Víkurfréttir - 12.04.2017, Blaðsíða 12
12 miðvikudagur 12. apríl 2017VÍKURFRÉTTIR
■ Í síðustu viku fór fram 22. starfs-
hlaup Fjölbrautaskóla Suðurnesja
en keppnin hefur verið fastur liður í
starfi skólans síðan árið 1994.
Í ár kepptu fimm lið í hlaupinu og
bar Græna liðið sigur úr býtum eftir
ansi spennandi keppni. Appelsínugula
liðið endaði rétt á eftir því Græna og
Gula liðið lenti í því þriðja. Græna
liðið hlaut því Starfshlaupsbikarinn og
pítsuveislu í verðlaun.
Í hverju liði eru nokkrir tugir kepp-
enda sem keppa í ýmsum þrautum
og safna stigum. Fyrir hverju liði
fara nokkrir fyrirliðar sem koma úr
hópi væntanlegra útskriftarnemenda.
Umsjónarmenn Starfshlaupsins eru
íþróttakennararnir Kristjana Hildur
Gunnarsdóttir og Andrés Þórarinn
Eyjólfsson.
Launadeild Reykjanesbæjar sér um launagreiðslur, greining-
ar, ráðgjöf við stjórnendur og starfsmenn, auk annarra verk-
efna tengdum kjaramálum sveitarfélagsins. Í deildinni starfa
tveir sérfræðingar auk deildarstjóra. Aðsetur launadeildar er í
Ráðhúsinu við Tjarnargötu.
Helstu verkefni:
• Launaútreikningur
• Skráning og yfirferð ráðningar- og launagagna
• Upplýsingagjöf til stjórnenda og starfsmanna vegna
útborgunar launa
• Úteikningur á kjörum og réttindum starfsmanna skv.
kjarasamningum
• Samskipti við starfsmenn, lífeyrissjóði, stéttarfélög
og opinbera aðila
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af launavinnslu og launabókhaldi
• Þekking og reynsla á Navision launakerfi, á H3 launa-
og mannauðskerfi og Vinnstund æskileg
• Þekking á kjarasamningum og lögum um réttindi og
skyldur opinberra starfsmanna
• Góð tölvukunnátta, færni í excel áskilin
• Skipulagshæfni og samskiptahæfileikar
Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2017.
SÉRFRÆÐINGUR ÓSKAST
Í LAUNADEILD BÆJARINS
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.Launakjör
eru skv. kjarasamningi launanefndar sveitar-félaga og viðkom-
andi stéttarfélags. Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar,
www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf.
Nánari upplýsingar veita Iðunn Kr. Grétarsdóttir deild-
arstjóri launadeilar, idunn.k.gretarsdottir@reykjanesbaer.is
og Þórey I. Guðmundsdóttir sviðsstjóri Fjármálasviðs, thorey.
i.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is.
Starfshlaupið var grænt í ár
Þóra Lind
Halldórsdóttir:
„Andlega hliðin er
ekki síður mikilvæg
en sú líkamlega og
því ætti gjaldfrjáls
sá lf ræðiþjónusta
að vera sjálfsagt mál. Það ætti ekki
að vera neinn munur á því að fara í
almenna heilsufarsskoðun reglulega
eða að fara í sálfræðitíma. Að tala
um líðan sína við fagaðila er hollt og
nauðsynlegt fyrir alla, sama á hvaða
aldri eða hvar þú ert staddur í lífinu
og því ætti fólk ekki að þurfa að hafa
áhyggjur af kostnaði þegar það kemur
að þeim málum. Gjaldfrjáls sálfræði-
þjónusta myndi bæta samfélagið til
muna.“
Brynja Ýr
Júlíusdóttir:
„Mér finnst sjálf-
sagt að boðið sé
upp á gjaldfrjálsa
sálfræðiþjónustu.
Allt of margir í dag
glíma við einhver andleg veikindi og
þurfa nauðsynlega hjálp, en þurfa að
borga svo mikið fyrir sálfræðiþjón-
ustu sem langflestir hafa ekki efni á.
