Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2017, Síða 7

Víkurfréttir - 12.04.2017, Síða 7
AKURSKÓLI er kraftmikill og framsækinn skóli. Hann starfar eftir einkunnarorðunum börn eru gleðigjafar, skapandi og fróðleiksfús. Frá næsta skólaári vantar okkur liðsauka í skólann. • Deildarstjóri yfir starfsstöð – millistjórnandi með mannaforráð auk kennslu • Kennarar – sérkennsla, tónmenntarkennsla, heimilisfræðikennsla, íþróttakennsla, umsjónarkennsla á yngsta- og miðstigi • Skólaritari í afleysingu vegna fæðingarorlofs • Umsjónarmaður frístundaskóla – 50% starf • Umsjón með kaffistofu starfsmanna • Skólaliðar – 50%-80% störf Á heimasíðu Akurskóla má lesa nánar um stefnu skólans og starfsemi www.akurskoli.is NJARÐVÍKURSKÓLI starfar undir kjörorðunum menntun og mannrækt en skólinn er umhverfisvænn og leggur áherslu á lestrarnám upp allan grunnskólann. Næsta vetur eru nokkur laus störf í skólanum. • Umsjónarkennsla á yngra stigi • Tónmenntakennsla • Sérkennara í sérdeild Nánar má lesa um Njarðvíkurskóla á heimasíðunni www.njardvikurskoli.is HEIÐARSKÓLI styðst við einkunnarorðin háttvísi, hugvit og heilbrigði. Skólinn kennir sig við Uppbyggingarstefnuna og er Uppbygg- ingarskóli. Næsta vetur ætlar Heiðarskóli að bæta við sig kennurum. • Kennsla á unglingastigi • Umsjónarkennsla á yngsta stigi • Umsjónarkennsla á miðstigi Nánari upplýsingar um Heiðarskóla er að finna á www.heidarskoli.is HÁALEITISSKÓLI hefur kjörorðin menntun og mann- rækt. Þar eru nemendur sem eiga heima á Ásbrú við nám í 1.-8. bekk. Nokkrar lausar stöður eru í Háaleitisskóla næsta vetur. • Kennari í textílmennt • Kennari á yngsta stig • Starfsmenn í frístund • Stuðningsfulltrúar Meira um Háaleitisskóla er að finna á heimsíðu skólans www.haaleitisskoli.is MYLLUBAKKASKÓLI er í hjarta bæjarins og starfar undir einkennisorðunum virðing, ábyrgð, jafnrétti og árangur. Kennara vantar á næsta skólaári. • Kennari í dönsku • Kennari í náttúrugreinum og íslensku á unglingastigi • Kennari á miðstigi. Nánari upplýsingar www.myllubakkaskoli.is SPENNANDI TÆKIFÆRI Í GRUNNSKÓLUM REYKJANESBÆJAR Við erum að leita að fólki sem vill vera með í að byggja upp skólasamfélag í fremstu röð þar sem metnaður, kraftur og samheldni eru lykilatriði. Í Reykjanesbæ eru sex grunnskólar sem hver og einn hefur á að skipa samstilltum starfsmanna- hópi með skýra sýn á framtíðina. Reykjanesbær er fimmta stærsta sveitarfélag landsins með um 16 þúsund íbúa. Í bænum eru einnig starfræktir tíu leikskólar, framúrskarandi tónlist- arskóli og öflugt íþrótta- og tómstundastarf. Hjá Reykjanesbæ starfar sam- hentur hópur starfsmanna sem hefur það að leiðarljósi að þjónusta við íbúa bæjarfélagsins sé eins og best verður á kosið hverju sinni. Við bjóðum góða starfsaðstöðu, jákvætt andrúmsloft og samstarfsfólk sem tekur áskor- unum hvers dags af eldmóði og krafti. Við ráðningar er ávallt höfð hliðsjón af jafnréttisáætlun Reykjanesbæjar. Sækja skal um störfin á vefsíðu sveitarfélagsins www.reykjanesbaer.is

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.