Víkurfréttir - 12.04.2017, Page 11
11miðvikudagur 12. apríl 2017 VÍKURFRÉTTIR
Á vinnustofunni er frábær birta og mikil lofthæð. Finnur Björgvinsson hannaði bygginguna.
Loftglugginn á vinnustofunni er mikið þarfaþing fyrir listamanninn Sossu. Hann tryggir frá-
bæra birtu nánast sama hvernig viðrar.
Eldhúsið er tímalaust og sérsmíðað listaverk. Hjónin hafa gaman af því að elda og þegar blaða-
maður heimsótti Sossu á föstudegi var hún í óðaönn að undirbúa marrokóska veislu fyrir
einginmanninn, en þau elda fyrir hvort annað á hverjum föstudegi.
Húsið er vel byggt og
virðulegt. Það stendur
hátt og er gott útsýni yfir
púttvöllinn á Mánagrund.
Glugginn í stofunni er
einkenni hússins og gefur
því mikinn sjarma
Eins og gefur að skilja má finna áhugaverð
listaverk um allt hús.Verk eftir Sossu má sjá
víða á veggjunum en meðal annarra lista-
manna eru Stórval og Sólon Íslandus (Sölvi
Helgason), Tolli og Kjarval.
Lagt var fallegt stafaparket á miðhæðina og var það
sérstaklega teiknað upp af hönnuði, enda er það lagt
á einstakan hátt. Þarna má svo sjá stólinn sem kom
seint í leitirnar.