Víkurfréttir - 30.03.2017, Page 26
26 fimmtudagur 30. mars 2017VÍKURFRÉTTIR
Eyþór Sæmundsson
eythor@vf.is
Eftir sjö ára fjarveru frá motocross
hefur Suðurnesjamaðurinn Aron
Ómarsson ákveðið að draga hjólið
úr bílskúrnum og keppa á einu erf-
iðasta móti heims, RedBull Romani-
acs sem fram fer í Rúmeníu í sumar.
Aron hafði mikla yfirburði í íþrótt-
inni þegar hann ákvað að hætta
ungur að aldri. Nú er hann kominn
í gírinn á ný og æfir af kappi, svona
eins og aðstæður leyfa á elstu mo-
tocross-braut landsins ofan við Sól-
brekku.
Aron hóf að hjóla 12 ára gamall. Þá
hafði hann lítinn áhuga á því að fara
í bústað með foreldrum sínum hverja
helgi og því brugðu foreldrarnir á það
ráð að reyna að freista stráksins. Þau
hugðust kaupa handa honum vespu og
lokka hann þannig með sér í sveitina.
Vespan reyndist óvart vera krossari
og Aron féll strax fyrir hjólinu. „Það
leið ekki á löngu þar til ég heimtaði að
fá að taka hjólið heim og þá var ekki
aftur snúið, hjólið fór aldrei aftur upp
í sumarbústað,“ segir Aron sem er
nú 15 árum síðar margfaldur Íslands-
meistari sem hefur keppt víðs vegar
um heiminn.
Löggan elti hann á röndum
Aron ásamt föður sínum stóð að
stofnun akstursíþróttafélags, (Véhjóla-
félag Reykjaness) en Aron var þá 15
ára gamall. Hann hyggst taka við for-
mennsku í því félagi aftur og rífa upp
starfsemina. „Þegar ég var að byrja
þá vissi enginn hvað þetta sport var.
Þetta var með þann stimpil á sér að
það væru bara vandræðapésar sem
áttu krossara. Ég man að þegar ég var
um 13 ára þá voru þrír af fjórum lög-
reglubílum á svæðinu stanslaust að
eltast við mig. Sportið var ekki viður-
kennt og maður mátti hvergi vera,“
segir Aron léttur. Hann var vanur að
leika sér í gömlu gryfjunum utan við
Grindavík þar sem torfærukeppnir
voru haldnar áður fyrr. Brautin við
Sólbrekku sem hann æfir á núna er
rétt við Reykjanesbrautina en hún
er sú elsta á landinu en þar á Aron
heimavöll.
Allt í botni eða stopp
Aron var búinn að vinna allt sem hægt
er á heimaslóðum og samkeppnin
var ekki mikil. Hann ákvað að reyna
fyrir sér í atvinnumennsku í Belgíu
en meiddist þar. „Það gekk ekki alveg
nógu vel úti og það var ekki mikið
fyrir mig hérna heima. Ég var búinn
að fá leið og ákvað að koma mér heim
og mennta mig og lagði þetta alveg á
hilluna.“ Síðan eru sjö ár. Undanfarið
ár hefur áhuginn þó kviknað aftur og
Aron hefur dvalið talsvert í Rúmeníu.
Aron fór í hjólaferð til Rúmeníu ásamt
félögum sínum en þar hrifust menn
af Aroni og vildu ólmir fá hann til
þess að keppa í þessari erfiðu keppni.
„Ég þurfti að taka fram skóna á ný, fá
mér hjól og byrja að undirbúa mig. Ég
viðurkenni það að maður er aðeins
ryðgaður, það eru liðin sjö ár. Þessi
keppni sem ég er að fara í er erfiðasta
keppni sinnar tegundar í heiminum.“
Aron hefur því ekki langan tíma til
þess að undirbúa sig á meðan keppi-
nautar hans, sem flestir eru atvinnu-
menn, æfa við góðar aðstæður í heitari
löndum. Aron segir að það séu bara
til tvær stillingar á honum sjálfum,
allt í botni eða stopp. Hann var t.a.m.
búinn að kaupa sér hjól og ráða þjálf-
ara og allt en mundi þá að hann átti
lítið af græjum orðið. Hann hafði ekki
krók á bílnum né kerru til þess að
flytja hjólið sem hann var að kaupa.
Þegar seljandinn ætlaði svo að senda
það til hans áttaði Aron sig á því að
hann var ekki einu sinni með bílskúr.
Mikill búnaður fylgir þessu og mikil
vinna sem búnaðinum fylgir þannig
að fyrirhöfnin að bregða sér á æfingu
er mikil. „Ég er að verða þrítugur og
að fá þetta tækifæri, maður getur ekki
látið það fram hjá sér fara. Svona tæki-
færi kemur einu sinni á lífstíð,“ segir
þessi öflugi íþróttamaður
Í motocrossi er keppt á sömu braut-
inni hring eftir hring. Á mótinu sem
Aron er að fara í er keppt í 150-200 km
leiðum á hverjum degi þar sem farið
er yfir fjöll og firnindi. Hann er því á
hjólinu 8 til 10 klukkutíma á dag. Það
er í raun erfitt að útskýra hversu erfið
íþróttin er en hún er jafnan talin ein
sú mest krefjandi í heiminum. „Fólk
heldur að maður sitji bara á hjólinu og
gefi í. Ég las það á sínum tíma að þetta
væri önnur erfiðasta íþrótt í heim-
inum,“ segir Aron sem hefur stundað
crossfit undanfarin ár og æft þar af
kappi. Hann segir þó að hann hafi
fundið fyrir alls kyns nýjum vöðvum
þegar hann fór að hjóla aftur. Neist-
inn er kominn aftur hjá meistaranum
fyrrverandi en hann eyðir öllum
dauðum stundum við æfingar. „Það
er ekki hægt að lýsa þessu. Ég reyndi
að stunda hópíþróttir en ég fann mig í
þessu. Þetta er mikil útivera. Maður er
einn á hjólinu í algjöru frelsi og getur
farið þangað sem maður vill,“ segir
hann aðspurður um hvað heilli við
motocross.
