Víkurfréttir - 30.03.2017, Qupperneq 8
8 fimmtudagur 30. mars 2017VÍKURFRÉTTIR
ALLTAF PLÁSS
Í B Í L N U M
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
SÍMI: 845 0900
Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ vilja láta
loka kísilverksmiðju United Silicon í
Helguvík sem fyrst og hafa sent erindi
þess efnis til Umhverfisstofnunar.
Fulltrúar Umhverfisstofnunar funda
með bæjarráði í dag, fimmtudag, og
fara yfir stöðu mála varðandi mengun
frá verksmiðjunni. Nýlega lágu fyrir
niðurstöður mælinga sem sýndu að
styrkur arsens í andrúmslofti er mun
meiri en gert var ráð fyrir í mati á
umhverfisáhrifum verksmiðjunnar. Í
matinu er gert ráð fyrir að hæst geti
styrkur arsens náð 0,32 ng/m3 en
mælingar sýna að styrkurinn sé á milli
6 til 7 ng/m3.
„Ég tel best að verksmiðjunni verði
lokað strax. Það er búin að vera lykt
nánast hvern einasta dag undanfarið
og það gengur ekki. Það er greinilega
eitthvað mikið að við rekstur verk-
smiðjunnar. Nú er kominn sá tíma-
punktur að þetta er komið gott,“ segir
Friðjón Einarsson, formaður bæjar-
ráðs Reykjanesbæjar.
Bæjaryfirvöld hafa haft þungar
áhyggjur af mengun frá verksmiðj-
unni í marga mánuði, að sögn Frið-
jóns. „Við höfum verið í miklu sam-
bandi bæði við fulltrúa United Silicon
og Umhverfisstofnunar. Í síðustu viku
höfðum við svo samband við Um-
hverfisstofnun þar sem við höfðum
áhyggjur af þeirri mengun sem hefur
mælst. Þá ítrekuðum við þá skoðun
okkar að Umhverfisstofnun taki til
sinna ráða. Við lítum svo á að þessi
verksmiðja sé á síðasta séns,“ segir
hann.
Samstöðufundur gegn stóriðju
Boðað hefur verið til samstöðufundar
gegn stóriðju í Reykjanesbæ á morgun,
föstudaginn 31. mars, klukkan 18:00
við Ráðhúsið við Tjarnargötu. Í
fundarboði segir að kominn sé tími
til að íbúar Reykjanesbæjar láti í sér
heyra vegna mengunar frá United
Silicon og vegna fyrirhugaðrar bygg-
ingar kísilverksmiðju Thorsil, einnig
í Helguvík.
Rætt á Alþingi
Mengun frá verksmiðju United Sili-
con var rædd á Alþingi í vikunni.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks og íbúi í Reykja-
nesbæ, baðst afsökunar á því að hafa
á sínum tíma stutt við uppbyggingu
starfseminnar í Helguvík sem hefði
fengið hundruði milljóna í styrki frá
ríkinu en greiddi starfsmönnum lág
laun og hefði ekki stjórn á mengun.
Afsökunarbeiðninni kom Ásmundur
á framfæri í aðsendri grein á vef Vík-
urfrétta og í ræðu sinni á Alþingi á
þriðjudag.
Heilsuspillandi áhrif til langs tíma
Taldar eru mjög litlar líkur á að arsen-
mengun undanfarna mánuði á Suður-
nesjum muni valda alvarlegum heilsu-
spillandi áhrifum eins og krabbameini
hjá íbúum í nágrenni kísilverksmiðju
United Silicon. Þetta kom fram í
yfirlýsingu frá Sóttvarnalækni. Þar
segir jafnframt að haldi mengunin
áfram til nokkurra ára í svipuðu eða
meira magni en nú er, megi búast
við auknum líkum á heilsuspillandi
áhrifum þó að ekki sé hægt að segja
með vissu hversu mikil sú aukna
áhætta er.
Tekjur Isavia á síðasta ári námu 33
milljörðum, sem er aukning um 27
prósent á milli ára. Þetta er mesta
tekjuaukning frá stofnun félagsins og
má að mestu leyti rekja hana til fjölg-
unar farþega á Keflavíkurflugvelli, að
því er kemur fram í tilkynningu frá
Isavia.
