Víkurfréttir - 30.11.2017, Blaðsíða 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
AÐAL S ÍMANÚMER 421 0000 ■ AUGLÝS INGAS ÍM INN 421 0001 ■ FRÉTTAS ÍM INN 421 0002
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir
fimmtudagskvöld kl. 20
á Hringbraut og vf.is
S U Ð U R N E S J A
MAGASÍN
Tuttugu og
tvær versl -
anir og þjón-
ustuaðilar á
Suðurnesjum
eru með í Jóla-
lukku Víkur-
frétta 2017 en
þetta er í sautj-
ánda skipti sem þessi vinsæli skafmiðlaleikur
er í boði í desember. Glæsilegri vinningar
eru í Jólalukkunni og má þar nefna Iphone
X síma, 120 þús. kr. gjafabréf í Nettó og tíu
Evrópuferðir með Icelandair. Jólalukkan
hefst 1. desember í tuttugu og tveimur versl-
unum í Reykjanesbæ og Grindavík.
Í þessum vinsæla jólaleik sem gengur út á
það að fyrir 5000 kr. viðskipti fæst afhentur
skafmiði eru 6 þúsund vinningar og heildar-
verðmæti um 7 milljónir króna.
Auk fyrrnefndra vinnninga má nefna fleiri
eins og vegleg gjafakort frá Bláa lóninu og
Sporthúsinu, rafbækur frá einka.is og bíla-
þrif hjá Bílaleigunni Geysi. Þá má nefna 30
KEA hamborgarhryggi, 30 KEA hangilæri og
50 Daim íshringi frá Nettó, einnig fjölda bóka
frá vinsælustu rithöfundum landsins eins og
Arnaldi Indriðasyni og Yrsu Sigurðardóttur. Þá
eru veglegar úttektir frá verslunum sem taka
þátt í jólaleiknum. Fjölmörg önnur fyrirtæki
gefa vinninga. Tvö hundruð heppnir munu
fá ís á Bitanum, á Pulsuvagningum bíða eitt
hundrað pulsur og kók, Sigurjónsbakarí gefur
50 snúða og Héðinsbollur, fimmtíu Issa fish
& chips skammtar eru meðal vinninga, tugir
af pítsum frá Langbest og Fernando’s, fjöldi
báta á Olsen Olsen og 50 bíómiðar frá Sam-
bíóunum munu renna út í leiknum. Svo eru
sem fyrr tvö þúsund kókflöskur og jafn margar
af Egils Appelsíni í Nettó auk fleiri vinninga.
Punkturinn yfir i-ið er svo útdráttur skafmiða
sem skilað er í Nettó í Reykjanesbæ og Grinda-
vík. Í desember verða dregnir út tveir Iphone
X símar, fjórir Icelandair ferðavinningar og tvö
120 þús. króna gjafakort frá Nettó auk tuttugu
minni gjafakorta frá sömu verslun. Úrdrættir
verða 6., 13., 20. og 24. des. Og nöfn vinnings-
hafa kynnt á vf.is. Það er því vissara að skila
miðum sem fyrst því til mikils er að vinna.
VALT YFIR VEGRIÐ
Á REYKJANESBRAUT
Betur fór en á horfðist
þegar bifreið valt á
Reykjanesbraut um
helgina. Henni var ekið
í átt til Reykjanesbæjar
þegar hún fór að rása og
ökumaðurinn missti stjórn á henni. Við það
valt hún yfir vegrið á veginum og endaði á
hinum helmingi Reykjanesbrautarinnar.
Ökumaðurinn hlaut skrámur og var fluttur
með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja þar sem hann fékk aðhlynningu.
Jóhann Issi Hallgrímsson og Hjördís Guðmundsdóttir verða á ferð
og flugi á ISSI FISH&CHIPS-vagninum á aðventunni. Þau reka einn
vagn á Fitjum sem þau hófu rekstur á í sumar og eru svo með annan
sem verður á ferðinni milli bæjarfélaganna á Suðurnesjum þar sem
fiskur og franskar verða boðin til sölu.
