Víkurfréttir - 12.01.2017, Síða 20
20 fimmtudagur 12. janúar 2017VÍKURFRÉTTIR
LAGNAÞJÓNUSTA SUÐURNESJA
ÓSKAR EFTIR STARFSMÖNNUM
Vegna góðrar verkefnastöðu þurfum við að bæta í hóp flottra starfsmanna okkar. Við leitum af öflugum einstaklingum sem treysta sér til að gera það sem
þarf til þess að ná árangri í krefjandi umhverfi. Lagnaþjónusta Suðurnesja er stærsta pípulagningarfyrirtækið á Suðurnesjum með starfstöðvar bæði í
Grindavík og Reykjanesbæ. Samhennt fyrirtæki sem tileinkar sér stundvísi,samviskusemi og fagleg vinnubrögð.
ALMENN PÍPULAGNINGARVINNA
Við leitum að einstakling vönum pípulögnum,
meistara, sveini eða verkamanni vönum byggingar-
vinnu. Þurfa að vera sjálfstæðir, þjónustuliprir og vera
tilbúnir að tileinka sér nýjungar.
NEMAR
Hefur þú áhuga á því að læra pípulagnir? Við erum að
leita af einstaklingum sem hafa áhuga á því að læra
pípulagnir og komast á samning.
Umsóknir skal senda á lagnaths@simnet.is
Við leitum að
rafvirkja eða
rafeindavirkja
Starfssvið tæknimanns á vöktum
Í starfinu felst daglegur rekstur á vélbúnaði Fjarskiptastöðvarinnar ásamt bilanagreiningu og
útskiptingu bilaðra íhluta. Einnig mun viðkomandi sinna fyrirbyggjandi viðhaldi á búnaði og sjá um
almenna umhirðu búnaðar og mælitækja. Unnið er á tvískiptum vöktum og mun viðkomandi ýmist
starfa á dag- eða næturvöktum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Sveinspróf í rafeindavirkjun eða rafvirkjun
• Víðtæk starfsreynsla
• Rík þjónustulund og go
viðmót
Tekið er á móti umsóknum á www.advania.is/atvinna. Það verður
ráðið í þessa stöðu þegar ré
ur einstaklingur finnst. Það er því ekki um
eiginlegan umsóknarfrest að ræða heldur eru umsækjendur kallaðir inn
eir því sem við á. Nánari upplýsingar veitir Einar Jón Pálsson,
einar.jon.palsson@advania.is / 420 7255, eða Sigrún Ósk Jakobsdó
ir,
radningar@advania.is / 440 9000.
Advania óskar eir að ráða rafvirkja eða rafeindavirkja í stöður tæknimanns
og viðhaldsstjóra við Fjarskiptastöðina í Grindavík.
Starfssvið viðhaldsstjóra
Starf viðhaldsstjóra er að stærstum hluta innt af hendi á hefðbundnum dagvinnutíma en reikna má
með vöktum að hluta við afleysingar. Starfsmaður hefur umsjón með viðhaldi fasteigna og búnaðar
í Fjarskiptastöðinni auk þess að leysa tilfallandi af tæknimenn á vöktum.
Tæknimönnum á vöktum er séð fyrir vaktabíl fyrir akstur í vinnu
hvort heldur er af Suðurnesjum eða höfuðborgarsvæðinu.
• Góð enskukunná
a, í ræðu og riti
• Hreint sakavo
orð
Í síðustu viku var birt myndband á
vef Stundarinnar þar sem sjá mátti að
kísilryk barst frá verksmiðju United
Silicon. Fulltrúar Umhverfisstofnunar
hafa verið í sambandi við forsvars-
menn United Silicon eftir að mynd-
bandið var birt á vef Stundarinnar. Að
sögn Sigríðar Kristjánsdóttur, teymis-
stjóra eftirlitsteymis stofnunarinnar
er kísilryk ekki eiturefni og ekki skil-
greint sem hættulegt efni. „Þetta er
samt sem áður ekki framkvæmd sem
er eðlileg eða heimil samkvæmt starfs-
leyfi því að allur reykur skal leiddur í
gegnum hreinsivirki,“ segir Sigríður.
Atvikið er til skoðunar hjá stofnun-
inni og að sögn Sigríðar verður því
fylgt eftir. Fulltrúar Umhverfisstofn-
unar fylgjast með fyrirtækinu og kalla
reglulega eftir upplýsingum. „Við
munum fylgja úrbótaáætlun eftir og
eins erum við að vinna að því að fá
betri upplýsingar um myndböndin
sem voru birt hjá Stundinni. Við
munum halda eftirlitinu áfram og
ekki slaka á því.“
Á vef Umhverfisstofnunar kemur fram
að gangsetning verksmiðjunnar hafi
ekki gengið sem skyldi. Fjölmargar
kvartanir um lyktar- og reykmengun
hafa borist auk þess sem að minnsta
kosti einn einstaklingur hefur leitað
til læknis vegna áhrifa á öndunarfæri.
Skýringar á þeim reyk sem sést hefur
má rekja til þess að verið var að finna
réttar stýringar á afsogi frá ofnum og
reykhreinsibúnaði. „Lyktin stafar fyrst
og fremst af ófullkomnum bruna á
lífrænum efnum (timburflís) þar sem
ofninn var ekki komin á það stig að
vera kominn í jafnvægi og ná því hita-
stigi þar sem von er á að lyktin eyðist.
Við viðarbruna myndast ýmis efni
sem geta valdið umræddri lykt og geta
þessi efni í litlum styrk valdið ertingu í
öndunarvegi og augum.
Útflæði kísilryks ekki í
samræmi við starfsleyfi
Fjölmargar kvartanir hafa borist til Umhverfisstofnunar vegna lyktar- og reyk-
mengunar frá verksmiðju United Silicon í Helguvík.