Víkurfréttir - 12.04.2017, Qupperneq 7
AKURSKÓLI er kraftmikill og framsækinn skóli. Hann starfar
eftir einkunnarorðunum börn eru gleðigjafar, skapandi og fróðleiksfús. Frá
næsta skólaári vantar okkur liðsauka í skólann.
• Deildarstjóri yfir starfsstöð – millistjórnandi
með mannaforráð auk kennslu
• Kennarar – sérkennsla, tónmenntarkennsla,
heimilisfræðikennsla, íþróttakennsla,
umsjónarkennsla á yngsta- og miðstigi
• Skólaritari í afleysingu vegna fæðingarorlofs
• Umsjónarmaður frístundaskóla
– 50% starf
• Umsjón með kaffistofu starfsmanna
• Skólaliðar – 50%-80% störf
Á heimasíðu Akurskóla má lesa nánar um stefnu skólans og starfsemi
www.akurskoli.is
NJARÐVÍKURSKÓLI starfar undir kjörorðunum
menntun og mannrækt en skólinn er umhverfisvænn og leggur áherslu á
lestrarnám upp allan grunnskólann. Næsta vetur eru nokkur laus störf í
skólanum.
• Umsjónarkennsla á yngra stigi
• Tónmenntakennsla
• Sérkennara í sérdeild
Nánar má lesa um Njarðvíkurskóla á heimasíðunni
www.njardvikurskoli.is
HEIÐARSKÓLI styðst við einkunnarorðin háttvísi, hugvit
og heilbrigði. Skólinn kennir sig við Uppbyggingarstefnuna og er Uppbygg-
ingarskóli. Næsta vetur ætlar Heiðarskóli að bæta við sig kennurum.
• Kennsla á unglingastigi
• Umsjónarkennsla á yngsta stigi
• Umsjónarkennsla á miðstigi
Nánari upplýsingar um Heiðarskóla er að finna á www.heidarskoli.is
HÁALEITISSKÓLI hefur kjörorðin menntun og mann-
rækt. Þar eru nemendur sem eiga heima á Ásbrú við nám í 1.-8. bekk. Nokkrar
lausar stöður eru í Háaleitisskóla næsta vetur.
• Kennari í textílmennt
• Kennari á yngsta stig
• Starfsmenn í frístund
• Stuðningsfulltrúar
Meira um Háaleitisskóla er að finna á heimsíðu skólans
www.haaleitisskoli.is
MYLLUBAKKASKÓLI er í hjarta bæjarins og starfar
undir einkennisorðunum virðing, ábyrgð, jafnrétti og árangur. Kennara
vantar á næsta skólaári.
• Kennari í dönsku
• Kennari í náttúrugreinum
og íslensku á unglingastigi
• Kennari á miðstigi.
Nánari upplýsingar www.myllubakkaskoli.is
SPENNANDI
TÆKIFÆRI
Í GRUNNSKÓLUM
REYKJANESBÆJAR
Við erum að leita að fólki sem vill vera með í að
byggja upp skólasamfélag í fremstu röð þar sem
metnaður, kraftur og samheldni eru lykilatriði.
Í Reykjanesbæ eru sex grunnskólar sem hver og
einn hefur á að skipa samstilltum starfsmanna-
hópi með skýra sýn á framtíðina.
Reykjanesbær er fimmta stærsta sveitarfélag landsins með um 16 þúsund
íbúa. Í bænum eru einnig starfræktir tíu leikskólar, framúrskarandi tónlist-
arskóli og öflugt íþrótta- og tómstundastarf. Hjá Reykjanesbæ starfar sam-
hentur hópur starfsmanna sem hefur það að leiðarljósi að þjónusta við íbúa
bæjarfélagsins sé eins og best verður á kosið hverju sinni. Við bjóðum góða
starfsaðstöðu, jákvætt andrúmsloft og samstarfsfólk sem tekur áskor-
unum hvers dags af eldmóði og krafti. Við ráðningar er ávallt höfð hliðsjón
af jafnréttisáætlun Reykjanesbæjar.
Sækja skal um störfin á vefsíðu sveitarfélagsins www.reykjanesbaer.is