Á mánudögum verður Issi með vagninn í Vogum hjá Þorbirni, á þriðju-
dögum í Garði við gamla pósthúsið á miðvikudögum í Sandgerði í porti
við grunnskólann og vagninn verður í Grindavík á fimmtudögum og
föstudögum á Festistplaninu hjá GEO hotel. Vagninn er opinn kl. 18-20
í þessum sveitarfélögum en að sjálfsögðu ræðst opnun að því að veður
sé þannig að hægt sé að ferðast með vagninn á milli staða.
Jóhann Issi sagði í samtali við Víkurfréttir að þetta sé spennandi til-
raun til að hressa upp á bæjarbrag á aðventunni. Þau hjónin fá nýjan
fisk í vagninn á hverjum degi og allt ferlið er sniðið til að skila hámarks
gæðum til neytandans. Á myndinni brugðu þau Issi og Hjördís á leik á
táknrænum stað fyrir þá sem verða á ferð og flugi. VF-mynd: HBB
Á ferð og flugi um Suðurnes með fisk og franskar
„Eins og
að ferðast
aftur í tímann“
T Í U Á R F R Á Ú T G Á F U P L Ö T U N N A R B O T T L E O F B L U E S M E Ð K L A S S A R T
og einnig í
Suðurnesja-
magasíni VF
24
Fjölgun farþega sem fara um Keflavíkur-
flugvöll hefur verið hröð undanfarin ár, en
árið 2010, þegar Isavia var stofnað, fóru
rúmar tvær milljónir farþega um völlinn.
Ef ný farþegaspá gengur eftir mun farþega-
fjöldi hafa fjórfaldast á átta árum og ríflega
tvöfaldast frá árinu 2015. Margvíslegar áskor-
anir fylgja slíkum vexti og hefur Isavia staðið
í tuga milljarða framkvæmdum til að mæta
vextinum auk þess að fjölga starfsfólki mjög
hratt. Þetta kom fram á árlegum morgun-
fundi Isavia sem haldin var á Hilton Nordica
sl. þriðjudag þar sem kynnt var ný spá um far-
þegafjölda fyrir Keflavíkurflugvöll árið 2018.
Sjá nánar á síðu 2 í Víkurfréttum í dag.
FARÞEGAFLUG FJÓRFALDAST Á ÁTTA ÁRUM
Póst ur inn mun gera nokkr ar breyt ing ar á
póst núm er um lands ins frá og með næstu
mánaðamót um. Sér stakt póst núm er verður
tekið upp á svæðum í dreif býli sem áður
féllu und ir sama póst núm er og næsti þétt-
býliskjarni. Hægt verður að þekkja flest nýju
póst núm er in á því að síðasta tal an í þeim
hækk ar um einn.
Póstur í dreifbýli í Vogum fer á póstnúmerið
191, 241 fyrir dreifbýli í Grindavík, 246 fyrir
dreifbýli í Sandgerði, 251 fyrir dreifbýli í Garði.
Ásbrú, sem er á gamla
varn ar svæðinu, fær
nú sitt eigið póst-
núm er sem verður
262 Reykja nes bær en
áður var póstnúmerið
þar 235.
Þá verður Kefla vík-
ur flug völl ur héðan í
frá með sína eig in árit un, eða 235 Kefla vík ur-
flug völl ur.
Dreifbýli á Suðurnesjum fá sérstök póstnúmer og Keflavíkurflugvöllur 235
Ásbrú fær nýtt póstnúmer
Iphone X og
Icelandair flug-
miðar meðal
6000 vinninga
Jólalukka VF í sautjánda
sinn í 22 verslunum
LAUFABRAUÐ
E I G I N K V E N N A
G U L L A L D A R D R E N G J A
K E F L AV Í K U Rfimmtudagskvöld kl. 20á Hringbraut og vf.is
S U Ð U R N E S J A
MAGASÍN
fimmtudagur 30. nóvember 2017 // 47. tbl. // 38. árg.