Ársreikningur Isavia var samþykktur
á aðalfundi á dögunum. Heildaraf-
koma nam 6,9 milljörðum króna að
meðtöldum gengishagnaði upp á 2,8
milljarða króna sem er til kominn
vegna styrkingar íslensku krónunnar.
Farþegum um Keflavíkurflugvöll
fjölgaði um 40 prósent á síðasta ári,
flugvélum sem fóru um íslenska flug-
stjórnunarsvæðið fjölgaði um 13,5
prósent og innanlandsfarþegum um
8 prósent. Að sögn Óla Björns Hauks-
sonar, forstjóra Isavia, var síðasta ár
frábært rekstrarár og ánægjulegur
vöxtur á öllum sviðum fyrirtækisins.
„Rekstur Keflavíkurflugvallar er auð-
vitað mest áberandi, en þaðan koma
mestu tekjurnar og hafa þær verið
nýttar í nauðsynlega uppbyggingu
flugvallarins. Hins vegar var einnig
gríðarleg aukning í flugumferð um
íslenska flugstjórnarsvæðið og höfum
við brugðist við henni með bættum
búnaði, stækkun húsnæðis og fjölgun
starfsfólks.“ Björn segir liggja fyrir að
ráðast þurfi í miklar fjárfestingar á
Keflavíkurflugvelli á næstu árum til að
mæta áframhaldandi fjölgun farþega.
Eiginfjárstaða sé sterk og félagið því
vel í stakk búið til að takast á við þær.
Á móti komi að þessar fjárfestingar
muni kalla á aukið aðhald í rekstri á
meðan þær standa yfir.
Verksmiðja á síðasta séns
●● Bæjaryfirvöld●í●Reykjanesbæ●vilja●láta●loka●United●Silicon
●● Íbúar●hittast●á●samstöðufundi●gegn●stóriðju●á●morgun,●föstudag
Mesta tekjuaukning Isavia frá stofnun
●● Miklar●fjárfestingar●á●næstu●árum●vegna●fjölgunar●farþega
Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um
40 prósent á síðasta ári. Mynd/Isavia
Styrkur arsens í útblæstri frá kísilverksmiðju United Silicon er mun meiri en gert var ráð fyrir í umhverfismati.
Suðurnesjamagasín Sjónvarps Víkurfrétta
hefur fengið nýjan sýningartíma á fimmtudagskvöldum á Hringbraut.
Framvegis er þátturinn sýndur kl. 20:00 og endursýndur kl. 22:00.
Þá er þátturinn sýndur föstudaga kl. 12, 14, 16 og 18.
Á laugardögum er þátturinn kl. 14 og 22.
Sunnudaga er Suðurnesjamagasín kl. 08 og 18.
Reisa 30 metra
fjarskiptamastur við Hópsnesvita
■ Neyðarlínan hefur óskað eftir heimild til að reisa 30 metra stálmastur
við hlið Hópsnesvita til að bæta neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi. Auk
þess skapast möguleiki fyrir fjarskiptafyrirtæki að bæta farsíma- og net-
þjónustu. Hópsnesviti er 16 metra hár og því verður nýja mastrið næstum
tvöföld hæð vitans.
Skipulagsnefnd lagði til við bæjarstjórn Grindavíkur að byggingaráformin
verði samþykkt með fyrirvara um að settir verði skilmálar um jarðrask og
frágang til að tryggja að umgengni á framkvæmdartíma verði til fyrirmyndar.
Einnig að fyrir liggi jákvæð umsögn Vegagerðarinnar og Samgöngustofu
ásamt leyfi landeigenda.
Umsóknin var tekin fyrir á síðasta fundi bæjarstjórnar Grindavíkur þar sem
sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti málið. Á fundinum sam-
þykkti bæjarstjórn samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
VILTU VINNA
MEÐ OKKUR Í SUMAR?
Við erum að leita að starfsmönnum í eftirfarandi störf:
Umsóknarfrestur til 5. apríl 2017.
Nánari upplýsingar um störfin má finna á www.sandgerdi.is
Starfsskólinn - Flokkstjórar, 18 ára+
Leikjanámskeið barna - Umsjónarmaður, 20 ára+
Sumarvinna - Slátturhópur, 17 ára+ - Verkstjóri, 20 ára+
Íþróttasvæði - Umsjónarmaður með grasvöllum.
Þjónustumiðstöð (áhaldahús) - Sumarstarfsmaður