Víkurfréttir - 30.03.2017, Blaðsíða 10
10 fimmtudagur 30. mars 2017VÍKURFRÉTTIR
Hringbraut 99 - 577 1150
FAGLEG, TRAUST OG
PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA
VIÐ BJÓÐUM MEDISMART RUBY BLÓÐSYKUR-
MÆLA, STRIMLA, BLÓÐHNÍFA OG NÁLAR FRÍTT
FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ SKÍRTEINI FRÁ TR.
Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 - 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 - 18:00.
MJÖG EINFALDUR Í NOTKUN,
STÓR SKJÁR, LÉTTUR OG HANDHÆGUR
- „No coding“ þarf ekki að núllstilla
- Þarf mjög lítið magn til mælinga, aðeins 0,6µl
- Mælir blóðsykur á bilinu 1.1 - 35 mmol/L
- Mæling tekur aðeins 5 sek.
- Geymir 480 mælingar í minni
- Hægt að tengja við tölvu
Apótek Suðurnesja leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf á lágmarks-
verði, þar sem fagmennska, heiðarleiki og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi.
VILT ÞÚ VINNA
ÚTI Í SUMAR?
Okkur vantar sumarstarfsmenn í Reykjanesbæ.
Um er að ræða 2 stöður þar sem mikill kostur
er að vera með vinnuvélaréttindi, þó ekki skilyrði.
Umsóknir á www.gardlist.is
Enn er unnið að þróun þjónustu-
kjarna undir nafninu Rósasel við
Rósaselstorg, síðasta hringtorgið áður
en komið er að Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar á Keflavíkurflugvelli. Rósasel
er í landi Sveitarfélagsins Garðs en
Kaupfélag Suðurnesja hefur unnið að
verkefninu undanfarin misseri.
Á aðalfundi Kaupfélags Suðurnesja,
KSK, fyrir síðustu helgi var staðan við
Rósasel kynnt fundarmönnum. Kom
fram að Skipulagsstofnun hefur af-
greitt breytingar á aðalskipulagi Kefla-
víkurflugvallar til Umhverfisstofn-
unar til afgreiðslu og Sveitarfélagið
Garður er samhliða að undirbúa
breytingar á aðal- og deildiskipulagi
fyrir Rósaselssvæðið.
Verkefninu við Rósasel hefur verið
skipt upp í fjóra áfanga. Í fyrsta áfanga
er gert ráð fyrir 500 fermetra bensín-
stöð, 1000 fermetra Nettó-verslun og
1000 fermetra veitingahluta. Í öðrum
áfanga er gert ráð fyrir 800 fermetra
verslunarhluta og 1800 fermetra hót-
eli. Í þriðja áfanga verkefnisins er gert
ráð fyrir 2800 fermetra stórverslun og
í fjórða og síðasta áfanganum er svo
húsnæði fyrir 3000 fermetra bifreiða-
þjónustu.
Skúli Skúlason, stjórnarformaður
Kaupfélags Suðurnesja, segir í sam-
tali við Víkurfréttir að búist sé við
að skipulagsmál á svæðinu verði frá-
gengin í haust. Umhverfisstofnun
hefur þrjá mánuði til að afgreiða
málið frá sér og þá getur Sveitarfélagið
Garður auglýst skipulagið en það ferli
getur tekið tvo til þrjá mánuði.
Skúli segir að tímaáætlun fyrir verk-
efnið hafi ekki verið ákveðin. Tíma-
lengd áfanga ræðst af eftirspurn og
áhuga markaðarins. Í öðrum áfanga
verkefnisins er meðal annars gert ráð
fyrir 1800 fermetra hóteli og/eða skrif-
stofuhúsi. Ekki er kominn ákveðinn
samstarfsaðili að þeim áfanga bygg-
ingarinnar. Hins vegar hafa nokkur
veitingafyrirtæki sýnt því áhuga að
vera með á veitingatorgi þjónustu-
kjarnans.
Greint var frá því síðasta haust að
gengið hafi verið frá samningum við
fjóra aðila um rekstur í verslunar- og
þjónustukjarnanum Rósaselstorgi
sem áætlað er að rísi rétt við flug-
stöðina á Keflavíkurflugvelli. Á meðal
þeirra eru Nettó með matvöruverslun,
Subway, Pizza Hut, KFC, Taco Bell
og Grill 66 með veitingastaði og Olís
með eldsneytissölu og þjónustu. Auk
fjölbreyttrar þjónustu við erlent og
innlent ferðafólk þá er þess vænst að
staðsetning kjarnans geti verið gátt að
ferðamannastöðum á Reykjanesi og
fjölgað þeim erlendu ferðamönnum
sem staldra við á svæðinu.
