Víkurfréttir - 30.03.2017, Side 24
24 fimmtudagur 30. mars 2017VÍKURFRÉTTIR
Þríþrautardeild UMFN, 3N, lét gott
af sér leiða á dögunum og veitti tvo
styrki, annars vegar til Hjólakrafts og
hins vegar til Jóhanns Rúnars Krist-
jánssonar sem undanfarið hefur
safnað sér fyrir handhjóli. Styrkirnir
eru ágóði af hjólreiðakeppninni Geysi
Reykjanesmóti sem haldin er í Sand-
gerði á hverju vori.
Jóhann lamaðist fyrir neðan brjóst í
mótorhjólaslysi í maí 1994 og hefur
notast við hjólastól síðan. Hann hefur
því aðeins getað stundað útivist að
takmörkuðu leiti í hjólastól. Undan-
farna mánuði hefur hann safnað fyrir
handhjóli og segir styrkinn frá 3N því
koma sér vel. „Mig langar til að geta
farið út að hjóla með konunni minni
og krökkunum. Svona hjól kostar
rúma milljón og það er meira en ég
ræð við,“ segir hann. Að sögn Jóhanns
tekur Tryggingastofnun ekki þátt í
kaupum á handhjóli, heldur einungis
í kaupum á lífsnauðsynlegum búnaði
eins og hjólastól. Hjólið sem Jóhann
er að safna fyrir er frá Þýskalandi og
heitir Hase bike. Hann er nú langt
kominn með söfnunina og vilji fólk
leggja henni lið má leggja framlög
inn á eftirfarandi reikning: 0542-14-
407373 kt. 221273-3629.
3N veitti einnig styrk til Hjólakrafts
en það er verkefni á vegum Þor-
valdar Daníelssonar sem miðar að
því virkja ungt fólk til hjólreiða. Þor-
valdur býður upp á hjólreiðaæfingar
fyrir börn í bæjarfélögum víða um
landið, þar á meðal í Grindavík, Garði
og Sandgerði. Hann kemur með racer-
hjól á æfingarnar og er kostnaðurinn
við verkefnið því þó nokkur og ljóst að
styrkurinn frá 3N kemur sér vel fyrir
starfið. Þorvaldur segir fjármögnun
á verkefninu geta verið höfuðverk en
að hann hafi verið einstaklega hepp-
inn í gegnum tíðina og fengið styrki
víða að. Eftirspurn eftir æfingum
Hjólakrafts er mikil og reglulega fær
Þorvaldur fyrirspurnir frá fólki um
landið um það hvort Hjólakraftur sé
væntanlegur. Að sögn Þorvaldar er
þátttaka í Hjólakrafti fyrir mörgum
leið til sigrast á sjálfum sér. „Í upphafi
miðaðist verkefnið við að ná til krakka
sem hafa átt í erfiðleikum með sjálf sig
og til dæmis lokað sig af í tölvuleikjum
eða öðru. Síðan hefur hópurinn orðið
æ fjölbreyttari.“ Hann kveðst oft sjá
mun á krökkum eftir að þau byrja að
taka þátt í Hjólakrafti. Til dæmis taki
mörg þeirra framförum í námi enda
sé ljóst að útiveran, áreynslan og ekki
síst félagsskapurinn hafi góð áhrif.
●● 3N●styrkja●kaup●á●handhjóli●og●Hjólakraft
ÁGÓÐI AF HJÓLREIÐAKEPPNI
TIL EFLINGAR Á HJÓLREIÐUM
Svanur Már Scheving afhenti Jóhanni styrkinn fyrir hönd 3N. Handhjólið sem
Jóhann safnar nú fyrir kostar um eina milljón króna. VF-mynd/dagnyhulda
Þorvaldur Daníelsson tekur við
styrknum 3N. Svanur Már Scheving
afhenti fyrir hönd 3N, þríþrautar-
deildar UMFN. VF-mynd/dagnyhulda
Hjólreiðakeppnin Geysir Reykjanesmótið er haldin árlega í Sandgerði. Styrkirnir sem veittir voru á dögunum voru ágóði af
keppninni í fyrra. Næsta keppni verður haldin 7. maí næstkomandi.
Tryggingastofnun tekur ekki
þátt í kaupum á handhjóli og
því ákvað Jóhann að safna fyrir
hjóli eins og því á myndinni.
Airport fashion er norsk keðja sem er
með glæsilega verslun á Keflavíkurflugvelli.
Við leitum að einstaklega þjónustulunduðum, glaðlyndum,
snyrtilegum einstaklingum sem hafa góða samskiptahæfi-
leika og þægilega framkomu, um er að ræða sumarstörf .
Okkur vantar starfsfólk bæði í hluta- og
heilsdagsstörf en um er að ræða vaktavinnu,
umsækjendur þurfa að vera eldri en 20 ára.
Íslenskukunnátta er skilyrði.
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn á
inga.reynisdottir@airportretail.is
ATVINNA
Fimmta apótekið í Reykjanesbæ,
Reykjanesapótek, opnar á morgun,
föstudag, að Hólagötu 15 í Njarðvík.
Njarðvíkingurinn og lyfjafræðingur-
inn Sigríður Pálína Arnardóttir, sem
er nýkomin heim frá Noregi, er eig-
andi apóteksins.
Reykjanesapótek verður grænt apó-
tek, sem flokkar og endurnýtir, selur
náttúrulyf og verður með grænt
bókhald í samstarfi við Umhverfis-
stofnun.
„Við munum vera með náttúru-
lyf, vítamín og svo verð ég aðeins
með hómópatíu. Það er gaman að
leiðbeina fólki í sambandi við heil-
brigðan lífsstíl,“ segir Sigríður.
Hún segir þau ætla að halda vöru-
verði í lágmarki og þjónusta alla í
heimabyggðinni. „Við ætlum líka
að vera með dýralyf, eftir þörfum,
þjóna skólunum og íþróttahreyfing-
unni og vera með það sem íþrótta-
fólkið okkar þarf.
Mig langar líka að reyna að veita
skipunum góða þjónustu. Ég er vön
því að fara um borð í bátana og hefði
gjarnan áhuga á að taka þátt í því,”
segir Sigríður.
Opið verður 9-18 á virkum dögum
en 12-16 um helgar. Þó mun apó-
tekið bjóða upp á þá þjónustu að
geta hringt eftir lokunartíma og
fengið aðstoð þegar þörf er á. „Það
er svolítil eftirspurn eftir því að hafa
opið til 21. Við ætlum að reyna að
þjónusta viðskiptavini með allt sem
þeir óska eftir að fá í apótekum.“
Fimmta apótekið í
Reykjanesbæ verður grænt
●● Sigríður●Pálína●opnar●Reykjanesapótek●●
í●Sjálfstæðishúsinu●í●Njarðvík
Sigríður Pálína ásamt starfsmönnunum Ósk Þóhallsdóttur
og Ásrúnu Karlsdóttur.