - 68 SÍÐUR
2.
tö
lu
bl
að
6
. á
rg
an
gu
r •
jú
lí 2
00
4
• B
la
ð
nr
. 2
2 •
V
er
ð
kr
. 4
99
,- m
/v
sk
.
frá ríkum viðsk
iptavini
TVF 2-2
004 -
68 sidu
r pk II
13.7.
2004 13
:52 Pa
ge 1
„Frá Keflavík til Kabúl“
68 síðna troðfullt TVF í næstu verslun.
30. tbl. 2004LOKA3 21.7.2004 15:04 Page 23