Víkurfréttir - 11.05.2017, Qupperneq 10
10 fimmtudagur 11. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
■ Boðað hefur verið til stofnfundar
Samtaka andstæðinga stóriðju í
Helguvík næsta þriðjudag. Að stofn-
fundinum standa þeir Einar M.
Atlason og Þórólfur Júlían Dagsson.
„Við erum að leita eftir stuðningi
íbúa, að þeir sýni stuðning sinn í
verki ef þeir eru á móti uppbygg-
ingu stóriðju í Helguvík,“ segir Ein-
ar. Hann bendir á að margir íbúar í
Reykjanesbæ og nágrenni fari mik-
inn á samfélagsmiðlum í andstöðu
sinni við stóriðju en að meira þurfi
til að ná fram breytingum. Líkt og
reynslan sýni sé mikilvægt að íbúar
mótmæli stóriðjuuppbyggingu áður
en ráðist er í framkvæmdir. „Hesta-
menn á Mánagrund börðust kröft-
uglega gegn stóriðjunni á sínum
tíma en nutu ekki mikils stuðnings
út fyrir sínar raðir,“ segir Einar.
Kísilverksmiðja United Silicon tók til
starfa í Helguvík síðasta haust og hefur
starfsemin þar verið stöðvuð af Um-
hverfisstofnun eftir fjölda mengun-
aróhappa. Gangi áætlanir Thorsil eftir
mun verða hafist handa við byggingu
þeirrar verksmiðju í byrjun næsta árs.
Sú verður staðsett við hlið United Sili-
con. Búið var að gefa út starfsleyfi til
Thorsil en það var á dögunum kært
af Landvernd, Náttúruverndarsam-
tökum Suðvesturlands og af Ellerti
Grétarssyni, náttúruljósmyndara og
íbúa í Reykjanesbæ.
Þórólfur segir ljóst að stóriðja eigi ekki
undir neinum kringumstæðum að
vera nálægt byggð líkt og í Reykja-
nesbæ en rúmur kílómetri er frá kísil-
verksmiðju United Silicon að næstu
íbúabyggð. „Við viljum einfaldlega að
starfsemi United Silicon verði stöðvuð
og að verksmiðja Thorsil fái ekki að
rísa,“ segir Þórólfur. Hann segir að
meðal verkefna samtakanna verði að
kanna skaðabótaskyldu vegna alls
þess sem farið hefur úrskeiðis hjá
United Silicon. „Nýlega kom í ljós að
hæð einnar byggingarinnar er ólög-
mæt. Hver ber ábyrgð á því? Svo er
líklegt að fasteignaverð á svæðinu
muni lækka á næstunni verði öll þessi
stóriðjuuppbygging að veruleika. Eiga
eigendur fasteigna að bera skaðann af
því?“ spyr Þórólfur.
Fundurinn fer fram þriðjudaginn
16. maí næstkomandi klukkan 20:00
í Virkjun mannauðs á Reykjanesi,
Flugvallarbraut 740 á Ásbrú í Reykja-
nesbæ.
- Stofna íbúasamtök
gegn stóriðju í Helguvík
Ekki nóg að tuða heima
og á samfélagsmiðlum
Einar Atlason. Þórólfur Dagsson.