Nánast öll bein brotin
Aron var alltaf kaldur og lét sig fljót-
lega vaða út í erfiðustu brekkur og
stór stökk sem gutti. „Stór stökk hafa
alltaf verið minn styrkleiki. Pabbi er
búinn að fara með mig svona hundrað
sinnum upp á sjúkrahús. Ég held að ég
sé búinn að brjóta allt sem hægt er að
brjóta,“ segir Aron og nefnir að hann
sé með tvo pinna í fætinum, úlnliður-
inn hefur brotnað illa auk viðbeina og
rifbeina. Opið puttabrot og nokkur
spor í andliti svo fátt eitt sé nefnt.
„Þetta er allt þess virði, og þetta er líka
bara kúl,“ segir Aron og hlær. Hann
segir að ekki þýði að fara einn að hjóla
ef eitthvað kæmi upp á. „Ef ég fæ ekki
neinn með mér á æfingu þá sleppi ég
því frekar.“ Aron er bjartsýnn fyrir
keppnina erfiðu í Rúmeníu í sumar.
„Ég er með það góðan bakgrunn enda
verið að frá 12 ára aldri. Ég þarf bara
að ná úr mér stirðleika og þessari sjö
ára pásu,“ segir Aron að lokum.
SNÝR AFTUR
EFTIR SJÖ ÁRA
ÚTLEGÐ
●● Aron●Ómars●tekur●þátt●í●einni●●
erfiðustu●motocross●keppni●heims
Vígalegur: Keppnin í Rúmeníu stendur yfir í fimm daga og eru leiðirnar mjög torfærar. Hitinn er oft um 30 gráður og er algengt
að líði yfir keppendur og að þeir heltist úr lestinni sökum ofþreytu. Keppendur fara um 180 km. á dag og sitja á hjólinu í um átta
klukkustundir.
ÍÞRÓTTIR
Aldur og félag:
12 að verða 13, Keflavík.
Hvað æfir þú oft í viku?
9 sinnum með aukaæfingum.
Hvaða stöðu spilar þú? Allar stöður.
Hver eru markmið
þín í körfubolta?
Komast í íslenska landsliðið.
Skemmtilegasta æfingin?
Drippl æfingar.
Leiðilegasta æfingin?
Engin leiðinleg æfing.
Eftirlætis körfuboltamaður/kona á
Íslandi? Jón Arnór og Emelía Ósk.
Eftirlætis körfuboltamaður/kona
í NBA? LeBron James og Breanna
Stewart.
Lið í NBA? San Antonio Spurs.
ÆFIR NÍU
SINNUM Í VIKU
KÖRFUBOLTASNILLINGUR
Anna Lára Vignisdóttir er körfuboltasnillingur vikunnar hjá Víkurfréttum.
Hún æfir gríðarlega mikið enda ætlar hún sér að verða landsliðskona. Hún
leikur allar stöður á vellinum og í uppáhaldi hjá henni eru stjörnunar LeBron
James og Breanna Stewart.
Keflvíkingar eru komnir í undanúrslit
í Domino’s deild karla í fyrsta sinn
síðan árið 2011. Keflvíkingar virkuðu
sannfærandi gegn Stólunum, ef frá er
talinn einn útileikur. Grindvíkingar
eru sömuleiðis komnir í undanúr-
slitum eftir oddaleik gegn Þórsurum
og munu þar berjast við Stjörnumenn.
Hjá Keflvíkingum tekur við rimma
gegn Íslandsmeisturum síðustu
þriggja ára, sjálfum KR-ingum. KR
hafði öruggan 26 stiga sigur í fyrsta
leik liðanna á tímabilinu í TM -höll-
inni. Í Vesturbænum var öllu meiri
spenna en þar hafði KR þó tveggja
stiga sigur.
Grindvíkingar fóru síðast upp úr átta
liða úrslitum árið 2014 þegar þeir
léku til úrslita gegn KR. Stjarnan hafði
betur í báðum rimmum liðanna í
vetur. Á heimavelli höfðu Garðbæ-
ingar 11 stiga sigur og í Mustad höll-
inni var munurinn 19 stig á liðunum.
Bæði Suðurnesjaliðin byrja á útivelli -
Keflvíkingar í kvöld, 30. mars í Vestur-
bænum og Grindvíkingar 31. mars í
Garðabæ.
Endurtekið efni frá bikarúrslitum
■ Keflavíkurkonur hófu leik í undanúrslitum Domino’s deildarinnar í
körfubolta í gærkvöldi en þar kljást þær við Skallagrímskonur. Liðin háðu
eftirminnilega rimmu í bikarkeppninni fyrr í vetur þar sem Keflvíkingar
fóru með sigur af hólmi.
Í deildinni höfðu Keflvíkingar þrisvar sigur á Borgnesingum en einu sinni
töpuðu þær naumlega á útivelli. Þannig að í innbyrðisviðureignum standa Kefl-
víkingar mun betur.
Keflvíkingar höfnuðu í öðru sæti deildarinnar og Skallagrímur í því þriðja og því
eiga Keflvíkingar heimavallarrétt.
Suðurnesjaliðin freista
þess að komast í úrslit
SJÁIÐ INNSLAGIÐ Í
Í KVÖLD KL. 20:00 OG 22:00