Víkurfréttir - 12.04.2017, Qupperneq 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• miðvikudagurinn 12. apríl 2017 • 15. tölublað • 38. árgangur
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Hafnargötu 20, 230 Reykjanesbær S: 420 4000
Guðlaugur H. Guðlaugsson lögg. fasteignasali
Halldór Magnússon lögg. fasteignasali
Brynjar Guðlaugsson aðstm. fasteignasala
Haraldur Freyr Guðmundsson aðstm. fasteignasala
studlaberg@studlaberg.is studlaberg.is
Fyrsta skóflustungan að nýju íbúða-
hverfi í Hlíðahverfi í Reykjanesbæ var
tekin í síðustu viku. Það kom í hlut
Kjartans Más Kjartanssonar, bæjar-
stjóra Reykjanesbæjar, að taka skóflu-
stunguna. Hlíðahverfi mun rísa á
svæði sem hefur gengið undir nafninu
Nikel-svæðið undanfarna áratugi.
Það er BYGG, Byggingarfélag Gylfa
og Gunnars hf., sem hefur keypt bygg-
ingalandið, um 34 hektara lands þar
sem hefur verið skipulögð byggð með
allt að 485 íbúðum ásamt atvinnu-
húsnæði.
Deiliskipulag fyrir hluta byggingar-
landsins er þegar samþykkt og gerir
ráð fyrir byggingu á samtals 300
íbúðum. Gatna- og holræsagerð hefur
verið unnin að hluta til á svæðinu og
hægt er að hefja framkvæmdir á hluta
lóðanna nú þegar. Samkvæmt gild-
andi Aðalskipulagi Reykjanesbæjar
er gert ráð fyrir byggingu allt að 185
íbúða til viðbótar.
Í áfanga eitt, sem er Grænalaut 1-31
og Hallalaut 1-15, verða fimm tveggja
hæða fjölbýlishús með samtals 48
íbúðum, þetta eru 4 herbergja 100
fm. íbúðir. Tvö raðhús með samtals 7
íbúðum, 130 fm. hús með bílskúr. Átta
parhús þá með 16 einingum þar sem
stærð hverra eininga er um það bil 170
til 200 fm. og fjórtán einbýlishús sem
eru um 210 til 250 fm.
Samtals í þessum fyrsta áfanga eru
því 86 íbúðir og áætlar Hörður Már
Gylfason, framkvæmdastjóri BYGG,
að fyrstu kaupendur flytji inn fyrir
skólaárið 2018. Mikið líf verði því
komið í hverfið fyrir jólin 2018 og
það verður klárað 100% með öllum
lóðafrágangi sumarið 2019.
Áfangi tvö í Hlíðahverfi er stærri
hluti í fjölbýli eða 170 af 235 í heild.
Sumarið 2018 er svo áætlað að fara
yfir Skólaveginn og byrja á Efrilaut og
Asparlaut.
Áfangi 3 er svo með fleiri stærri fjöl-
býlishús. Þar er deiliskipulag ekki
klárt en vinna er að hefjast við það.
Samkvæmt aðalskipulagi Reykjanes-
bæjar eru áætlað að 185 til 200 íbúðir
verði byggðar á því svæði.
Hörður Már segir að samtals verði í
hverfinu yfir 500 íbúðir og bygginga-
hraði fari auðvitað eftir söluhraða.
Áætlun hljóðar upp á 7 til 10 ára ferli
ef allt gengur upp og að fullbúið hverfi
með öllu verði afhent eftir áratug.
Ekki búa til
annan Breivik
■ Hin tvítuga Azra Crnac hefur
búið á Íslandi alla sína ævi en er
ættuð frá Bosníu. Azra aðhyllist
íslam eða múslimska trú en aðspurð
um trúna segir hún hana snúast um
frið og sátt. „Íslam snýst bara um
það sama og önnur trúarbrögð. Að
lifa í sátt og samlyndi og að koma
vel fram við aðra. Þetta er ekki það
sem margir halda.“ Azra segist alveg
hafa orðið fyrir aðkasti. „Ef ég nefni
eitt dæmi, þá sendi ákveðinn ein-
staklingur mömmu minni persónu-
leg skilaboð á facebook þar sem hún
var beðin um að vera ekki að ala upp
fleiri Breivik hér á landi og vísaði þá
í mig. Þetta eru örugglega þau um-
mæli sem sitja hvað mest eftir í mér.“
Framkvæmdir hafnar við 500 íbúðir
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri
tók fyrstu skóflustunguna með gull-
skóflu og tók svo stærri stungu með
stóru vélinni.
Forráðamenn Reykjanesbæjar og Bygg eftir skóflustunguna. VF-myndir/pket.
■ Tvær ungar konur eru við stjórnvölinn í Keflavíkurkirkju en það er ekki algengt í kirkjum landsins. Erla Guðmundsdóttir er sóknarprestur og hefur verið
með karlaprestum í kirkjunni síðastliðinn áratug. Nú er hún með aðra unga konu sér við hlið í preststarfinu. Hún heitir Eva Björk Valdimarsdóttir. Þriðja
konan í Keflavíkurkirkju er rekstrarstjórinn Þórunn Þórisdóttir en fjórði fasti stafsmaðurinn er organistinn Arnór Vilbergsson. Léttleikinn er nokkuð
áberandi í kirkjunni og fjölbreytt starfið þar er altalað. „Við lærðum ekki að vera skemmtilegar í guðfræðinni,“ sögðu þær Erla og Eva Björk léttar í bragði
en þær sitja fyrir svörum í Víkurfréttaviðtali um ýmis mál sem tengjast kirkjunni og kristinni trú. Viðtalið er á bls. 2 og svo er einnig sjónvarpsviðtal við þær
stöllur í Suðurnesjamagasíni vikunnar.
Kvenprestarnir í Keflavíkurkirkju