Víkurfréttir - 30.03.2017, Qupperneq 20
20 fimmtudagur 30. mars 2017VÍKURFRÉTTIR
Sólborg Guðbrandsdóttir
solborg@vf.is
Dagný Halla Ágústsdóttir er 16 ára
Keflavíkingur sem hefur lengi haft
áhuga á pólitík. Í nóvember síðast-
liðnum stofnaði hún ungliðahreyf-
ingu Pírata á Suðurnesjum fyrir fólk
á aldrinum 16 til 35 ára. „Fyrir mér
er pólitík dyr að breytingum. Pólitík
snertir öll mál; hvort þú megir ganga
í skóla, hvað þú megir gera við líkama
þinn og hvernig samfélagið almennt
er. Ég er ekki sátt með það hvernig
heimurinn er í dag,” segir hún.
Aðspurð af hverju Dagný taki þátt í
pólitík segist hún gera það til að fram-
kvæma þær breytingar sem hún vilji
sjá gerast í samfélaginu. „Ég vil vera sú
persóna sem ég hefði geta litið upp til
áður. Svo er þetta líka bara svo ótrú-
lega gaman þegar þú lærir inn á allt.”
Þátttaka ungs fólks í pólitík hefur ekki
verið mikil og kjörsókn aldrei verið
minni og telur Dagný ungt fólk ekki
skilja sitt eigið vald. „Ég vissi ekki að
ég gæti tekið þátt í að móta stefnur
stjórnmálaflokks sem gætu í raun
seinna orðið efni í alþingisfrumvörp,
bara með því að mæta á fund. Ég
vissi ekki að ég gæti stofnað ungliða-
hreyfingu stjórnmálaflokks á innan
við viku. Ég hafði ekki hugmynd.
Eins finnst mér margir vanmeta at-
kvæðarétt sinn. Um það bil helmingur
Bandaríkjamanna mæta ekki á kjör-
stað vegna þess að þeir trúa því að
þeirra atkvæði skipti ekki máli. Ég
vona innilega að þróunin verði ekki
svona á Íslandi og að stjórnmál verði
ennþá aðgengileg.”
Að mati Dagnýjar vantar klárlega
fleira ungt fólk í pólitík og finnst
henni það hafa verið bælt niður. „Ég
myndi ráðleggja ungu fólki að láta
bara vaða. Mæta á fundi, bæta stjórn-
málafólki við á vinalistann á Facebook
og fylgjast með viðburðum á síðum
flokkanna. Það er ótrúlega mikið og
fjölbreytt stjórnmálastarf í boði og
flestir stærstu flokkarnir eru með ung-
mennahreyfingu, en ef ekki er ekkert
mál að taka sig bara til og stofna hana
sjálfur. Þetta er skrýtið og flókið fyrst.
Þá ert þú til dæmis í herbergi með
ókunnugu, fullorðnu fólki sem notar
fullt af hugtökum sem þú kannast ekki
við en svo kemur þetta smátt og smátt.
Þú kynnist frábæru fólki. Kláru og
menntuðu fólki, uppreisnarseggjum,
þingmönnum og aktívistum. Þú tekur
þátt í að gera Ísland að betri stað fyrir
þig og þína og það er það sem mér
finnst best við stjórnmál.”
GERIR ÍSLAND AÐ BETRI
STAÐ FYRIR SIG OG SÍNA
●● Hin●16●ára●Dagný●Halla●stofnaði●ungliðahreyfingu●Pírata●á●Suðurnesjum
Sólborg Guðbrandsdóttir
solborg@vf.is
Sandgerðingurinn Arnar Helgason starfar á leik-
skólanum Sólborg í Sandgerði. Þegar hann þurfti
að minnka við sig vinnu vegna heilsubrests ákvað
hann að byrja að vinna á leikskóla og segist elska
vinnuna sína. „Ég var til í að prófa allt svo ég
þyrfti ekki að hanga heima. Þetta er svo fjölbreytt
og gefandi, það kom mér á óvart,“ segir Arnar,
sem hefur nú starfað á leikskólanum í eitt ár.
Ásamt því að starfa sem leiðbeinandi á leikskóla
er Arnar meðlimur í Leikfélagi Keflavíkur, hefur
áhuga á smíðum og viðgerðum, náttúrunni og að
skapa minningar með börnunum sínum.
„Ég hef ekki upplifað fordóma í þessu starfi en
fyrrum samstarfsfélagar hafa orðið pínulítið
hissa. Ég tel að konur séu í meirihluta í þessu
starfi vegna sögu okkar, það er að konur eigi að
hugsa um börnin og svoleiðis kjaftæði, en það er
sem betur fer að breytast.“
Talsvert fleiri konur starfa sem leikskólakennarar
en Arnar mælir hiklaust með þessu starfi fyrir
karla.
„Það fólk sem telur karlmenn ekki hæfa í þetta
starf veit bara ekki betur. En hugarfar fólks
hefur breyst mikið undanfarin ár varðandi þetta.
Ég finn bara fyrir jákvæðni frá starfsfólki og
foreldrum. Börn þurfa fyrirmyndir af báðum
kynjum og því fleiri, því betra.“
Leikskólakennari er líka karlastarf
●● „Börn●þurfa●fyrirmyndir●af●báðum●kynjum“
LAUS STÖRF
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanes-
bæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari
upplýsingar um auglýst störf og á Facebook síðunni Reykja-
nesbær - laus störf.
AKURSKÓLI
HÆFINGARSTÖÐIN
HÁALEITISSKÓLI
LYNGMÓI
HEIÐARSKÓLI
HEIMILI FATLAÐS FÓLKS
NESVELLIR
NJARÐVÍKURSKÓLI
AKURSKÓLI
HÁALEITISSKÓLI
AKURSKÓLI
FJÁRMÁLASVIÐ
Deildarstjóri yfir starfsstöð
Sumarstörf
Textílmennt- hlutastarf
Sumarstarf
Kennarar
Umönnunarstörf
Sumarstörf
Kennarar
Umsjónarmaður Frístundaskóla
Kennarar
Skólaliðar
Sérfræðingur í launadeild
VIÐBURÐIR
FRÆÐSLUFUNDUR UM VERBÚÐARLÍF
Í dag kl. 17:30 heldur Byggðasafn Reykjanesbæjar og Sögufélag
Suðurnesja fræðslufund í Duus Safnahúsum þar sem farandsýn-
ingin Verbúðarlíf, menning og minning verður kynnt.
Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ Í BÓKASAFNI REYKJANESBÆJAR
Í kvöld kl. 20:00 verður Erlingskvöld þar sem rithöfundarnir Andri
Snær Magnason, Gerður Kristný og Jónína Leósdóttir lesa úr
verkum sínum. Söngvaskáld á Suðurnesjum hefja kvöldið með
ljúfum tónum.
Föstudaginn 31. mars kl. 16:00 opnar sýningin Í fullorðinna manna
tölu? í Átthagastofu safnsins. Hún fjallar um fermingar fyrr og nú.
Laugardaginn 1. apríl kl. 13:00 verður námskeið í silkiþrykk með
Gillian Pokolo. Skráning er nauðsynleg.
Allir hjartanlega velkomnir.
AÐALFUNDUR
Björgunarsveitin Þorbjörn, Björgunarbátasjóður Grindavíkur
og unglingadeildin Hafbjörg halda aðalfund sinn þann 11. apríl nk. kl. 18:00
í húsi sveitarinnar að Seljabót 10.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf, breytingar á lögum félagsins, stjórnarkjör og önnur mál.
Stjórnin
Arnar Helgason ásamt vinkonum sínumHeiðdísi og Arndísi.