Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.11.2017, Page 1

Víkurfréttir - 30.11.2017, Page 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M AÐAL S ÍMANÚMER 421 0000 ■ AUGLÝS INGAS ÍM INN 421 0001 ■ FRÉTTAS ÍM INN 421 0002 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir fimmtudagskvöld kl. 20 á Hringbraut og vf.is S U Ð U R N E S J A MAGASÍN Tuttugu og tvær versl - anir og þjón- ustuaðilar á Suðurnesjum eru með í Jóla- lukku Víkur- frétta 2017 en þetta er í sautj- ánda skipti sem þessi vinsæli skafmiðlaleikur er í boði í desember. Glæsilegri vinningar eru í Jólalukkunni og má þar nefna Iphone X síma, 120 þús. kr. gjafabréf í Nettó og tíu Evrópuferðir með Icelandair. Jólalukkan hefst 1. desember í tuttugu og tveimur versl- unum í Reykjanesbæ og Grindavík. Í þessum vinsæla jólaleik sem gengur út á það að fyrir 5000 kr. viðskipti fæst afhentur skafmiði eru 6 þúsund vinningar og heildar- verðmæti um 7 milljónir króna. Auk fyrrnefndra vinnninga má nefna fleiri eins og vegleg gjafakort frá Bláa lóninu og Sporthúsinu, rafbækur frá einka.is og bíla- þrif hjá Bílaleigunni Geysi. Þá má nefna 30 KEA hamborgarhryggi, 30 KEA hangilæri og 50 Daim íshringi frá Nettó, einnig fjölda bóka frá vinsælustu rithöfundum landsins eins og Arnaldi Indriðasyni og Yrsu Sigurðardóttur. Þá eru veglegar úttektir frá verslunum sem taka þátt í jólaleiknum. Fjölmörg önnur fyrirtæki gefa vinninga. Tvö hundruð heppnir munu fá ís á Bitanum, á Pulsuvagningum bíða eitt hundrað pulsur og kók, Sigurjónsbakarí gefur 50 snúða og Héðinsbollur, fimmtíu Issa fish & chips skammtar eru meðal vinninga, tugir af pítsum frá Langbest og Fernando’s, fjöldi báta á Olsen Olsen og 50 bíómiðar frá Sam- bíóunum munu renna út í leiknum. Svo eru sem fyrr tvö þúsund kókflöskur og jafn margar af Egils Appelsíni í Nettó auk fleiri vinninga. Punkturinn yfir i-ið er svo útdráttur skafmiða sem skilað er í Nettó í Reykjanesbæ og Grinda- vík. Í desember verða dregnir út tveir Iphone X símar, fjórir Icelandair ferðavinningar og tvö 120 þús. króna gjafakort frá Nettó auk tuttugu minni gjafakorta frá sömu verslun. Úrdrættir verða 6., 13., 20. og 24. des. Og nöfn vinnings- hafa kynnt á vf.is. Það er því vissara að skila miðum sem fyrst því til mikils er að vinna. VALT YFIR VEGRIÐ Á REYKJANESBRAUT Betur fór en á horfðist þegar bifreið valt á Reykjanesbraut um helgina. Henni var ekið í átt til Reykjanesbæjar þegar hún fór að rása og ökumaðurinn missti stjórn á henni. Við það valt hún yfir vegrið á veginum og endaði á hinum helmingi Reykjanesbrautarinnar. Ökumaðurinn hlaut skrámur og var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem hann fékk aðhlynningu. Jóhann Issi Hallgrímsson og Hjördís Guðmundsdóttir verða á ferð og flugi á ISSI FISH&CHIPS-vagninum á aðventunni. Þau reka einn vagn á Fitjum sem þau hófu rekstur á í sumar og eru svo með annan sem verður á ferðinni milli bæjarfélaganna á Suðurnesjum þar sem fiskur og franskar verða boðin til sölu. Á mánudögum verður Issi með vagninn í Vogum hjá Þorbirni, á þriðju- dögum í Garði við gamla pósthúsið á miðvikudögum í Sandgerði í porti við grunnskólann og vagninn verður í Grindavík á fimmtudögum og föstudögum á Festistplaninu hjá GEO hotel. Vagninn er opinn kl. 18-20 í þessum sveitarfélögum en að sjálfsögðu ræðst opnun að því að veður sé þannig að hægt sé að ferðast með vagninn á milli staða. Jóhann Issi sagði í samtali við Víkurfréttir að þetta sé spennandi til- raun til að hressa upp á bæjarbrag á aðventunni. Þau hjónin fá nýjan fisk í vagninn á hverjum degi og allt ferlið er sniðið til að skila hámarks gæðum til neytandans. Á myndinni brugðu þau Issi og Hjördís á leik á táknrænum stað fyrir þá sem verða á ferð og flugi. VF-mynd: HBB Á ferð og flugi um Suðurnes með fisk og franskar „Eins og að ferðast aftur í tímann“ T Í U Á R F R Á Ú T G Á F U P L Ö T U N N A R B O T T L E O F B L U E S M E Ð K L A S S A R T og einnig í Suðurnesja- magasíni VF 24 Fjölgun farþega sem fara um Keflavíkur- flugvöll hefur verið hröð undanfarin ár, en árið 2010, þegar Isavia var stofnað, fóru rúmar tvær milljónir farþega um völlinn. Ef ný farþegaspá gengur eftir mun farþega- fjöldi hafa fjórfaldast á átta árum og ríflega tvöfaldast frá árinu 2015. Margvíslegar áskor- anir fylgja slíkum vexti og hefur Isavia staðið í tuga milljarða framkvæmdum til að mæta vextinum auk þess að fjölga starfsfólki mjög hratt. Þetta kom fram á árlegum morgun- fundi Isavia sem haldin var á Hilton Nordica sl. þriðjudag þar sem kynnt var ný spá um far- þegafjölda fyrir Keflavíkurflugvöll árið 2018. Sjá nánar á síðu 2 í Víkurfréttum í dag. FARÞEGAFLUG FJÓRFALDAST Á ÁTTA ÁRUM Póst ur inn mun gera nokkr ar breyt ing ar á póst núm er um lands ins frá og með næstu mánaðamót um. Sér stakt póst núm er verður tekið upp á svæðum í dreif býli sem áður féllu und ir sama póst núm er og næsti þétt- býliskjarni. Hægt verður að þekkja flest nýju póst núm er in á því að síðasta tal an í þeim hækk ar um einn. Póstur í dreifbýli í Vogum fer á póstnúmerið 191, 241 fyrir dreifbýli í Grindavík, 246 fyrir dreifbýli í Sandgerði, 251 fyrir dreifbýli í Garði. Ásbrú, sem er á gamla varn ar svæðinu, fær nú sitt eigið póst- núm er sem verður 262 Reykja nes bær en áður var póstnúmerið þar 235. Þá verður Kefla vík- ur flug völl ur héðan í frá með sína eig in árit un, eða 235 Kefla vík ur- flug völl ur. Dreifbýli á Suðurnesjum fá sérstök póstnúmer og Keflavíkurflugvöllur 235 Ásbrú fær nýtt póstnúmer Iphone X og Icelandair flug- miðar meðal 6000 vinninga Jólalukka VF í sautjánda sinn í 22 verslunum LAUFABRAUÐ E I G I N K V E N N A G U L L A L D A R D R E N G J A K E F L AV Í K U Rfimmtudagskvöld kl. 20á Hringbraut og vf.is S U Ð U R N E S J A MAGASÍN fimmtudagur 30. nóvember 2017 // 47. tbl. // 38. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.