Víkurfréttir - 30.03.2017, Side 6
6 fimmtudagur 30. mars 2017VÍKURFRÉTTIR
Sólborg Guðbrandsdóttir
solborg@vf.is
Lísa Einarsdóttir lék eitt aðalhlut-
verkanna í Litlu Hryllingsbúðinni
sem Leikfélag Keflavíkur hefur sýnt
undanfarnar vikur og vakti athygli
fyrir góða frammistöðu á sviðinu.
Blaðamaður Víkurfrétta náði tali af
Lísu þar sem hún var að ljúka við
kennslu, en hún er umsjónarkennari
annars bekks í Njarðvíkurskóla ásamt
því að sinna, vægast sagt, mörgu öðru.
Auk kennslunnar og leiklistarinnar er
hún söngkona og móðir, svo fátt eitt
sé nefnt.
Lísa hefur frá unga aldri tekið þátt
í tónlist. Sem barn var hún mikið í
kórum, lærði söng í Domus Vox, hjá
Tónlistarskóla FÍH og kláraði miðstig
í klassísku námi í Söngskóla Reykja-
víkur en áttaði sig síðan seinna meir á
því að klassískt nám væri ekki hennar
tebolli. „Ég hef verið að syngja úti
um allt. Við skírnarathafnir, í brúð-
kaupum, afmælum og á alls konar
böllum bæði með hljómsveitum og
með undirspil. Þetta hefur gefið mér
góða reynslu.“
Árið 2009 tók Lísa þátt í Idol Stjörnu-
leit þar sem hún endaði í 3. sæti.
Fljótlega eftir það fór hún að syngja
með hljómsveitinni Íslenska Sveitin
sem spilaði víða. Hún tók einnig þátt
í Söngvakeppni Sjónvarpsins árin
2007 og 2011. „Það hefur alltaf verið
draumurinn að fara með tónlistina
mína út fyrir Ísland, en dómararnir
í höfðinu hafa stoppað mig af,“ segir
Lísa en hún hefur verið að semja tón-
list og ætlar hugsanlega að gefa út lög
á næsta ári.
Lísa er meðlimur í Kíton, sem er
hópur kvenna í tónlist á Íslandi. „Það
hefur mikið verið rætt að það séu
nánast engar konur í tónlist og að þær
hafi ekki áhuga á tónlist. En það er
bara alveg hellingur af konum þarna.
Tilgangur Kíton er skapa jákvæða um-
ræðu, samstöðu og samstarfsvettvang
meðal kvenna í tónlist.” Meðal ann-
arra meðlima Kítón af Suðurnesjum
eru Elísa Newman, Harpa Jóhanns-
dóttir og Marína Ósk Þórólfsdóttir.
Lísa er lærður kennari, með diplómu
í lestrarfræði, viðbótar diplómu í hag-
nýtri jafnréttisfræði og með master í
faggreinakennslu í grunnskóla. „Ég er
bara búin að vera í smá fríi í tónlist-
inni. Ég er búin að vera í námi síðan
árið 2009 og eignaðist barn árið 2015.“
Samhliða öllu þessu tók Lísa þátt í
uppsetningu Leikfélags Keflavíkur á
Litlu Hryllingsbúðinni, sem sýnd var
seinustu vikur, sem hún segir hafa
verið ótrúlega skemmtilegt. Með því
fetaði hún í fótspor móður sinnar sem
lék með leikfélaginu sem unglingur.
„Ég þurfti bara einhvern veginn að
koma mér af stað. Mig hefur ótrúlega
lengi langað að leika með Leikfélagi
Keflavíkur en hingað til ekki þorað.
Svo ákvað ég bara að kýla á það. Það
fer mikill tími í þetta en þetta gefur
manni bara svo ótrúlega mikið.“
Dómararnir í höfðinu
hafa stoppað mig af
●● „Alltaf●verið●draumurinn●að●fara●með●tónlistina●mína●út●fyrir●Ísland,“●●
segir●söngkonan●Lísa●Einarsdóttir.
Lísa á sviðinu í Frumleikhúsinu.
Lísa baksviðs í Litlu hryllingsbúðinni.
Lísa með nemendum sínum.
Það voru nokkuð blendnar tilfinningar hjá mörgum eftir opinn fund um
tvöföldun Reykjanesbrautar í Stapa í síðustu viku. Jón Gunnarsson sam-
gönguráðherra veifaði engu peningaveski og sagði stöðuna þrönga því mesta
fjármagnið færi í velferðar- og heilbrigðismál. Lausnin væri gjaldtaka.