Stefna að framkvæmdum
við Rósasel í haust
●● Strandaði●á●aðalskipulagi●Keflavíkurflugvallar
●● Bensínstöð,●Nettóverslun●og●veitingastaðir●í●fyrsta●áfanga
●● Hótel,●skrifstofur,●stórverslun●og●bílaþjónusta●í●síðari●áföngum
Svona mun Rósasel líta út þegar það hefur verið fullbyggt.
Aðalfundur Kaupfélags Suðurnesja,
KSK, fór fram síðasta fimmtudag 23.
mars. Í máli Skúla Skúlasonar, for-
manns KSK, kom fram að félögum
hefur fjölgað um 404 á árinu og voru
5521 í árslok 2016. Afslættir sem
verslanir Samkaupa veittu til félags-
manna voru að upphæð 180 milljónir
króna á síðasta ári.
Í skattaspori samstæðunnar kemur
fram að skattar og gjöld námu 4.8
milljörðum og dreifast skattgreiðslur
um öll kjördæmi landsins. Skattar og
gjöld sem horft er til í þessari saman-
tekt eru: Tekjuskattur, aðflutnings-
gjöld af eigin innflutningi, virðisauka-
skattur af seldri vöru og þjónustu,
tryggingagjald, fasteignagjöld og
launaskattar starfsmanna samstæð-
unnar. Virðisaukaskattur (útskattur)
af seldri vöru og þjónustu vegur
þyngst og nemur í heild um 3,9 millj-
örðum króna. Launaskattar starfs-
manna vega einnig þungt og nema
um 481 milljón króna.
Á árinu 2016 námu launagreiðslur
til starfsmanna og framlag í lífeyris-
sjóð 2,6 milljörðum króna. Í lok ársins
2016 voru 508 stöðugildi hjá sam-
stæðunni. Um 70% af launagreiðslum
eru utan höfuðborgarsvæðisins.
KSK er samvinnufélag á neytenda-
sviði, stofnað 13. ágúst 1945. Félags-
svæði KSK er Suðurnes, Hafnar-
fjörður, Kópavogur, Garðabær, Sel-
tjarnarnes og Reykjavík. Vel var mætt
á aðalfundinn en 60 fulltrúar úr 7
deildum eiga þar seturétt.
KSK veitti félagsmönnum 180
milljónir króna í afslætti í fyrra
●● 5521●félagsmaður●í●KSK●og●508●●
stöðugildi●hjá●félaginu
Leita tilboða
í skólamat
■ Ríkiskaup, fyrir hönd Reykjanes-
bæjar, óska eftir tilboðum í fram-
leiðslu og framreiðslu á skólamat
fyrir grunnskóla Reykjanesbæjar. Í
verkinu felst að framleiða matinn og
afhenda á tilteknum tíma og fram-
reiða ásamt uppvaski og frágangi að
máltíð lokinni ásamt því að farga úr-
gangi sem til fellur. Einnig er óskað
eftir tilboðum í síðdegishressingu
fyrir nemendur í frístundaskóla.
Á vef Reykjanesbæjar segir að mark-
mið með rekstri mötuneyta í grunn-
skólum Reykjanesbæjar sé að bjóða
upp á heilsusamlegan og fjölbreyttan
matseðil sem fylgi ráðleggingum um
mataræði og næringargildi sem finna
má í handbók Lýðheilsustöðvar um
skólamötuneyti. Þar segir einnig að
bjóðandi skuli gera ráð fyrir að þurfa
að bjóða upp á sérfæði fyrir nemendur
sem af heilsufarslegum ástæðum gætu
þurft á slíku sérfæði að halda, svo sem
vegna ofnæmis eða efnaskiptasjúk-
dóma. Einnig fyrir nemendur sem af
trúarlegum ástæðum þurfa á sérfæði
að halda.
Keilir býður nú upp á Háskólabrú í
bæði fjarnámi og staðnámi haustið
2017 og verður hægt að taka námið
bæði með og án vinnu. Námið er ætl-
að einstaklingum sem hafa ekki lokið
stúdentsprófi og uppfylla nemendur
að loknu náminu inntökuskilyrði í
háskóla hérlendis og erlendis. Keilir er
eini skólinn sem býður upp á aðfarar-
nám í samstarfi við Háskóla Íslands og
gildir námið meðal annars til inntöku
í allar deildir HÍ.
Skólinn fagnar tíu ára afmæli á þessu
ári og hafa um 1.500 nemendur út-
skrifast af Háskólabrú Keilis frá upp-
hafi. Háskólabrú hefur undanfarin ár
markað sér sérstöðu í að veita ein-
staklingsmiðaða þjónustu og stuðning
við nemendur. Kennsluhættir miða
við þarfir fullorðinna nemenda,
miklar kröfur eru gerðar um sjálfstæði
í vinnubrögðum og eru raunhæf verk-
efni lögð fyrir.
Umsóknarfrestur er til 12. júní næst-
komandi. Nánari upplýsingar um
námið má nálgast á www.haskolabru.
is
Háskólabrú Keilis bæði
í fjarnámi og staðnámi