Víkurfréttir - 12.01.2017, Blaðsíða 17
17fimmtudagur 12. janúar 2017 VÍKURFRÉTTIR
upp. Árið 2000 var sams konar hópur
stofnaður til að knýja á um tvöföldun
Reykjanesbrautar. Þá var Reykjanes-
brautinni lokað í mótmælaskyni til að
vekja athygli á málefninu. Ísak segir
það þó ekki hafa komið til greina nú.
„Við ákváðum að gera þetta með ráða-
mönnum og þingmönnum og frekar
hjálpa þeim en að þeir færu að setja
málið ofan í skúffu.“
Hópurinn lét útbúa skilti sem komið
var upp á Reykjanesbraut. Á skilt-
unum voru ökumenn varaðir við því
að þessi kafli vegarins væri hættu-
legur. Skiltin voru fljótlega fjarlægð
af starfsfólki Vegagerðarinnar. „Við
fórum að hugsa málið rökrétt eftir
þetta. Sumir vildu fara í meiri víga-
herferðir en við hugsuðum með okkur
að við gætum alveg hringt í þingmenn
og fengið þá að borðinu. Við settum
upp fund í Duus-húsum og þangað
komu forsætisráðherra, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra og allir tóku vel í
þessi mál. Ólöf Nordal, ráðherra sam-
göngumála, var með okkur alveg frá
byrjun. Við vorum ekki með frekju og
börðum í borðið, heldur sýndum fram
á hversu hættulegur vegurinn er.“ Þeir
segja samstöðu fólks með úrbótum
á Reykjanesbraut hafa verið gríðar-
lega og skipt sköpum. „Þegar við hér
á Suðurnesjum stöndum saman og
róum í sömu átt þá gengur okkur
ótrúlega vel,“ segir Ísak. Alveg sama
hvert þeir hringdu þá var þeim vel
tekið. Ísak nefnir að hópurinn hafi
fundað með ráðherrum og öllum
þingmönnum í kjördæminu, Vega-
málastjóra, Umhverfis- og samgöngu-
nefnd, bæjarstjórnum á Suðurnesjum,
Sambandi sveitarfélaga á Suður-
nesjum, Samtökum atvinnurekenda á
Suðurnesjum og allt hafði þetta áhrif.
Fengu skapandi fólk til liðs við sig
Líkt og áður sagði var stofnaður 14
manna framkvæmdahópur og segir
Ísak mikinn kraft búa í hópnum. „Þó
að við Guðbergur séum hér í viðtali
þá er það bara af því að við stofnuðum
hópinn. Við erum bara vinnuhestar.
Okkur vantaði með okkur skapandi
fólk með þekkingu,“ segir Ísak og
bendir á að þeir hafi verið heppnir
að fá Margréti Sanders til liðs við sig.
Hún hafi mótað hugmyndafræði og
stefnu hópsins. Margrét er vel þekkt
á Suðurnesjum fyrir margvísleg störf
en hún er m.a. formaður Samtaka
verslunar- og þjónustu. Þá hafi Marta
Jónsdóttir, lögfræðingur, einnig reynst
hópnum gríðarlega vel. „Hún hefur
unnið í samgönguráðuneytinu og
þekkir vel til stjórnsýslunnar.“ Með
þeim var líka öflugur hópur sem útbjó
myndbönd um málstaðinn. Í mynd-
böndunum sögðu fórnarlömb bílslysa
á Reykjanesbraut frá reynslu sinni.
Ekkert banaslys vegna árekstrar
á tvöföldum kafla
Næstu skref framkvæmdahópsins
verða að þrýsta á um að tvöföldun
Reykjanesbrautar verði framar í for-
gangsröðinni hjá stjórnvöldum. „Við
erum bara rétt að byrja,“ segir Guð-
bergur. Nú er staðan varðandi hring-
torgin tvö sem komin eru á áætlun sú
að verið er að leita að aðila til að hanna
þau. Hluti Reykjanesbrautar er tvö-
faldur en eftir er að ljúka við tvöföldun
á fjögurra kílómetra kafla frá Fitjum
að flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli.
Ísak bendir á að á tvöfalda kaflanum
hafi aðeins orðið eitt banaslys sem
varð með þeim hætti að ökumaður
missti meðvitund. „Fjöldi ferðamanna
eykst ár frá ári og þeir fara allir þessa
fjóra kílómetra. Við höfum ekki farið í
það að fá Isavia með okkur en kannski
eigum við það eftir. Verkefnið er hluti
af því hvernig best er að koma far-
þegum til og frá flugstöðinni og því er
málefnið mjög mikilvægt fyrir Isavia.
Við þurfum að fá sem flesta með
okkur í lið til að koma málinu framar í
forgangsröðina.“
Menn ársins
frá upphafi
Suðurnesja-
fólk ársins
1990 til 2016
1990 - Dagbjartur Einarsson
1991 - Hjörtur Magni Jóhannsson
1992 - Guðmundur
Rúnar Hallgrímsson
1993 - Guðjón Stefánsson
1994 - Júlíus Jónsson
1995 - Þorsteinn Erlingsson
1996 - Logi Þormóðsson
1997 - Steinþór Jónsson
1998 - Aðalheiður Héðinsdóttir
1999 - Sigfús Ingvason
2000 - Bláa lónið / Rúnar Júlíus-
son / Íþróttafélagið Nes
2001 - Freyja Siguðar-
dóttir / Norðuróp / Fræða-
setrið í Sandgerði
2002 - Guðmundur Jens Knútsson
2003 - Áhöfnin á Happasæl
KE fyrir björgunarafrek
2004 - Tómas J. Knútsson
2005 - Guðmundur Kristinn
Jónsson / Krístin Kristjánsdóttir
2006 - Hjörleifur Már Jóhannsson
/ Bergþóra Ólöf Björnsdóttir
2007 - Erlingur Jónsson
2008 - Sigurður Wíum Árnason
2009 - Jóhann Rúnar Kristjánsson
2010 - Axel Jónsson
2011 - Guðmundur
Stefán Gunnarsson
2012 - Nanna Bryndís Hilmars-
dóttir / Brynjar Leifsson
2013 - Klemenz Sæmundsson
2014 - Fida Abu Libdeh
2015 - Sigvaldi Lárusson
2016 - Stopp hópurinn -
hingað og ekki lengra
Þau skipuðu framkvæmdahópinn
Sérstakur framkvæmdahópur Stopp hópsins var skipaður síðastliðið sumar. Hann skipuðu:
Atli Már Gylfason, Páll Orri Pálsson, Teitur Örlygsson, Margrét Sanders, Örvar Kristjánsson, Sólborg Guðbrandsdóttir,
Guðbjörg Sigurðardóttir, Leifur A. Ísaksson, Andri Þór Ólafsson, Kristján Jóhannsson, Marta Jónsdóttir, Ísak Ernir
Kristinsson og Guðbergur Reynisson.
Stopphópsfólk með þingmönnum og ráðherrum eftir sameiginlega fund í Duus-húsum í ágúst.