Viðbrögð við gjaldtöku hafa verið hörð og lang flestir á móti hugmyndinni.
Ráðherra sagðist hafa fengið nokkuð sterk viðbrögð frá fólki frá Norðurlandi
og Austurlandi, það væri fylgjandi því að fara í gjaldtöku ef það myndi flýta
fyrir vegabótum eða nýjum göngum. Forráðamenn áhugahópana Stopp -
hingað og ekki lengra og Grindavíkurvegar-hópsins sögðu í viðtölum við
Víkurfréttir að með réttri útfærslu á gjaldtöku ætti að vera hægt að sannfæra
landsmenn um að hún væri málið. Það var hins vegar svolítið sérstakt að
daginn eftir fundinn greindi sami ráðherra frá aukafjármagni upp á tólf-
hundruð milljónir króna og engu af því var veitt til vegamála á suðvestur
horninu. Það er eiginlega ekki hægt að lesa annað út úr því en að ráðherra
ætli ekki að gefa sig í gjaldtökunni. Framkvæmdir við Reykjanesbraut,
Grindavíkurveg eða aðra vegi sunnanlands verði ekki að veruleika í okkar lífi
nema með gjaldtöku.
Líklega er ekki annað í stöðunni en að sætta sig við það en þó ekki öðruvísi
en að hún verði þannig að Íslendingar sem nota vegina okkar mest greiði hóf-
legt gjald en þeir sem nota vegina minna, eins og t.d. ferðamenn, greiði hærra
gjald. Það var að heyra á ráðherra að unnið væri að slíkum hugmyndum. Þær
eiga að líta dagsins ljós á næstu vikum. Það er nauðsynlegt að það gerist fyrr
en síðar. Það er alveg hægt að taka undir rök ráðherrans um að með því að
flýta framkvæmdum þannig sé mikill ávinningur, ferðatími sparast, bílarnir
eyða minna eldsneyti og rúsínan í pylsuendanum sé fækkun slysa.
Karl Óskarsson, ökukennari og skipstjóri á Suðurnesjum, kom með áhuga-
verða umræðu á fundinum. Hann sagði að meirihluta bílslysa mætti rekja
til mannlegra mistaka frekar en ástands vega eða farartækja. Hann benti
á að auka þyrfti fræðslu en það hefði gefið mjög góða raun í sjávarútvegi.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, vakti athygli á þessu á
fésbókarsíðu sinni og sagði: „Ætli margvísleg notkun farsíma undir stýri eigi
ekki stóran þátt í þeim mannlegu mistökum? Hvernig væri að við tækjum
höndum saman um bætta umferðarmenningu með öllum mögulegum
ráðum. Virða umferðarlög, hámarkshraða, vera tillitssöm í umferðinni og
svo framvegis. Að minnsta kosti ætla ég að lýsa því yfir hér að ég er hættur að
nota símann undir stýri, nema að tala í hann með handfrjálsum búnaði, og
skora á alla FB vini mína að gera slíkt hið sama. Steinhætta því!“
Örugglega geta mjög margir tekið undir orð bæjarstjórans.
SÍMI UNDIR STÝRI
RITSTJÓRNARPISTILL
Páll Ketilsson
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421
0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002,
eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, sími 421 0002, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími
421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 // Afgreiðsla: Dóróthea
Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is // Prentvinnsla: Landsprent // Upplag:
9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er
almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á
þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um
einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar
hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það
birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
ATVINNA
STARFSKRAFTUR ÓSKAST Í HREINGERNINGAR / RÆSTINGAR
STAFF NEEDED.
FULL TIME - TEMP WORK AND AND HOUR BY HOUR
Okkur hjá Allt hreint vantar fólk til starfa.
Í boði er fullt starf, hálft starf, afleysingar eða
útkallsvinna ( tímavinna eftir samkomulagi ).
Kröfur: Viðkomandi verður að vera amk 18 ára
og vera með gild ökuréttindi
Áhugasamir sendi tölvupóst á halldor@allthreint.is
Requirements: Individuals must be at least
18 years old and have a valid driver’s licens
Languages: Icelandic or good English
We look for people for full time work (08:00 - 16:00 100%)
Half day work (08:00 - 12:00 or 12:30 - 16:00)
And also wokformat hour by hour
If interested send e-mail to halldor@allthreint.is