Gjaldfrjáls sálfræðiþjónusta myndi
gera það að verkum að fleiri myndu
leita sér hjálpar og þá væri mikið auð-
veldara að kljást við veikindin sín.
Þannig ég er algjörlega á því að sál-
fræðiþjónusta ætti
að vera gjaldfrjáls.“
Þórhallur Arnar
Vilbergsson:
„Sálfræðiþjónusta á
alltaf að vera fyrsti
kostur á undan
lyfjameðferð. Sálfræðingur getur
komist að rót vandans og unnið úr
meininu á huglægan hátt. Fólk hefur
almennt ekki efni á því að fara til sál-
fræðings vegna mikils kostnaðar og
þar af leiðandi verður lyfjameðferðin,
því miður, eina leiðin til betrunar.
Gjaldfrjáls sálfræðiþjónusta væri að
mínu mati mjög skynsamleg fyrir allt
þjóðfélagið.“
Alexander
Hauksson
„Flest þurfum við
að nýta okkur heil-
br i g ð i s þ j ónu s t u
einhvern t íma á
ævinni, hvort sem
það er vegna andlegra eða líkam-
legra veikinda. Heilsa er grundvall-
aratriði fyrir gott og hamingjusamt
líf og því mikilvægt að aðgengi að
heilbrigðisþjónustu standi öllum til
boða, óháð tekjum, aldri, kyni eða
uppruna. Nú þegar mikil aukning er
á fólki sem greinist með kvíða, þung-
lyndi eða önnur geðtengd vandamál
hefur þörfin fyrir gjaldfrjálsa geðheil-
brigðisþjónustu orðið háværari krafa í
þjóðfélaginu. Einnig er það skammar-
legt að fólk sem þjáist af langvinnum
veikindum þurfi oftar en ekki að eyða
öllum sínum peningum til margra
ára í heilbrigðisþjónustu. Á meðan
skattar eru eins háir og þeir eru finnst
mér sjálfsagt mál að málum verði
forgangsraðað á þann hátt að grunn-
stoðir samfélagsins skipti mestu máli.“
UNGA FÓLKIÐ
UM GJALDFRJÁLSA SÁLFRÆÐIÞJÓNUSTU
kl. 20:00 og 22:00
Á besta tíma! Nýr sýningartímiá fimmtudagskvöldum á Hringbraut.
Framvegis er þátturinn sýndur kl. 20:00
og endursýndur kl. 22:00.
Þá er þátturinn sýndur föstudaga kl. 12, 14, 16 og 18.
Á laugardögum er þátturinn kl. 14 og 22.
Sunnudaga er Suðurnesjamagasín kl. 08 og 18.Lumar þú á ábendingu um áhugavert efni í þáttinn? Sendu okkur línu á vf@vf.is
Vorhátíð eldri borgara
á Suðurnesjum
verður haldin Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn
20. apríl, kl.15:00
í Gjánni við Austurveg 3 í Grindavík
(sambyggt Íþróttahúsi & sundlaug).
Kvenfélag Grindavíkur sér um veitingar
og Suðurnesjamenn og heimamenn
um tónlist og skemmtun.
Gjald er kr. 2000,-
Ath! enginn posi á staðnum.
Allir félagar á Suðurnesjum velkomnir!
ATVINNA
TÆKNIVÍK EHF ÓSKAR EFTIR RAFVIRKJA
OG EÐA RAFVIRKJANEMA Í VINNU.
Fyrirtækið er leiðandi í stýringum og forritun fyrir fiskeldi.
Starfið felst í uppsetningu á töflum,
stýringum og allri almennri raflagnavinnu.
Einnig óskum við eftir starfsmanni á verkstæði
okkar og við vinnu á uppsetningu búnaðar.
Upplýsingar í síma 895 3556 eða á netfangið gulli@eldi.is
Tæknivík