Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.03.2017, Síða 25

Víkurfréttir - 30.03.2017, Síða 25
25fimmtudagur 30. mars 2017 VÍKURFRÉTTIR Ferðamálastofa hefur gengið til samninga um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana í öllum lands- hlutum. Þetta er eitt stærsta verk- efni á sviði ferðaþjónustu sem ráðist hefur verið í hér á landi. Samið verður við markaðsstofur landshlutanna og Höfuðborgarstofu um að leiða vinnuna í hverjum landshluta. Þuríður H. Aradóttir Braun, for- stöðumaður Markaðsstofu Reykja- ness, segir í samtali við Víkurfréttir að Reykjanes standi ótrúlega vel gagnvart þessu verkefni. „Styrkleikinn okkar er að við erum með einstakt jarðfræði- legt fyrirbrygði og öll uppbygging áfangastaða er unnin út frá því. Þó að svæðið sé lítið þá erum við ótrú- lega vel stödd. Við erum ekki búin að ganga of langt og getum ennþá sagt að við eigum svo mikið inni. Fólk er farið að taka meira eftir okkur og það sem er meira í umræðunni er auðveldara að selja.“ Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, segir að verkefnið sé unnið á for- sendum heimafólks á hverjum stað og að horft sé til þarfa þeirra, fyrirtækja og umhverfisþátta jafnt sem gesta. Gert er ráð fyrir því að áætlanagerð- inni sjálfri ljúki á árinu 2018. „Niður- stöðurnar munu stuðla að mark- vissri þróun ferðaþjónustu í hverjum landshluta og auðvelda opinbera ákvarðanatöku sem snýr til dæmis að skipulagsmálum, uppbyggingu þjón- ustu, aðgangsstýringu og markaðs- áherslum,“ segir Ólöf. Svæðisbundin þróun hefur verið eitt af áherslusviðum Ferðamála- stofu undanfarin misseri og hefur þetta verkefni verið í undirbúningi hjá stofnuninni síðan í upphafi árs 2015, en Ferðamálastofa og Stjórnstöð ferðamála hafa átt samvinnu um gang- setningu verkefnisins. Ferðamálastofa fjármagnar verkefnið og heldur utan um framkvæmd þess. Stofnunin mun þannig beina 100 milljónum króna af verkefnafé sínu til framkvæmdarinnar á næstu 12 mán- uðum. Umfangsmikil áætl- unargerð um land allt Umhverfis- og skipulagsráð Reykja- nesbæjar telur farsælast að fresta deili- skipulagsbreytingu við Reykjanes- vita á meðan unnið er að greiningu á því hvort breyta skuli aðalskipulagi sveitarfélagsins, sem heimili m.a. upp- byggingu á gistiaðstöðu á Reykjanesi. Lýsing á deiliskipulagsbreytingu var send til umsagnar eigenda fasteigna innan deiliskipulagsmarka, Skipu- lagsstofnunar, Vegagerðarinnar, Um- hverfisstofnunar, Minjastofnunar, Ferðamálastofu, Grindavíkurbæjar, Samgöngustofu, Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja og Ferðamálasamtaka Reykjaness. Einnig var hún auglýst fyrir almenning. Umsagnir bárust frá Skipulags- stofnun, Vitaverðinum ehf. og Vega- gerðinni sem ekki gerði athugasemdir. Skipulagsstofnun og Vitavörðurinn ehf. telja að fyrirhuguð áform um stækkun tjaldsvæðis og bygging gistihúsa séu í ósamræmi við stefnu gildandi aðalskipulags og nýrrar aðal- skipulagstillögu. Umhverfis- og skipulagsráð vísaði málinu til stýrihóps endurskoðunar aðalskipulags til ákvörðunar um hvort breyta eigi aðalskipulagi vegna þessa máls. Ráðgjafi stýrihóps lagði fram eftirfarandi tillögu: „Við kynningu á skipulags- og mats- lýsingu vegna fyrirhugaðrar deili- skipulagsbreytingar bárust m.a. at- hugasemdir frá Skipulagsstofnun og eiganda húsnæðis við Reykjanesvita. Skipulagsstofnun telur að fyrirhuguð deiliskipulagsbreyting sé ekki í sam- ræmi við aðalskipulag Reykjanesbæjar 2008-2024 eða tillögu að aðalskipulagi sem nú er í vinnslu. Þá óska eigendur íbúðarhúsnæðis við Reykjanesvita eftir að í deiliskipulagsbreytingu verði tekið til skoðunar áform þeirra við uppbyggingu í tengslum við ferða- þjónustu.“ Farsælast að fresta vinnu við deiliskipulag á Reykjanesi Frá Reykjanesi. Þar eru í gangi verulegar framkvæmdir og einnig í pípunum. VF-mynd/pket. Suðurnesjamagasín • fimmtudagskvöld kl. 20:00 og 22:00 • Hringbraut og vf.is Suðurnesjamagasín fimmtudagskvöld kl. 20:00 og 22:00 á Hringbraut og vf.is ARONKRO SS AR AK ÓN GU RI NN TVÖFÖLD BRAUT HVAÐ ER HS ORKA? Suðurnesjamagasín í Svartsengi FERMINGAR FYRR OG NÚ Á SUÐURNESJUM Þetta höfðu þau að segja eftir borgarafundinn í Stapa

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.