Víkurfréttir - 11.05.2017, Side 22
21fimmtudagur 11. maí 2017 VÍKURFRÉTTIR
Hjólreiðafólk lét smá
gjólu ekki aftra sér frá
þátttöku í Geysi Reykja-
nesmótinu í hjólreiðum
sem fram fór í Sandgerði
síðasta sunnudag. Um 370
keppendur voru skráðir
til leiks sem eru nokkru
fleiri en í fyrra þegar þeir
voru um 300. Hægt var að
velja um þrjár leiðir, 106
km, 63 km og 32 km.
Þríþrautardeild UMFN
stóð fyrir mótinu. Að sögn
Svans Más Scheving, móts-
stjóra, voru aðstæður til hjólareiða
mjög góðar á keppnisdaginn. Hjólað
var af stað frá Stafnesvegi. „Veðrið
hefði getað verið verra því það er ekki
nema vika síðan hér var allt í snjó. Nú
er smá gjóla. Það verður mótvindur í
byrjun en meðvindur til baka,“ sagði
Svanur.
Mótið hefur verið haldið árlega síðan
2011. Þá voru keppendur 25 og árið á
eftir voru þeir 50 svo að mótið hefur
vaxið með ári hverju.
Rannveig Anna Guichar-
naud úr Breiðabliki kom
fyrst kvenna í mark á 106
km leiðinni en Óskar
Ómarsson úr Tindi var
fyrsti karlinn. Í 63 km
hringnum var það Jóhann
Sigurjónsson sem varð
fyrstur karlanna og Fríða
Ammendrup úr Hjól-
reiðafélagi Akureyrar varð
hlutskörpust kvenna. Guð-
laug Sveinsdóttir úr 3N
kom fyrst kvenna í mark
í 32 km og Helgi Björns-
son varð fyrstur í karlaflokki. Úrslit
í öllum aldursflokkum má nálgast á
vefnum timataka.net.
Umfjöllun í Suðurnesjamagasíni
Nánar verður fjallað um Geysi
Reykjanesmótið í Suðurnesjamagasíni
Sjónvarps Víkurfrétta á Hringbraut í
kvöld klukkan 20:00 og 22:00. Með-
fylgjandi myndir tóku Dagný Hulda
Erlendsdóttir og Arnar Thorarensen
Skúlason.
Tæplega 400
hjólreiðakappar
mættu á Stafnes
●● Aðeins●25●mættu●á●mótið●fyrir●sex●árum●en●það●hefur●vaxið●með●hverju●árinu
Mótvindur var í byrjun hjólaleiðanna en með-
vindur til baka. Fjöldi hjólreiðafólks á öllum
aldri tók þátt í Geysi Reykjanesmótinu í ár.
Um 370 þátttakendur hjóluðu í mótinu.
Sumir áhorfendur fengu betra útsýni en aðrir.